Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 60

Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Lögreglan í Hollandi hefur hand- tekið 58 ára gamlan karlmann sem grunaður er um að hafa stolið mál- verkum eftir Vincent van Gogh og Frans Hals af söfnum í Hollandi í skjóli nætur á síðasta ári. Um er að ræða verkin „Garður prestsseturs- ins í Nuenen að vori“ eftir van Gogh, sem metið er á tæplega 900 milljónir ísl. kr., og „Tveir hlæjandi piltar með könnu af bjór“ eftir Hals, sem metið er á rúma 2,3 millj- arða ísl. kr. Maðurinn var handtek- inn á heimili sínu, en verkin fundust ekki við húsleit. „Við höldum leit- inni ótrauðir áfram. Handtakan er mikilvægt skref í rannsókninni,“ er haft eftir hollensku lögreglunni í frétt The Guardian. Hollenski rannsóknarlögreglumaðurinn Arthur Brand, sem sérhæft hefur sig í endurheimt stolinna lista- verka, fagnar handtökunni á Twitt- er þar sem hann skrifar: „Annar stórsigur fyrir hollensku lögregl- una. Nú flækist málið …“ Stolið Garður prestssetursins í Nuenen að vori eftir van Gogh er eitt stolnu verkanna. Grunaður listaverkaþjófur handtekinn Ítalska kvikmyndaeftirlitið hefur verið lagt niður í núverandi mynd, ef marka má menningarmálaráð- herra landsins, Dario Franceschini. Ráðherrann sendi frá sér yfirlýs- ingu á mánudag þar sem fram kem- ur að eftirlitið hafi verið afnumið en því var komið á árið 1914. Hafa margar þekktar kvikmyndir verið bannaðar af því, m.a. Last Tango in Paris í leikstjórn Ítalans Bernardo Bertolucci. Segir í frétt á vef dag- blaðsins The Guardian að öllum eintökum af henni hafi verið eytt á Ítalíu á sínum tíma nema þremur sem hugsuð voru sem sönnunar- gögn fyrir glæpnum. Franceschini segir eftirlitið hafa komið niður á tjáningarfrelsi lista- manna en nú séu þeir dagar liðnir. Nú sé ekki lengur hægt að banna kvikmyndir eða krefjast þess að ákveðin atriði séu klippt úr þeim. Kvikmyndagerðarmennirnir verði sjálfir að meta hvort myndir þeirra séu bannaðar börnum og setja á þær aldurstakmörk. Þau mörk verði yfirfarin og staðfest af nýrri 49 manna nefnd. Hundruð kvik- mynda hafa fengið falleinkunn hjá ítalska kvikmyndaeftirlitinu í þá rúmu öld sem það hefur starfað og þá einkum vegna atriða er varða stjórnmál, siðferði og trúmál. Í frétt The Guardian kemur fram að frá árinu 1944 hafi 274 ítalskar, 130 bandarískar og 321 kvikmynd frá öðrum löndum verið ritskoð- aðar á Ítalíu. Yfir tíu þúsund kvik- myndum hefur verið breytt með einhverjum hætti og þeirra á meðal eru myndir eftir einn af meisturum kvikmyndalistarinnar, Federico Fellini. Ritskoðaður Federico Fellini er meðal þeirra leikstjóra sem hafa orðið fyrir barðinu á ítalska kvikmyndaeftirlitinu. Kvikmyndaeftirliti gjörbreytt á Ítalíu Myndlistarsýning Ásgeirs Skúla- sonar, Athugið, athugið, hefur ver- ið opnuð í Norr11 að Hverfisgötu 18 í Reykjavík. Á henni sýnir Ás- geir ofin textílverk þar sem hann notar krullubönd sem flestir þekkja og eru notuð utan um gjafapakka. „Hann notar þriggja ása aðferð svo úr verður ísometrískt munstur sem skapar þrívídd á tvívíðum fleti. Munstrið endurtekur sig út allan rammann og skapar sjón- hverfingu. Hin verkin á sýningunni eru veggskúlptúrar gerðir úr teipi sem hann rúllar í óteljandi hringi,“ segir í tilkynningu og að verkin einkennist af þráhyggjukenndri endurtekningu þar sem Ásgeir leitist við að fanga athygli áhorf- andans. Titill sýningarinnar vísi einmitt í þessa þörf til að fanga at- hyglina, hvort sem er í augnablik eða til lengri tíma. Ásgeir fæddist árið 1984 og býr og starfar í Reykjavík. Hann lauk fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík áður en hann hóf nám í Listaháskóla Íslands og útskrif- aðist þaðan 2013 með BA-gráðu í myndlist. Sýningin stendur yfir til 10 maí. Listamaðurinn Ásgeir við tvö verka sinna á sýningunni í Norr11. Þörf fyrir að fanga athygli áhorfandans Ljósmynd/Anna Kristín Óskarsdóttir Myndlistarráð hefur í fyrri úthlutun sjóðsins á þessu ári úthlutað 40 milljónum í styrki til 87 fjölbreyti- legra verkefna á sviði myndlistar. Sjóðnum barst 261 umsókn og sótt var um styrki fyrir alls 274 milljónir. Umsóknum fjölgaði um 44% milli ára. Styrkjunum er skipt í þrjá flokka. Styrkir til sýningarverkefna eru 58 talsins að heildarupphæð 25 millj- ónir. Þá eru veittir sjö undirbúnings- styrkir að upphæð 2,7 milljónir króna og í flokki útgáfu- og rann- sóknarstyrkja eru 22 verkefni sem hljóta styrki að heildarupphæð 12,3 milljónir króna. Hæstu styrkina hljóta Verk- smiðjan á Hjalteyri, 1,5 milljónir kr. fyrir sýningardagskrá 2021 og 1,2 milljónir kr. hlýtur myndlistartvíær- ingurinn Sequences sem verður haldinn í tíunda sinn í október 2021. Tveir hljóta 1 milljón króna í styrk, annars vegar Gjörningaklúbburinn fyrir Flökkusinfóníuna, viðamikið sjón- og tónverk, og Bryndís H. Snæbjörnsdóttir fyrir útgáfu er spannar viðamikið samstarf þeirra Snæbjörnsdóttur/Wilsons síðastliðin 20 ár. Fjölbreytt verkefni hlutu styrki á bilinu 400 til 800 þúsund krónur. Þar á meðal má nefna yfirlitssýningu á verkum Guðnýjar Rósu Ingimars- dóttur í Listasafni Reykjavíkur, sýn- ingu á verkum Hrafnhildar Arnar- dóttur – Shoplifter í Hrútey og Hjólið IV, sýningu í afmælissýning- arröð Myndhöggvarafélagsins sem mun verða sett upp nærri göngu- og hjólastígum í Laugardalnum sum- arið 2021. Haustsýning Hafnar- borgar er styrkt, líka sýning Önnu Hallin, Keðjuverkun, einkasýning Carls Boutards í Ásmundarsafni, gjörningahátíð í Hafnarhúsi – Lista- safni Reykjavíkur, sumarsýning í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og röð þriggja sýninga sem verða settar upp á Borgarfirði eystri í sumar. Ólafur Ólafsson og Liba Castro fá styrk vegna gerð vídeóverks fyrir sýninguna Töfrafund í Hafnarborg og Nýlistasafnið fær þrjá styrki vegna mismunandi sýninga og við- burða sem verða í Marshall-húsinu á árinu. Þá má geta þess að Hallgerður Hallgrímsdóttir hlýtur styrk fyrir bókverkið Dauðadjúpar sprungur, Steinar Örn Erluson fyrir útgáfu bókarinnar Ritmál ljóssins sem tek- ur á sögu ljósmyndunar, veittur er styrkur vegna útgáfu bókar um feril Gunnars Arnar myndlistarmanns, Orri Jónsson fær styrk vegna væntanlegrar ljósmyndabókar og Elísabet Alma Svendsen fær styrk vegna Listval – þættir um myndlist. Hlutverk myndlistarsjóðs er að efla íslenska myndlist með fjárhags- legum stuðningi og stuðla þannig að framgangi listsköpunar, kynningu og aukinni þekkingu á íslenskri myndlist. Úthlutunarnefndir voru tvær og skiptu með sér umsóknum, þær skipuðu Dagný Heiðdal, Hann- es Sigurðsson, Jón Bergmann Kjart- ansson Ransú, Elín Hansdóttir, Íris Stefánsdóttir og Unndór Egill Jónsson. Fjölbreytileg myndlistar- verkefni hljóta styrki - 40 milljónum kr. úthlutað til 87 verkefna Morgunblaðið/Einar Falur Í Verksmiðjunni Sýningar Verk- smiðjunnar á Hjalteyri fá styrk. Morgunblaðið/Einar Falur Gjörningaklúbburinn Stöllurnar fá styrk vegna Flökkusinfóníunnar. Morgunblaðið/Kristinn Útgáfa Bryndís Snæbjörnsdóttir hlýtur styrk vegna bókarútgáfu. Morgunblaðið/Einar Falur Sýning Guðný Rósa fær styrk vegna sýningar á Kjarvalsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.