Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 61

Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 „Lifi ég í alvörunni í heimi þar sem Ta-Nehisi Coates hefur skrifað Captain America-teiknimyndaseríu þar sem hugmyndir mínar eru skrumskældar og gerðar að lífs- speki illmennisins Red Skull?“ Svona tístir kanadíski sálfræðingurinn Jor- dan Peterson á Twitter. Í nýjustu teiknimyndabókinni um Captain America, sem verðlaunahöf- undurinn Ta-Nehisi Coates samdi, má sjá Red Skull hvetja unga karl- menn til að berjast gegn „femínista- gildrunni“ og öðrum málum og mál- efnum sem orðið hafa skotspónn Peterson á síðustu árum. Í frétt um málið í The Guardian er rifjað upp að Peterson hafi löngum verið í miklum metum hjá ungum, hvítum karlmönnum sem finnst þeir hlið- arsettir í samfélaginu og kenna fem- ínistum um ófarir sínar. Í teikni- myndabókinni hæðist Red Skull að Captain America fyrir að reyna að höfða til fólks með því að tala um drauma. „Hann skilur ekki að það eru ekki draumar sem fá menn til aðgerða heldur martraðir,“ er Red Skull látinn segja í bókinni. Breska dagblaðið rifjar upp að í valdatíð Donalds Trump hafi ónafn- greindur Twitter-notandi birt myndir þar sem eftirfarandi orð Trumps voru lögð í munn Red Skull: „Við munum algjörlega tortíma og afmá efnahag Tyrklands (ég hef get það áður!)“ og „Ég vil aftur taka upp vatnspyntingar og pyntingar sem eru ennþá verri en þær.“ Illmenni Red Skull hefur árum saman verið erkióvinur hetjunnar Captain America. Peterson ekki sáttur við Marvel Fyrirkomulag afhendingar Eyrar- rósarinnar, viðurkenningarinnar sem veitt er framúrskarandi menn- ingarverkefni utan höfuðborgar- svæðisins, verður með breyttu sniði næst þegar hún verður afhent. Allt frá árinu 2005 hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Ice- landair (áður Flugfélag Íslands) staðið saman að Eyrarrósinni. Fyrirkomulag viðurkenningarinnar hefur verið með svipuðu sniði allt frá upphafi, en við endurnýjun sam- starfssamnings í ár var ákveðið að endurskoða skipulagið með það í huga að styrkja Eyrarrósina enn frekar sem raunverulegan bakhjarl lista- og menningarlífs utan höfuð- borgarsvæðisins. Samráð var haft við menningarfulltrúa á landsbyggð- inni í því ferli. Gert hærra undir höfði Helstu breytingar á fyrirkomulagi verðlaunanna, að sögn Vigdísar Jak- obsdóttur, listræns stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík, eru að Eyrarrósin verður hér eftir veitt annað hvert ár í stað hvers árs eins og verið hefur. Með því að veita við- urkenninguna annað hvert ár telja aðstandendur hennar skapast svig- rúm til þess að gera hverjum verð- launahafa mun hærra undir höfði en verið hefur. Viðurkenningin verður sem fyrr veitt verkefni sem hefur fest sig ríkulega í sessi, er vel rekið, með skýra framtíðarsýn og hefur sannarlega listrænt gildi og slag- kraft út í samfélagið. Eyrarrósarhafa verður boðið að standa að veglegum viðburði á Listahátíð 2022. Boðinu fylgir fjár- hagslegur stuðningur til framleiðslu viðburðarins og framkvæmdar. Við- burðurinn verður hluti af aðal- dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og kynntur sem slíkur. Þá verður vand- að, stutt heimildamyndband fram- leitt um Eyrarrósarhafann. Verðlaunafé til Eyrarrósarhafa verður aukið úr 2 milljónum kr í 2,5 milljónir kr. Einnig verða veitt þrenn 750 þúsund króna hvatningar- verðlaun til nýrri verkefna.Hvatn- ingarverðlaunin eru veitt verkefnum sem eru yngri en þriggja ára en þykja sannarlega vera nýbreytni og/ eða viðbót við lista- og menningarlíf svæðisins. Fyrir utan verðlaunaféð fá verkefnin 100 þúsund króna gjafa- bréf frá Icelandair. Fjölbreyttir verðlaunahafar Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2021 og rennur um- sóknarfrestur út 26. apríl. Nánari upplýsingar má finna á vef Listahá- tíðar í Reykjavík. Hefð er fyrir því að veita verð- launin í heimabyggð síðasta Eyrar- rósarhafa og þannig verður það áfram. Verðlaunaafhending mun nú fara fram í maí í stað febrúar áður. Þar sem heimildamyndahátíðin Skjaldborg hlaut viðurkenninguna síðast fer afhendingin fram á Pat- reksfirði í ár. Frú Eliza Reid, vernd- ari Eyrarrósarinnar, afhendir verð- launin. Þjóðlagahátíð á Siglufirði hlaut Eyrarrósina í fyrsta skipti sem hún var afhent. Aðrir viðburðir, stofn- anir og hátíðir sem hafa hlotið hana eru LungA-hátíðin, Strandagaldur á Hólmavík, Rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði – Aldrei fór ég suður, Land- námssetrið í Borgarnesi, Ferskir vindar í Garði, List í ljósi á Seyðis- firði, Eistnaflug í Neskaupstað, Verksmiðjan á Hjalteyri, Frystiklef- inn á Rifi, Áhöfnin á Húna, Skaftfell – Miðstöð myndlistar á Austurlandi, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sumartónleikar í Skálholti og Tón- listarhátíðin Bræðslan. Ljósmynd/Patrik Ontkovic Nýjasti handhafinn Frá heimildamyndahátíðinni Skjaldborg á Patreks- firði sem hlaut Eyrarrósina síðast. Næsta viðurkenning verður afhent þar. Eyrarrósin afhent annað hvert ár - Verðlaunahafi tekur þátt í Listahátíð Konunglegu óperunni í Stokkhólmi hefur verið lokað eftir að a.m.k. 15 starfsmenn greindust með virk Co- vid-19-smit. Frá þessu greinir Dagens Nyheter. Aðeins eru nokkr- ar vikur síðan sænska vinnueftir- litið yfirfór viðbragðsáætlun óperunnar í smitvörnum. Stjórnendur óperunnar hafa ákveðið að loka húsinu og hætta allri starfsemi í að minnsta kosti viku. „Smitin eru dreifð milli nokk- urra deilda. Ekki er talið að um hópsmit sé að ræða þar sem starfs- fólkið sem veikst hefur hafði ekki verið í samskiptum hvert við annað. Við ákváðum að loka óperunni til að freista þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu,“ segir Birgitta Svenden, framkvæmdastjóri óperunnar, og tekur fram að enn sé enginn í hópi starfsmanna það al- varlega veikur að komið hafi til innlagnar viðkomandi á spítala. Óperan Konunglega óperan í Stokkhólmi. Mynd fengin af vef óperunnar. 15 starfsmenn Covid-19-smitaðir Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Tímapantanir í síma 565 2885 Slitgigtarspelkur fyrir hné Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Aðalfundur Geðhjálpar 2o21 Aðalfundur Landssamtakanna Geðhjálpar verður haldinn í Valsheimilinu Hlíðarenda (salur á 2. hæð) Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf, m.a. kosning nýrra fulltrúa í stjórn og umfjöllun um ársskýrslu og ársreikning samtakanna. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Virðingarfyllst, stjórn Geðhjálpar fimmtudagurinn 8. maí kl. 14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.