Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 57

Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® VIÐ MÆTUM AFTUR 15. APRÍL EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR. Risa Páskaknús á ykkur öll og hlökkum til að hitta alla í bíó aftur. VÆ NT AN LEG Í B ÍÓ VÆNTANLEG Í BÍÓ ÓSKARS- TILNEFNINGA MYNDIRNAR MÆTA AFTUR H eimildarmyndin Aftur heim? í leikstjórn Dagg- ar Mósesdóttur var frumsýnd síðastliðið haust á hátíð íslenskra heimildar- mynda, Skjaldborg, og er nú til leigu á stafrænni efnisveitu Bíós Para- dísar, Heimabíó Paradís. Myndin ein- setur sér að fjalla um heimafæðingar og sögur kvenna í aldanna rás frá sjónarhorni kvikmyndagerð- armannsins. Á tuttugustu öldinni áttu sér stað miklar samfélagsbreytingar sem m.a. gjörbreyttu og „spítalavæddu“ fæð- ingarferlið. Áður fyrr fæddu allar konur á heimili sínu en í Norður- Ameríku samtímans eru keisara- skurðir t.a.m. algengari. Þó að hlut- leysi sé aldrei haldið á lofti innan frá- sagnarinnar er ekki litið svo á að heimafæðingar séu „betri“ leið en önnur tilhögun, fremur er leitast við að veita innsýn í ferlið og varpað er ljósi á ástæður þær sem liggja að baki hjá konum sem kjósa að fæða heima. Myndin hefst á sögumannsrödd Daggar: „Ég var í fjölskylduferð um Vestfirðina þegar ég uppgötvaði að ég væri ólétt,“ og greinir hún í fram- haldi frá fjölskyldusögu sinni með nánari útskýringum, notkun á göml- um ljósmyndum og super-8-myndefni úr einkasafni og símaviðtali við móð- ur sína. Þessi inngangur færir tilgang verksins í orð sem tilraun Daggar til að tengjast kvenleikanum (en í upp- vexti sínum upplifði hún sig sem „strákastelpu“) sem lét hana skoða hvað fengi konur til þess að fæða heima. Fyrst leitar frásögnin til Hafnar í Hornafirði sem er áhugaverður stað- ur í landfræðilegu ljósi en nær hvergi er í þéttbýli lengra í næsta sjúkrahús á landinu. Söguröddin segir að 98% fæðinga á Íslandi eigi sér stað á spít- ala en hins vegar fæði um helmingur kvenna á Höfn heima hjá sér. Vegna dreifbýlis þótti þjóðþrifamál í den að þjálfa ljósmæður um land allt til þess að taka á móti börnum – og örlítinn óð til þessarar mætu stéttar má hér finna. Viðtöl og senur með fyrrver- andi og núverandi ljósmæðrum á Höfn, ásamt skjólstæðingum þeirra, eru athyglisverðar. Miðlun og sam- band myndar og hljóðs er kvikt og lif- andi – en uppstilltum viðtölum er stillt í hóf – og orð kvennanna pöruð saman við landslags- og hversdags- myndir. Smekklegar náttúrusýnir eru gegnumgangandi og tengjast vel við þematísk hugðarefni um náttúru og hið náttúrulega. Má segja að myndin beri á köflum fræðsluvinkil, sem birtist með tölfræðilegum stað- reyndum er sögumannsröddin veitir m.a. í ofangreindri atriðarunu. Í næsta kafla kynnumst við Rögnu og manni hennar í hefðbundinni kynningarrunu. Hjónin kynntust á salsanámskeiði og eiga þrjú börn, þar af tvö sem fæddust heima. Mynd- skeið af fæðingu Rögnu á (þriðja?) barni þeirra kemur manni þó nokkuð að óvörum. Andartakið fær að lifa nokkuð ósnert, sem er í andstöðu við takt verksins til þessa. Kyrrð er yfir móðurinni sem athafnar sig í vatns- laug á stofugólfi heimilis síns, með ljósmóður og sína nánustu sér við hlið. Fyrr en varir er stúlkubarn fætt, allt undir vökulu auga myndavél- arinnar – og hreint út sagt magnað er berja slíkan atburð augum. Að atrið- inu loknu hefur Dögg aftur upp raust sína og fjallar um hugtakið „heima“ – og stingur það óneitanlega í stúf. Styrkur myndarinnar er ótvírætt fágæt nánd sem fæst með viðföngum hennar en alls er fylgst með þremur fæðingum í samfelldri framrás sinni. Þau undraverðu atriði bera klass- íska kosti „flugu-á-vegg“ heimildar- myndagerðar – þar sem raunveru- leikinn fæst beint í æð – á áþreifan- legan, yfirþyrmandi og meira „alvöru“ máta en það sem leiknar kvikmyndir geta nokkuð tímann boðið upp á. Fólkið sem við kynn- umst er alls konar – með frábrugðin fjölskyldumynstur og bakgrunn – og fæðingarnar eru einnig mjög ólíkar innbyrðis. Efnistök mynd- arinnar einskorðast þó ekki við þessar sannleikssýnir, eins og nefnt hefur verið. Persónulegum hugleið- ingum (við og við með fræðslusjón- armiði um fæðingar í alþjóðlegu og innlendu samhengi) er miðlað af sögumannsröddinni og ganga ekki upp sem útgangspunktur. Heimildarmyndagerð sem hefur ferðalag höfundar hennar sem akk- eri er ákveðin tegund greinarinnar. Þátttaka Daggar takmarkast þó við söguröddina, og hefði þurft meiri þátttöku af hennar hálfu til að styrkja efnistökin. Hugleiðingar hennar orka á mann sem viðauki, og þegar verst lætur, eins og eitthvað sem komi mál- inu ekki beinlínis við. Frásagn- araðferðirnar eru of illsamræm- anlegar og einfaldlega eins og nokkrar myndir séu að togast á í sama verki. Tilgangurinn helgar þó meðalið og það er til vitnis um gríð- arlegan kraft fæðingafrásagnanna að þessi ljóður dregur myndina ekki um of niður. Aftur heim? er í samantekt örlítið gölluð en merkileg mynd sem inni- heldur svipmyndir af fæðingum og fólki sem er dýrmætt að fá aðgang að. Fyrir það eiga þátttakendur og að- standendur myndarinnar þakkir og lof skilið. Fluga á vegg Dýrmætt „Aftur heim? er í samantekt örlítið gölluð en merkileg mynd sem inniheldur svipmyndir af fæðingum og fólki sem er dýrmætt að fá aðgang að.“ Heimabíó Paradís Aftur heim? bbbnn Leikstjórn: Dögg Mósesdóttir. Handrit og klipping: Dögg Mósesdóttir og Ragnheiður Gestsdóttir. Ísland, 2020. 72 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.