Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
FUNI dúnúlpa
Kr. 33.990.-
GRÍMSEY kar
Kr. 2.99
Þín útivist - þín ánægja
SALEWA Ultra Train 18 BP
Kr. 12.990.-
YNISFJARA
göngustafir
Kr. 9.990.-
REDRANGSNES merino peysa
Kr. 10.990.-
LYNG u
Kr. 1.59
llarsokkar
0.-
ELÍ flíspeysa
Kr. 11.990.-
hans
0.-
KLETTUR húfa
Kr. 2.490.-
HVÍTAN
Merínó lambhúshetta
Kr. 4.990.-
ES
SALKA
göngubuxur
Kr. 9.990.-
SALEWA
WS MTN TRAINER SHOES
Kr. 28.990.-
ASOLO Angle GV
Kr. 25.990.-
60 ára Þórey er
Kópavogsbúi og hef-
ur ávallt búið þar.
Hún er viður-
kenndur bókari að
mennt og er þjón-
ustufulltrúi hjá Ís-
landsstofu.
Maki: Hjálmar Bjarnason, f. 1958,
kjötiðnaðarmaður.
Synir: Þórarinn, f. 1983, Þráinn, f.
1987, og Þröstur, f. 1996. Barna-
börnin eru orðin fimm.
Foreldrar: Þórarinn Þórarinsson, f.
1930, d. 2004, húsasmíðameistari
og Ólöf Bjarnadóttir, f. 1934, fyrrver-
andi skrifstofumaður, búsett í Kópa-
vogi.
Þórey Þóranna
Þórarinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú gerir bara illt verra með því að
stinga hausnum í sandinn og láta sem þú
sjáir ekki það sem gera þarf á heimilinu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þér finnst athygli annarra beinast
að þér í of ríkum mæli. Gættu þess að
hugsa um þína nánustu eins og þeir gera
um þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er alltaf gaman að skiptast
á skoðunum við fólk sem sér hlutina öðru-
vísi en þú. Gerðu það að markmiði þínu
að sýna öðrum þínar bestu hliðar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Í dag væri upplagt að fara í versl-
unarleiðangur. Daður mun setja svip á
daginn og gera ykkur brosmild og létt í
spori.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Mundu að allt sem þú gerir hefur
sínar afleiðingar bæði fyrir sjálfa/n þig og
aðra líka. Það er gott að gera góðverk.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú átt margan greiðan inni og þeir
eru margir sem eru boðnir og búnir til að
rétta þér hjálparhönd, ef þú bara lætur þá
vita. Forðastu öll óþarfa útgjöld.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Að öllu jöfnu ferð þú skynsamlega
með fé. Frá og með deginum í dag máttu
eiga von á launahækkun.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú hefur lagt þig fram í starfi
og árangur þinn vakið athygli yfirmanna
þinna. Vertu óhrædd/ur við að segja þeim
sem þú hittir daglega að þeir skipti þig
máli.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þér finnast skyldur sem tengj-
ast börnum yfirþyrmandi í dag. Þú hefur
allt sem til þarf til að sækja um drauma-
stöðuna.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú hefur báða fæturna á jörð-
inni og vilt framkvæma hlutina að vel
hugsuðu máli. Vertu ekki of fastur/föst í
fortíðinni.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Nú er komið að því að vinur
þinn verður að endurgjalda þér greiða.
Búðu þig undir að þurfa að endurskoða
afstöðu þína í vissu máli.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Láttu þér ekki til hugar koma að
leggja öll spilin á borðið fyrir hvern sem
er. Reyndu að koma fasteigna- og trygg-
ingamálunum á hreint.
Við heimkomuna 2001 hóf Stefán
Hrafn markaðsstörf hjá Teymi –
Oracle á Íslandi og var ári síðar ráð-
inn markaðsstjóri Skýrr sem seinna
varð Advania. Þar fann hann fjölina
og starfaði um 11 ára skeið. „Eftir tíð
vistaskipti kringum aldamótin varð
ég ígildi vel heppnaðs húsgagns hjá
Advania og forverum þess. Stórkost-
legt tímabil. Eigendur Odda fengu
mig næst til liðs við sig sem stjórn-
anda mannauðs- og markaðsmála og
atvinnulífinu eftir að blaðamennsk-
unni lauk, yfirgaf Opin kerfi til dæm-
is eftir ársdvöl og tók þá að mér starf
framkvæmdastjóra Íslenska net-
félagsins. Var þar við þróun mis-
heppnaðrar netverslunarkringlu um
skamma hríð. Því næst vann ég ráð-
gjafarstörf og viðskiptaþróun fyrir
alþjóðlega fjárfesta í tvö ár, lengst af
á Indlandi en einnig í Tékklandi.
Mikil lífsreynsla atarna, en upp-
skeran takmörkuð.“
S
tefán Hrafn Hagalín fædd-
ist 8. apríl 1971 í Reykja-
vík, en ólst upp á Akur-
eyri. Hann gekk í
Oddeyrarskóla og Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og spilaði fót-
bolta og handbolta með KA. Stefán
Hrafn flutti 15 ára aftur suður yfir
heiðar og hóf nám við Mennta-
skólann í Kópavogi.
„Ég kláraði bara ár í MK og
spriklaði með gullárgangi ÍK. Tók
svo örstutt frí frá formlegu námi.
Hafði nefnilega sem pjakkur verið
færður upp um bekk og taldi mig í
inneign. Það námsleyfi stendur hins
vegar enn yfir, að undanskilinni frá-
bærri frammistöðu í bóklega öku-
náminu 1988 þar sem ég var með 90
spurningar af 90 réttar og hæstur í
útskriftarárganginum,“ segir afmæl-
isbarn dagsins glottandi.
Hann hóf ungur að árum að vinna
fyrir sér með skrifum. „Fyrstu
greinarnar birtust í Alþýðublaðinu
kringum 1990, sem var minn fyrsti
alvöru vinnustaður eftir viðburðalitla
spretti sem dælutæknir hjá olíu-
félögum og matreiðslumaður á
dularfullu veitingahúsi í Garðabæ.
Samhliða blaðamennskunni fyrstu
árin var ég framkvæmdastjóri Sam-
bands ungra jafnaðarmanna. Það
lifði pólitískur þátttökuþráður í mér í
áratug og ég þróaðist hratt frá villta
vinstrinu yfir í frjálslyndan hægri-
krata og öfgafemínista. Hætti aftur
móti öllum pólitískum afskiptum
kringum hálfþrítugt. Það var ugg-
laust gæfuskref fyrir land og þjóð og
engar spurnir borist af því að stjórn-
málaheimurinn sakni mín.“
Hjá Alþýðublaðinu starfaði Stefán
Hrafn í nokkur ár, síðast sem frétta-
stjóri. Hann var 24 ára ráðinn rit-
stjórnarfulltrúi Helgarpóstsins og
tók sama ár við sem ritstjóri blaðs-
ins. Hann gegndi því starfi um
tveggja ára skeið og var þá fenginn
til að ritstýra tímaritinu Tölvuheimi
þar sem hann var 1996-1999 og
stjórnaði jafnframt sjónvarpsþátt-
unum Punktur.is á Stöð 2 og Sýn.
„Ég kvaddi blaðamennskuna eftir
áratug árið 1999 og tók brattur við
starfi markaðsstjóra Opinna kerfa.
Var smástund að finna taktinn í
þar var ég í þrjú ár. Þessi sérstaka
blanda átti ágætlega við mig þótt eitt
sinn hafi verðandi fyrrverandi
starfsmaður Odda reyndar hreytt í
mig að ég hafi augljóslega komist
langt áfram í lífinu á útlitinu einu
saman!“ rifjar Stefán Hrafn upp
hlæjandi.
Árið 2016 var hann tiltölulega ný-
byrjaður sem verkefnastjóri hjá
Auðkenni þegar síminn hringdi.
„Hinumegin á línunni voru stjórn-
endur Landspítala, sem dobluðu mig
til að skipta um lið. Þar stýri ég sam-
skiptadeild með mögnuðu starfsfólki.
Á okkar könnu er öll upplýsinga-
miðlun spítalans; almannatengsl,
fjölmiðlasamskipti, samfélagsmiðlar,
vefsvæði, hlaðvörp og viðburðir. Er-
um öðrum þræði fréttastofa Land-
spítala og framleiðum þúsundir
frétta gegnum árið um starfsemi,
mannauð og verkefni spítalans.“
Lífið utan vinnu er litað af elda-
mennsku, hlaupum og barnabörnum.
„Ég róa hjartað með eldamennsku,
en til að tæma hugann hleyp ég dag-
lega. Annaðhvort í fótbolta með
oldboys Þróttar eða á útihlaupum
með eiginkonunni. Frú Valgerður er
ekki bara flinkur hönnuður og há-
skólamenntuð hestakona, heldur líka
óvenju frá á fæti. Þessu til viðbótar
geri ég talsvert af því að dæma fót-
boltaleiki ungmenna og flauta yfir-
leitt nokkra leiki í viku í Laugar-
dalnum. Félagið og knattspyrnu-
hreyfingin hafa þakkað fallega með
góðmálmum fyrir þá vinnu og ég er í
góðu glensi titlaður Þróttari ársins
2015 í símaskránni. Skemmtilegast
af allri dægradvöl minni eru árlegar
keppnisferðir oldboys Þróttar til
Bretlands. Tímafrekustu verkefnin
utan vinnu og leikja eru þó barna-
börnin. Við erum svo lánsöm að fá að
taka ríkan þátt í uppeldi tveggja
gullmola, sem eru okkar hjartans
yndi.“
Fjölskylda
Eiginkona Stefáns Hrafns er Val-
gerður Gunnarsdóttir, f. 25.4. 1967,
grafískur hönnuður hjá markaðs-
stofunni Brandr. Hjónin hafa undan-
farna tvo áratugi búið í Laugardal.
Foreldrar Valgerðar eru hjónin Guð-
Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítala – 50 ára
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Börnin Frá vinstri: Þorbjörg, Þorgeir, Starri, Bjartur og Andri.
„Komist langt áfram á útlitinu“
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Með barnabörnin Valgerður, Valgeir Hrafn, Aþena Sif og Stefán Hrafn.
40 ára Berglind er Ak-
ureyringur en býr í
Reykjavík. Hún er fé-
lagsfræðingur frá HÍ og
er í fæðingarorlofi.
Maki: Arnar Gauti
Sverrisson, f. 1971,
sjónvarpsmaður og
hönnuður.
Börn: Nökkvi Blær Hafþórsson, f. 2006,
Lúkas Breki Berglindarson, f. 2011, og
Viktoría Ivy Arnarsdóttir, f. 2020. Stjúp-
börn eru Natalía París, f. 2004, og Kiljan
Gauti, f, 2007.
Foreldrar: Sveinbirna Helgadóttir, f. 1953,
húsmóðir, og Valdemar Friðgeirsson, f.
1955, leiðsögumaður. Þau eru búsett á
Akureyri.
Berglind Sif
Valdemarsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Viktoría Ivy Arnars-
dóttir fæddist 13. ágúst 2020
kl. 14.26. Hún vó 3.600 g og var
53 cm löng. Foreldrar hennar
eru Berglind Sif Valdemars-
dóttir og Arnar Gauti Sverris-
son.
Nýr borgari