Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Í dag kveð ég
yndislega konu,
Guðrúnu Jóhannes-
dóttur, sem fylgt
hefur mér í gegnum
rúmlega þrjátíu ár. Konu sem
tók mér opnum örmum þegar ég
kom í fjölskylduna sem tengda-
dóttir Helgu systur hennar. Hún
bauð mig velkomna frá fyrsta
degi og tók þátt í lífi mínu og
fjölskyldu minnar af einlægum
áhuga og væntumþykju alla tíð.
Gunna var glettin og
Guðrún
Jóhannesdóttir
✝
Guðrún Jó-
hannesdóttir
fæddist 29. maí
1930. Hún andaðist
24. febrúar 2021.
Útförin fór fram
19. mars 2021.
skemmtileg kona.
Hún var miðdepill
tengdafjölskyldu
minnar og Hamra-
hlíðin, þar sem hún
bjó lengst af, var
nokkurs konar fé-
lagsmiðstöð. Þang-
að voru allir vel-
komnir. Alltaf tók
hún okkur fagn-
andi, dúkaði borð
við eldhúsgluggann,
hellti upp á kaffi og galdraði
fram eitthvað gott með því. Oft-
ar en ekki hitti maður aðra fjöl-
skyldumeðlimi á staðnum sem
kíkt höfðu til Gunnu í sömu er-
indagjörðum og við, að njóta
samverunnar, spjalla um heima
og geima og fá fréttir af fjöl-
skyldunni. Því ef einhver vakti
yfir fólkinu sínu var það Gunna.
Sömu sögu má segja af heim-
sóknum okkar í Seljahlíðina þar
sem Gunna dvaldi síðustu árin.
Enn var okkur fagnað með góðu
kaffi og veitingum, fréttum af
fjölskyldunni og heimilislífinu í
Seljahlíðinni. Gunna var þar
hrókur alls fagnaðar og tók þátt
í félagsstarfinu og föndrinu. Í
föndrinu fengu listrænir hæfi-
leikar hennar að njóta sín þar
sem hún bjó til fallega hluti og
saumaði út kort sem hún deildi
út meðal fjölskyldumeðlima á
merkisdögum.
Aldrei hallmælti Gunna
nokkrum manni og öllum vildi
hún vel. Hún hafði þann eigin-
leika að laða fólk að sér. Gunna
hélt skemmtilegustu boðin hér á
árum áður og oftar en ekki var
það hún sem tók að sér að hóa
vinnufélögunum saman þegar
mikið stóð til. Þá var iðulega
boðið upp á Hamrahlíðarbolluna
sem mörgum þótti allhressileg.
Uppskriftin er til og enn er boðið
til gleðskapar í Hamrahlíðinni,
nú af yngri fjölskyldumeðlimum.
Gunna kom úr stórum syst-
kinahópi og var gaman að heyra
hana rifja upp æskuna þar sem
líf og fjör einkenndi fjölskyldu-
lífið í Borgarfirðinum. Strákapör
bræðranna á Flóðatanga liðu
henni seint úr minni og margar
skemmtilegar sögur sem hún
sagði börnunum mínum af upp-
vexti þeirra syskinanna. Greini-
legt var að Gunnu þótti afar
vænt um systkini sín og þá ekki
síst tengdamóður mína Helgu
sem hún reyndist alla tíð svo vel.
Að leiðarlokum er margs að
minnast. Þegar ég minnist
Gunnu er þakklæti efst í huga,
þakklæti fyrir að hafa fengið að
kynnast svo heilsteyptri og
sannri konu sem aldrei fór í
manngreinarálit. Konu sem lét
sér annt um mig og mína og
gerði okkur að betri manneskj-
um. Minningin um elsku Gunnu
mun ætíð fylgja okkur og verða
okkur leiðarljós. Hafi hún þökk
fyrir samfylgdina.
Guðrún Erna Þórhallsdóttir.
Horfinn er á
braut gamall skóla-
félagi og góður vin-
ur, Jóhannes Finn-
ur Skaftason. Fyrstu kynni
okkar af Jóhannesi voru þegar
nýnemar mættu til náms í
Menntaskólann að Laugarvatni
haustið 1957. Í heimavistarskóla
myndast traust kynni meðal
nemenda sem síðan verða undir-
staðan að ævilöngum vináttu-
samböndum. Slík voru kynni
okkar af Jóhannesi. Hann féll vel
í hópinn, hæglátur og prúður,
léttur í skapi með sterka kímni-
gáfu, en fastur fyrir ef svo bar
undir. Hann var frábær náms-
maður, hæstur á stúdentsprófi í
stærðfræðideild skólans. Þá tók
við nám í lyfjafræði í Háskóla Ís-
lands og síðar framhaldsnám í
DfH í Danmörku þar sem hann
Jóhannes Finnur
Skaftason
✝
Jóhannes Finn-
ur Skaftason
fæddist 17. ágúst
1941. Hann lést 19.
mars 2021.
Hann var jarð-
sunginn 26. mars
2021.
fékk hina virtu H.C.
Örsteds mindeme-
dalia fyrir námsár-
angur. Samhliða
vinnu á síðari hluta
sjöunda áratugar-
ins stundaði Jó-
hannes nám í við-
skiptafræði en
ævistarf hans
tengdist þó alltaf
lyfjafræði. Í tóm-
stundum sínum afl-
aði hann sér þekkingar á skor-
dýrum og var hann einn fróðasti
á því sviði hér á landi. Við bekkj-
arfélagar Jóhannesar höfum hist
um árabil á tveggja vikna fresti.
Þar voru rædd þjóðfélagsmál en
umfram allt rifjuð upp skemmti-
leg atvik frá námsárunum, og
alltaf glatt á hjalla. Það eru helst
þær minningar sem koma í hug á
þessum tímamótum, góðar
minningar um einstakan mann,
og þakklæti fyrir samveruna í
gegnum tíðina. Fjölskyldu Jó-
hannesar vottum við okkar ein-
lægu samúð.
Fyrir hönd bekkjarfélaga í
ML,
Róbert Pétursson.
Elsku pabbi.
Þakka þér fyrir allt
sem þú hefur verið
okkur. Við, börnin þín,
kveðjum þig með þessu
fallega ljóði sem segir allt sem
segja þarf.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri
lund,
Ólafur Blómkvist
Jónsson
✝
Ólafur Blómkvist
Jónsson fæddist
13. nóvember 1934.
Hann andaðist 12.
mars 2021.
Útför Ólafs fór
fram 23. mars 2021.
þú gleymdir ei
skyldunum eina
stund,
að annast um
ástvini þína.
Þú farinn ert þang-
að á undan inn.
Á eftir komum við,
pabbi minn.
Það huggar á
harmastundum.
Þótt hjörtun titri af
trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Minning þín lifir með okkur
sem elskum þig.
Þín börn,
Óskar, Eydís, Stefán og
Ragnheiður Rósa.
Þegar ég hugsa
til þín koma upp
minningar frá því að
ég var yngri, þegar
við sátum við eldhúsborðið og
spiluðum á spil. Þú hafðir næga
þolinmæði til þess að kenna mér
og tíma til þess að sitja við þetta
lengi vel. Ég man að eitthvert
Guðný Helga
Björnsdóttir
✝
Guðný Helga
Björnsdóttir
fæddist 7. desem-
ber 1929. Hún lést
7. mars 2021.
Útför Guðnýjar
fór fram 20. mars
2021.
sumarið vorum við
vinkona mín sendar
suður til ykkar í
tvær vikur og afi
kenndi okkur á
strætó, svo að við
gætum farið á
hverjum degi í sund
í Árbæjarlaug. Það
var sama hvort við
vorum heima hjá
ykkur í Reykjavík
eða í sumarbústaðn-
um á Hólmavík, það var alltaf
hægt að dunda sér í rólegheitum
við spil eða lestur bóka. Hvíl í
friði, elsku amma mín.
Guðný Guðmundsdóttir.
Ég stend í mikilli
þakkarskuld við
Guðrúnu í Seglbúð-
um. Hún var vel-
gjörðarmaður minn.
Haustið 1966 sótti ég um
skólastjórastöðu á Kirkjubæjar-
klaustri. Þá var þar enginn kenn-
arabústaður. Jón maður Guðrún-
ar var í skólanefndinni og þau
Guðrún leystu málið. Fyrstu þrjá
mánuðina bjó ég hjá þeim í Segl-
búðum með lítinn son minn sem
Guðrún
Þorkelsdóttir
✝
Guðrún Þor-
kelsdóttir,
Dúna, fæddist 21.
apríl 1929. Hún lést
21. mars 2021.
Hún var jarð-
sungin 27. mars
2021.
Guðrún passaði all-
an fyrsta veturinn
minn þar. Ég hefði
ekki getað verið
heppnari, borgar-
stelpan, að flytja inn
á þetta mikla menn-
ingarheimili. Guð-
rún var einstök
manneskja, glaðvær
og hlý og hélt vel ut-
an um allt sitt fólk.
Þar var aldrei orð-
inu hallað á náungann. Reyndar
finnst mér það vera einkenni
fólksins á Klaustri. Þar eigum við
lítið hús og þangað er gott að
koma. Ég er þakklát fyrir að hafa
getað kvatt Jón og Guðrúnu á
Klausturhólum síðast þegar ég
var á Íslandi.
Bryndís Skúladóttir.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
fjölskyldunni samúð og hlýju vegna andláts
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
FANNEYJAR ÓFEIGSDÓTTUR,
áður til heimilis á Nesvegi 68,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Seltjarnarnesi 16. mars.
Fjölskyldan sendir sérstakar þakkir til starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Seltjarnar.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Ófeigur Geirmundsson Anna Margrét Ögmundsdóttir
Baldur Geirmundsson Anne Biehl Hansen
Birna Geirmundsdóttir Ólafur Þór Bjarnason
Sigurður Geirmundarson
Sverrir Geirmundsson Arndís Jósefsdóttir
Geirmundur Geirmundsson Jóna Stefánsdóttir
Haukur Geirmundsson Guðrún B. Vilhjálmsdóttir
og ömmubörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem hafa sýnt
okkur umhyggju og hlýju við andlát og útför
okkar elskuðu eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BERGLJÓTAR HERMUNDSDÓTTUR.
Minning þín lifir og er okkur dýrmæt og
dásamleg um ókomna tíð. Kærleikskveðjur,
Kristmann Grétar Óskarsson
Gyða Kristmannsdóttir Jón Ríkharð Kristjánsson
Auður Kristmannsdóttir Þórður Pálmason
Kristín M. Kristmannsdóttir Jóhann Ölvir Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
ELÍN SIGURJÓNSDÓTTIR,
Einilundi 8 F, Akureyri,
lést aðfaranótt mánudagsins 29. mars á
Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 12. apríl
klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis
nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Hægt verður
að nálgast streymi á facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrar-
kirkju - Beinar útsendingar.
Aðstandendur afþakka blóm og kransa en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarkort Soroptimistaklúbbsins
og Akureyrarkirkju.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar á Akureyri og
heimaþjónustu á Akureyri fyrir umhyggju og alúð.
Kári Gíslason Bryndís Dagbjartsdóttir
Árni Gíslason Sigurborg Ísfeld
Edda Stefáns Þórarinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
GUÐBJARGAR GUÐRÚNAR
GREIPSDÓTTUR,
Hlíðarholti 7,
Biskupstungum.
Guðleif Jóna Kristjánsdóttir Andreas Schultz
Lísa Sigríður Greipsson Rafn Hafberg Guðlaugsson
Guðrún Ósk Óskarsdóttir
og ömmubörn
Okkar ástkæri og yndislegi faðir,
tengdafaðir, afi og besti vinur okkar,
STEFÁN RAGNAR EGILSSON,
Berjavöllum 2, Hafnarfirði,
andaðist 28. mars.
Útförin fer fram frá Ástjarnarkirkju
mánudaginn 12. apríl klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður aðeins
nánasta fjölskylda viðstödd. Streymt verður frá athöfninni á
eftirfarandi slóð: https://www.sonik.is/stefan
Hafdís Björk Stefánsdóttir Sigurvin Breiðfjörð Pálsson
Ísabella Breiðfjörð Sigurvinsdóttir
Ísafold Breiðfjörð Sigurvinsdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ERLU WIGELUND,
kaupmanns í Verðlistanum við
Laugalæk.
Sigrún Júlía Kristjánsdóttir Jóhann Ásmundsson
Erla Sigurðardóttir
Elínborg Sigurðardóttir Geir Borgar Geirsson
Íris Wigelund Pétursdóttir Ástmar Ingvarsson
Kristján Karl Pétursson Lilja Bjarnadóttir
Gunnar Wigelund Lisa María Lognberg
Auður E. Jóhannsdóttir Johanis Borrero Arcieri
Ásmundur Jóhannsson Brynhildur Oddsdóttir
Ragnar Pétur Jóhannsson Valgerður Helgadóttir
og barnabarnabörn
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar-
greinunum.
Minningargreinar