Morgunblaðið - 08.04.2021, Qupperneq 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Mér fannst upplagt að halda upp
á 50 ára plötuafmæli mitt með því
að gefa út nýja plötu þar sem ein-
vörðungu eru baráttutengdir
söngvar. Mitt líf sem leiksviðs-
listamaður hefur byggst á að fjalla
um samfélagið mitt og þróaðist
fljótlega þannig að ég varð með-
vitaður baráttumaður, án þess að
hafa ætlað það í upphafi,“ segir
söngvaskáldið og aðgerðalistamað-
urinn Hörður Torfason sem á dög-
unum sendi frá sér vínylplötu sem
heitir Dropar. Hörður hefur oft
verið nefndur nestor íslenskra
trúbadúra, eða sá sem ruddi
brautina fyrir þá sem troða upp
einir með gítarinn. Hann ferðaðist
fyrstur slíkra um landið sem
syngjandi skáld. Á hverju hausti
fór hann hringinn um landið og
hélt tónleika með sinni sérstöku
leikrænu framkomu og fjölbreyttu
söngvum og sumir töluðu um hann
sem „Þjóðleikhús landsbyggðar-
innar“.
„Fyrsta platan mín, sem heitir
Syngur eigin lög, kom út í apríl
1971, svo núna 21. apríl verður lið-
in hálf öld frá útgáfu hennar. Nýja
platan, Dropar, er tuttugasta og
fimmta platan mín,“ segir Hörður
sem gefur alltaf sjálfur út sínar
plötur.
„Flesta söngvana á nýju plötunni
samdi ég þegar ég stóð fyrir úti-
fundum á Austurvelli veturinn 2008
til 2009. Þar skóp ég ræðupall fyrir
raddir almennings andspænis
ræðupöllum valdsins. Ég lenti í því
að vera lykilmaður í þeirri baráttu.
Ég vinn þannig að ég tala mikið við
annað fólk, hlusta vel á það, spyr
það álits, hvort sem það er fólk
sem ég hitti á götunni, á kaffi-
húsum, í sundlaugum eða hvar sem
það verður á vegi mínum. Að
hlusta á fólk hjálpaði mér alltaf til
að taka ákvarðanir um framhald
þess sem ég var að gera. Fólk
kemur með hugmyndir alls staðar
frá í öllu sem ég geri. Allt byggist
þetta á samvinnu. Söngvar mínir
eru þannig hughrif frá samtölum
sem ég hef átt við annað fólk, og
auðvitað líka mínum hugsunum.
Það má segja að söngvar mínir séu
lyklar að starfi mínu sem baráttu-
maður og þess vegna vísa ég til
þess með nýju plötunni að dropinn
holar steininn. Frá barnsaldri hef
ég leitað huggunar í að semja
söngva, leyfa hugsunum mínum að
flæða í söngvum. Þegar maður sit-
ur svona á toppnum eins og ég
gerði veturinn sem mótmælin voru,
þá komu þrýstiöfl alls staðar frá.
Ég fann fyrir því að mörgum
fannst ég mega eiga mig. Það tók á
að halda stillingu sinni, að rjúka
ekki fram og rífa kjaft, heldur
halda pollrólegur stefnu sinni og
virða skoðanir annarra.“
Við urðum fyrir uppljómun
Hörður er lærður leikari og
margverðlaunaður baráttumaður.
Hann lék áður fyrr í ýmsum upp-
færslum Þjóðleikhússins, í sjón-
varpi og útvarpi, auk þess leik-
stýrði hann og vann með leik-
félögum víða um land, starfaði
með ýmsum sjálfstæðum leik-
hópum, hélt tónleika og vann að
kvikmynda- og útvarpsgerð hér-
lendis og erlendis.
„Ég lauk námi við leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins fyrir fimm-
tíu og einu ári, en ég var virkur í
ýmiskonar verkefnum áður en ég
útskrifaðist sem leikari, ég var
mikið í dansi, teikningu, söng og
spili. Öll þessi reynsla hefur
gagnast mér vel í starfi mínu sem
listamaður, þetta vinnur vel sam-
an,“ segir Hörður og rifjar upp
þegar hann kom inn í leikhús í
fyrsta sinn, sjö ára strákur.
„Við Kjartan Ragnarsson og
fleira samferðafólk mitt í leikhús-
inu höfum talað um að við urðum
ekki sömu börnin eftir það. Við
urðum fyrir uppljómun og leik-
húsið kom með tilgang í tilveruna.
Ég var svo lánsamur að geta sam-
einað hæfileika mína í leikhúsinu,“
segir Hörður og bætir við að hann
hafi í gegnum leiklistina tekist á
við samfélag sitt til að reyna að
betrumbæta það.
„Það hefur líka alltaf verið
lykillinn í starfi mínu, að vera með
stefnubreytandi inngrip. Ég barð-
ist til dæmis í nokkur ár fyrir
stofnun Samtakanna ’78 fyrir rétt-
indum samkynhneigðra. Það gekk
erfiðlega uns ég áttaði mig á að
veigamikið var líka að ræða við og
hlusta á fólk sem ekki tilheyrði
þeim hópi. Réttur eins er réttur
allra. Auk þess að þegar maður
finnur ekki leiðtoga í lífi sínu
verður maður að gerast hann
sjálfur.
Aftur og aftur kemur þetta
fram hjá mér sem vilji til að grípa
inn í, að reyna að breyta slæmu
ástandi í betra. Standa fyrir vit-
undarvakningu. Ég stend upp til
að breyta en ekki til að taka mér
vald, nema þá tímabundið, því ég
læt mig hverfa þegar settu mark-
miði er náð. Flestöll barátta hefst
með einum og stefnir að sam-
vinnu, virkja fleiri, það er lykil-
atriði,“ segir Hörður og bætir við
að ef við skoðum hvað leikhús sé í
sinni einföldustu mynd, þá sé það
þegar ein manneskja lyftir sér að-
eins ofar hinum og talar, teygir
sig upp úr og ávarpar fjöldann.
Hörður lítur sáttur yfir farinn
veg og segist hafa setið við undan-
farið ár við að gera upp ævi sína.
„Ég á svo mikið af heimildum til
að grúska í, ég á dagbækur mínar
alveg frá því ég var í leiklistar-
skóla og fram á daginn í dag.
Þarna eru allskonar skrif og
greinar og mikið af heimildum,
staðreyndum. Ég dett ofan í þetta
og skrifa upp úr þessu, sem er
skemmtileg vinna og fræðandi. Ég
er að uppfæra bókina mína Tabú
sem kom út 2008. Hún var stytt
og í hana vantar ýmislegt sem ég
þarf að lagfæra og leiðrétta,“ seg-
ir hann að lokum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samvinna „Flestöll barátta hefst með einum og stefnir að samvinnu, virkja fleiri, það er lykilatriði,“ segir Hörður.
Söngvaskáld og aðgerðalistamaður
- Hörður Torfa gefur út baráttusöngva á 50 ára plötuafmæli sínu - Öflugur baráttumaður fyrir
bættu samfélagi og mannréttindum - „Frá barnsaldri hef ég leitað huggunar í að semja söngva“
Rússneska sjónvarpsstöðin 5TV,
arftaki Leningrad Television, birti
fyrirvaralaust á You Tube-rás sinni
um helgina sjónvarpsmynd í tveim-
ur hlutum sem nefnist Khraniteli
og byggist á Hringadróttinssögu
eftir J.R.R. Tolkien. Myndin, sem
upphaflega var sýnd í Sovétríkj-
unum sálugu í kringum 1991 á Len-
ingrad Television, ber þess merki
að hafa verið gerð fyrir lítið fé.
Stuart Heritage, blaðamaður
The Guardian, segist þegar hafa
tekið ástfóstri við myndina þó hann
kunni ekki stakt orð í rússnesku og
telur myndina bestu aðlögun bók-
arinnar til þessa. Hann er ekki einn
um að heillast því tæplega 1,3 millj-
ónir manns höfðu um miðjan dag í
gær séð fyrri hlutann sem er um 50
mínútur að lengd og tæplega 260
þúsunds manns seinni hlutann sem
er rúmur klukkutími að lengd.
„Aðdáendur hafa leitað að þess-
ari mynd í skjalasöfnum í áratugi
án árangurs,“ skrifar rússneskur
útgefandi sem skrifað hefur um að-
laganir á bókum Tolkien. Annar
aðdáandi svarar um hæl: „Mann-
eskjan sem fann þetta loks og kom
upptökunni yfir á stafrænt form
ætti skilið að fá reista af sér styttu.“
Saga Skjáskot úr myndinni af YouTube.
Rússnesk aðlögun
á Tolkien fundin
06.03.–19.09.2021
Sigurhans Vignir
Hið þögla en göfuga mál
www.borgarsogusafn.is
Netverslun
skornir.is
SMÁRALIND
www.skornir.is
Verð 14.995
Stærðir 36-42
Flex&Go
Í skóna er notað hágæða
leður sem og náttúruleg efni,
sem gerir það að verkum að
skórnir falla vel að fætinum
og eru einstaklega þægilegir.