Morgunblaðið - 08.04.2021, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 08.04.2021, Qupperneq 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 ríður Þorbjörg Valgeirsdóttir, f. 24.8. 1946, og Gunnar Birgir Gunnarsson, f. 9.11. 1943, bændur á Arnarstöðum í Flóa. Stefán Hrafn á fimm börn. 1) Son- ur Stefáns og Hrannar Ingólfs- dóttur, f. 21.4. 1968, markaðsstjóra í Reykjavík, er Andri Már Hagalín, f. 3.9. 1989, ráðgjafi í Reykjavík. Maki hans er Ásdís Kristín Eiðsdóttir, ráðgjafi, f. 24.9. 1990. Dóttir þeirra er Aþena Sif, f. 6.10. 2017. 2) Sonur Stefáns og Hildar Bjarkar Sig- björnsdóttur, f. 7.11. 1972, verkefna- stjóra í Reykjavík, er Jökull Starri Hagalín, f. 10.8. 1995, sálfræðinemi í Reykjavík. 3) Sonur Stefáns og Arn- dísar Kristjánsdóttur, f. 14.4. 1969, lögfræðings í Reykjavík, er Bjartur Steinn Hagalín, f. 30.10. 1999, há- skólanemi í Reykjavík. Stjúpbörn Stefáns og börn Valgerðar eru: 4) Þorbjörg Ásta Leifsdóttir, f. 18.3. 1991, lögmaður í Reykjavík. Maki hennar er Grímur Gunnarsson, f. 22.6. 1990, sálfræðingur. Sonur þeirra er Valgeir Hrafn, f. 1.12. 2018. 5) Þorgeir Bragi Leifsson, f. 23.9. 1999, verslunarmaður í Reykjavík. Stefán Hrafn á þrjú alsystkini. Þau eru Friðfinnur Örn Hagalín, f. 3.7. 1973, kerfisstjóri í Reykjavík, Guðmundur Már Hagalín, f. 19.4. 1977, málmsmiður í Hafnarfirði, og Halldóra Anna Hagalín, f. 3.11. 1981, markaðsstjóri í Reykjavík. Stefán á sömuleiðis einn hálfbróður, Grétar Guðmundsson Hagalín, f. 6.6. 1990, framkvæmdastjóra í Reykjavík, sem faðir hans, Guðmundur, á með seinni eiginkonu sinni, Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur, f. 13.10. 1950, fv. launafulltrúa. Jóhanna Björg átti fjóra syni fyrir, Jóhann, Egil Rúnar, Hjört og Helga Pjetur. Foreldrar Stefáns eru Guð- mundur Hrafnsson Hagalín, f. 25.10. 1949, fv. fjármálastjóri á Spáni, og Sigrún Bára Friðfinnsdóttir, f. 3.1. 1950, þjónustufulltrúi í Reykjavík. Stefán Hrafn Hagalín Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Ísafirði Guðmundur Gíslason Hagalín rithöfundur á Ísafirði Hrafn Guðmundsson Hagalín málmsmiður á Ísafirði Ingibjörg Finnsdóttir verslunarkona á Ísafirði Guðmundur Hrafnsson Hagalín fv. fjármálastjóri á Spáni Finnur Jónsson ráðherra á Ísafirði Auður Sigurgeirsdóttir húsfreyja á Ísafirði Ólafur Kristján Þórðarson útvegsbóndi á Strandseljum í Ögursveit Guðríður Hafliðadóttir húsfreyja á Strandseljum Friðfinnur Ólafsson forstjóri í Reykjavík Halldóra Anna Sigurbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurbjörn Sæmundsson útvegsbóndi í Grímsey Sigrún Ágústa Indriðadóttir húsfreyja í Grímsey Úr frændgarði Stefáns Hrafns Hagalín Sigrún Bára Friðfinnsdóttir þjónustufulltrúi í Reykjavík „ÞETTA ER EKKI RÉTTA VATNSPUMPAN EN ÉG SKAL LÁTA HANA PASSA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að hvíla höfuðið í kjöltunni á henni. ÞAÐ ER TÓMATSÓSU- BLETTUR Á SKYRTUNNI EN ÁÐUR EN ÉG FJARLÆGI HANN PÓSTA ÉG MYND VELKOMIN Í RÚSSÍBANA- REIÐINA SEM JÓN ÁRDAL ER ANNA HEFUR VERIÐ AÐ LEGGJA MIG Í EINELTI! FORELDRAR MÍNIR SEGJA AÐ HÚN HÆTTI EF ÉG HUNSA HANA! JÆJA, ÉG ÆTLA EKKI AÐ HUNSA HANA! ÞETTA ERU GÓÐ RÁÐ! ÞAU HALDA ÞVÍ FRAM AÐ HÚN SÉ SKOTIN Í MÉR! „TAKA SKAL EINA ÁÐUR EN ÞÚ VAKNAR.” Sigurður Bogi Sævarsson, hinngóðkunni blaðamaður á Morg- unblaðinu, orti að lokinni kvöld- göngu í hverfinu sínu, Grafarholti. Grafarholtsins göngubraut, gott er um að fara. Léttir yfir, leysist þraut, lífsins gátum svara. Ingólfur Ómar gaukaði að mér einni vísu svona að gamni sínu: Ljóðaartin lyftir brá ljóma skartar hreinum. Glæður bjartar andans á innst í hjartans leynum. Bragi Vagnsson skrifar mér: „Mér datt í hug að senda þér vísur eftir Guðmund Inga Kristjánsson, skáld frá Kirkjubóli. Hann var nem- andi við héraðsskólann á Laugum í Reykjadal veturinn 1929-1930. Þá var faðir minn, Vagn Sig- tryggsson frá Hallbjarnarstöðum, síðar bóndi í Hriflu, bryti á Laug- um. Um vorið kvaddi Guðmundur hann með þessum vísum“: Fæðan eykur andans magn eins og ljós og hiti. Þetta sá og vissi Vagn, vitur skólabryti. Nemendunum gerði gagn góður sopi og biti. Þú hefur okkur verið, Vagn, vinsamlegur bryti. Ýmsir leggja í orðin magn, einn þó semji og riti. Þakkir okkar þiggðu, Vagn. Þú varst góður bryti. Helgi R. Einarsson segir að á páskum sé eðlilega mikið um guðs- orð í útvarpi, – ekki veiti af að minna okkur öðru hverju á orðið! Orðskrúð Sérann fram er sækinn, sínkur ei á „lækin“. Brosum því er ber hann í bakkafullan lækinn. Guðmundur Viborg kvað: Harmur þjáir muna minn, mæðan sáir tárum, friður dáinn, framtíðin fjölgar gráum hárum. Gömul vísa í lokin: Svona vil ég sjá ’ana, svona horfa á ’ana, svona fríða fá ’ana hjá föðurnum sem á ’ana. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort í Grafarvogi, á Kirkjubóli og víðar Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Hollywood Glow • Örvar kollagenframleiðslu • Gefur samstundis aukinn ljóma Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. HollywoodGlow (Andlitsljómi) er ein vinsælastameðferðin hjá stjörnunum fyrir stóra viðburði.Meðferðin þéttir húð á andliti og hálsi ásamt því að gefa henni samstundis aukinn ljóma. Meðferðin hentar sérlega vel fyrir sérstök tilefni þar sem áhrifin koma strax í ljós.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.