Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 56

Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 þannig að þú getir heyrt hljóð í gegnum myndheiminn. Ég reyndi svo að móta hljóðheiminn þannig að hann falli að verkunum sjálfum og sýningarrýminu þannig að þetta verði nánast samgróið.“ Hann segir töfra vídeós og hljóðmiðilsins mæt- ast í verkinu og það heilli sig. Áður en gengið er inn í innsetn- inguna mæta gestum ljósmyndaverk unnin út frá sama myndheimi, „eins- konar ljósrými þar sem við sjáum leifar af efni og vírum þegar peran hefur gefið upp öndina. Það er logn þarna inni og og hljóðið er ein- angrað. Þetta dulúðlega og eyðilega rými heillar mig og hvernig efnið hefur lent inni í rýminu,“ segir Sigurður. Verkið „Enigma“ í innri salnum vann hann með öðrum hætti. „Ég sett örlítið kolabrot í lofttæmt rými og skannaði ýmsar hliðar þess inn með rafeindasmásjá. Tók svo ein- hver 12, 13 sjónarhorn, setti þau í tölvu og bjó þar til hálftíma langt ferðalagið með færslu fókuspunkta og hreyfingu,“ segir hann. „Kolið sjálft er ekki kveikjan af verkinu heldur var ég að leita eftir ákveðinni áferð og því hvernig ljósið sem raf- eindasmásjáin sendir frá sér vinnur með efnið. Þessi efniviður verður eiginlega kveikjan að ferli þar sem ég tek mér skáldaleyfi og nota bæði hljóð, ljós og hreyfingu til búa til heim sem ég hef ekki komið inn í áður.“ Rafrænt drullumall Í áhrifamiklum verkum sínum leitar Sigurður iðulega að upp- sprettu í heimi tækninnar. „Ég hef smám saman farið að nota vídeóefni sem uppsprettu fyrir innsetning- arnar, eins og hér, og svo hefur rým- ið mikil áhrif á hvaða efni ég vel inn á sýningar,“ segir hann. „Ég er stanslaust að gera tilraunir á vinnustofunni. Er að gera eitthvert rafrænt drullumall.“ Sigurður brosir og bætir við: „Ég er alltaf að skoða eitthvað, í upptökuferli, í tölvunni eða í hljóði, og það liggja bankar af efni hjá mér. En þegar það var ákveðið að ég myndi sýna hér núna þá fannst mér augljóst að þessi flúorpera ætti að fara hér inn! Það var alveg hreint og klárt. Verkin velja sig svolítið sjálf.“ En vinnsla verkanna fyrir sýningu tekur líka langan tíma. „Það er mikil vinna, langt ferli og ferðalag. Mómentið þegar maður grípur eitthvað gerist hratt en undanfarinn og það sem gerist á eft- ir, við að undirbúa verkið fyrir sýn- ingu, er langur prósess.“ Sigurður bætir við að tæknin sé sífellt að þróast en það sé mikilvægt að líta ekki á hana sem eitthvað kalt og ópersónulegt. Þá sé mikilvægt að finna fyrir lýrík í verkunum. „Fyrst við erum farin að nota tölv- ur og tækni jafn mikið og raun er á þá hlýtur hún að þurfa að aðlagast okkur og verða sífellt áhugaverðari. Það eru töfrar tækninnar. Og já, lýr- íkin er lykilatriði.“ Feneyjaverkið aftur af stað –Nú er rúmt ár síðan tilkynnt var að þú yrðir fulltrúi Íslands á næsta Feneyjatvíæringi sem átti að opna nú í vor en var frestað um ár vegna heimsfaraldurs Covid-19. Hver er staðan á því verkefni? „Við vorum komin á fullt við undirbúning sýningarinnar í fyrra- vor en þá var öllu frestað. Ekki bara tvíæringnum heldur öllum heim- inum – og þar með mörgum öðrum verkefnum sem ég var að vinna að. Þá tók ég mér svolítið frí, fyrst Fen- eyjaverkefninu var frestað, en er nú lagður af stað aftur,“ svarar hann. –Verður verkið óbreytt frá því sem hefði verið fyrir frestun? „Ég held ég geti svarað því neit- andi; eitthvað verður eftir af hinu en það mun þróast yfir í eitthvað allt annað.“ Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, sem annast framkvæmd þátttökunnar í Feneyjum, hefur til- kynnt að eftir að hafa á mörgum undanförnum tvíæringum leigt sýn- ingarrými fyrir íslenska skálann úti í bæ, fjarri aðalsýningarsvæðinu og þar með hinni umfangsmiklu fjöl- sóttu sýningarstýrðu samtímasýn- ingu í Arsenale-byggingunni, hafi verið leigður skáli alveg við Arsenale en þar eru líka nokkrir þjóðar- skálanna, á mjög góðum stað, og skoða þeir sem koma í Arsenale þá venjulega líka. Sigurður fagnar þeirri ákvörðun. „Það er ánægjulegt að það sé búið að fastsetja það rými, nú get ég byrjað að hugsa strúktúr verksins inn í það,“ segir hann. „Að ganga að rýminu gefnu gerir verkefnið auð- veldara í skipulagningu. Það fer gríðarlegur fjöldi þarna um – að því gefnu að fólk verði aftur farið að ferðast eftir Covid – sem er auðvitað skemmtilegt.“ –Þú munt kynna Feneyjaverkið síðar en verður það í einhverjum tengslum við þessi verk hér nú í BERG Contemporary? „Það er alltaf framhald hjá mér, frá einu verki til annars, en það verður líka eitthvað allt annað. Þessi verk hér hefðu ekki farið til Feneyja, þau eru á einhverju öðru ferðalagi, en þetta er allt eitt og eitt hænu- skref áfram. En það eru teng- ingar … og þetta verður að sjálf- sögðu vídeóhljóðinnsetning. Sýningin sem ég er að setja upp hér núna mun innspírera mig á einhvern hátt. Það hefur verið mjög gott að vinna að undirbúningnum með Kynningarmiðstöðinni, þar er mjög traust teymi sem heldur utan um alla framkvæmdina við verkið og við Mónica getum einbeitt okkur að samtalinu um inntak verksins.“ Sigurður talar þarna um sýningarstjóra sýningar hans á Fen- eyjatvíæringnum, Mónicu Bello. Hún er spænsk, hefur starfað sem sýningarstjóri í um tvo áratugi en hefur frá 2015 verið stjórnandi og sýningarstjóri Arts at Cern, list- stofnunar sem starfrækt er í tengslum við umfangsmiklar vís- indarannsóknirnar kringum línu- hraðalinn við Cern í Sviss. Sigurður segist hafa kynnst Bello fyrir rúmu ári en hann dvaldi um tíma við stofn- un hennar í Sviss. „Þar er rekið þverfaglegt prógramm þar sem listamenn, vísindamenn og verk- fræðingar blandast. Gestum úr þeim greinum er boðið að dvelja þarna í mislangan tíma og eiga í samtali við fólkið sem starfar þar en það er hátt í 15 þúsund manns. Þarna er ekki bara línuhraðallinn heldur er verið að gera endalaust áhugaverðar til- raunir og rannsóknir og það er gríð- arlega spennandi fyrir listamenn. Við Mónica vinnum mjög vel saman – síðasta árið bara á zoom en ég held aftur til Sviss um leið og hægt er. Mónica er sérfræðingur í tækni og tímatengdum miðlum og það er mik- ill fengur að fá að vinna með mann- eskju sem er alveg á sömu bylgju- lengd og ég við gerð verkanna; þótt við séum oft að tala um afstrakt og flókna hluti þá er þekking hennar svo mikil að hún reynist mér mjög vel.“ Spenntur og auðmjúkur –Hvernig tilfinning er það að vera valinn sem fulltrúi landsins, vera einskonar eins manns landslið í myndlist, eins og þátttakan í Fen- eyjum er? „Það er mikill heiður og mjög spennandi,“ svarar Sigurður og brosir. „Ég upplifi mig ekki endilega einan því það er stór hópur sem kemur að þessu verkefni þótt ég leggi hugmyndina fram. Þetta er allt gert í gjöfulu samtali.“ –En finnurðu fyrir öðruvísi pressu en í öðrum sýningarverkefnum? „Já, þetta er allt stærra í sniðum og er eitthvað sem gerist bara einu sinni á ferlinum svo það fylgir þessu mikil tilhlökkun. Ætli ég mæti ekki bara spenntur og auðmjúkur til leiks í þjóðarskála myndlistarinnar og leggi mig fram um að njóta þess að fá þetta einstaka tækifæri.“ –Vinnan við Feneyjasýninguna mun eflaust taka drjúgan tíma næsta ár en eru fleiri verkefni í píp- unum hjá þér? „Já, nokkrum sýningum og verk- efnum var frestað í fyrra. Ein sýning mun verða opnuð í Danmörku í jan- úar, henni hefði átt að vera að ljúka núna en var frestað um ár. Það er spennandi verkefni en í gömlum bönker frá seinni heimsstyrjöldinni set ég upp átta verk sem ég hef skapað á síðustu árum; það verður stór sýning, sett upp í litlum rýmum. Svo eru önnur verkefni að detta von- andi í gang aftur. Það verður nóg að gera á næstunni,“ segir Sigurður. Morgunblaðið/Árni Sæberg Töfrar tækninnar „Það er mikil vinna, langt ferli og ferðalag,“ segir Sigurður Guðjónsson um gerð verka sinna. Hann er hér við eitt þeirra á sýningunni. Hinir lýrísku töfrar tækninnar - Sýning á nýjum verkum Sigurðar Guðjónssonar verður opin í BERG Contemporary frá og með morgundeginum - Verður fulltrúi Íslands á næsta Feneyjatvíæringi og segir það mikinn heiður VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Með því að beina í verkum sínum sjónum að áður yfirskyggðum stöð- um, þá afhjúpar hann þá en heldur um leið framandi einkennum þeirra, segir spænski sýningarstjórinn Mó- nica Bello um verkin á sýningunni með verkum Sigurðar Guðjónssonar myndlistarmanns sem verður opin í BERG Contemporary galleríinu á Klapparstíg 16 frá og með morgun- deginum, föstudeginum 9. apríl. Sýningin ber einmitt heitið Yfir- skyggðir staðir og eins og Sigurður útskýrir fyrir blaðamanni, sem hittir hann þar við undirbúninginn, þá eru á sýningunni tvö vídeó- og hljóðverk; í fremri salnum er hið tveggja rása „Fluorescent“ – með speglaðri vídeóvörpun sitt á hvorn endavegg- inn, og í innri salnum er vídeóverkið „Enigma“. Titilinn á sýningunni seg- ir hann vera vísun í staði, rými eða hluti sem hann sækir mynd- og hljóðuppsprettuna í, hvort sem það eru hlutir eða efnisheimurinn sem hann er að skoða í hvert skipti. „Þetta eru ekki ósýnilegir staðir heldur staðir sem við erum kannski ekki í daglegu lífi að velta fyrir okk- ur en eru þarna á bak við,“ segir hann. Sigurður er þekktur fyrir áhrifa- miklar vídeó- og hljóðinnsetningar sínar en hann hreppti fyrir eina þeirra Íslensku myndlistarverðlaun- in árið 2018. Hann segist í verkunum vilja búa til heim fyrir áhorfandann að ferðast um, frekar en að búa til einhvern einn ákveðinn hlut eða minnisvarða. Þá hafi hann á undan- förnum árum farið að hugsa sífellt meira um vídeó sem uppsprettu eða efnivið fyrir innsetningar sínar, frekar en línulega upplifun innan myndarinnar. Sjónrænt hljóðverk Verkið „Fluorescent“ hverfist um flúorljósaperu sem Sigurður hefur opnað upp og myndað með makró- linsu. Hljóðheiminn sækir hann í strauminn sem heldur perunni gangandi – en mynd og hljóð hefur hann síðan mótað til að skapa áhrifa- mikið verk sem áhorfandinn gengur inn í og upplifir með sjón, heyrn og í raun líkamanum öllum sem djúp hljóðrásin hríslast um. „Mér fannst verkið falla afskap- lega vel að þessu rými og það má segja að lengd rýmisins vísi í peruna sjálfa,“ segir Sigurður og bætir við að hann hafi talað um þessa innsetn- ingu „sem sjónrænt hljóðverk því til- finningin í verkinu er á vissan hátt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.