Morgunblaðið - 09.04.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel
Sími 555 3100 www.donna.is
dreifingHeildsölu
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
fjölgi óðum þessa dagana. Talsvert
sé einnig komið af tjaldi og tildru,
sem komi snemma.
Hrafnar sem eru ýmsu vanir í
veðrum vetrarins eru orpnir og eru
þeir venjulega fyrstir hinna hefð-
bundnu staðfugla.
óvenjusnemma í ár eða á páskadag,
rúmum tveimur vikum fyrr en í
meðalári. Af öðrum farfuglum sem
sést hafi til undanfarna daga megi
nefna stelk, jaðrakan, rauðbrysting,
sandlóu, skúm og þúfutittling fyrir
utan vorboðann heiðlóuna, en henni
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Töluvert hefur komið af farfuglum
til landsins undanfarna daga. Vetur-
inn hefur tekið á móti þeim, en ekki
vorið sem fyrir nokkru var farið að
láta á sér kræla. Fuglarnir eru oft
aðframkomnir eftir langt og erfitt
farflug og hefur því mikið að segja
að þeir komist í æti, til að ná aftur
kröftum sínum.
Sumir nota silungafóður
Jóhann Óli Hilmarsson, fugla-
fræðingur á Stokkseyri, segir að
margir, sérstaklega skógarþrestir,
en einnig hrossagaukar og fleiri,
leiti í garða eftir æti. „Fjaran er
matarkista og þangað sækir fjöldi
fugla í hretum. Skógarþrestir þiggja
gjarnan bita af borði manna, og má
gefa þeim epli, matarafganga og
jafnvel silungafóður,“ segir Jóhann
Óli.
Þær upplýsingar fengust hjá Fóð-
urblöndunni í gær að fólk hefði
keypt talsvert af silungafóðri undan-
farið til að gefa fuglunum. Um væri
að ræða litlar kúlur í 30 kílóa pakkn-
ingum. Fóðrið þyki næringar- og
orkuríkt og virtist gefa góða raun
fyrir fuglana. Það er ríkt af fiski-
mjöli og lýsi auk ýmissa jurtaafurða.
Fjölgar með hverjum deginum
Um komu farfuglanna segir Jó-
hann Óli að á öðrum í páskum hafi
hrossagaukar hellst inn í sunnan-
verðum Flóanum. Stór skógar-
þrastaganga hafi líka komið á mánu-
dag og þriðjudag í hagstæðum
faráttum. Talsvert flug hafi verið á
gæsum, þar á meðal margæsum,
álftum og öndum og nefnir Jóhann
Óli að brandandahópar hafi sést við
Eyrarbakka. Sanderlur hafi sést
Þurfa að komast í æti
til að safna kröftum
- Farfuglarnir oft aðframkomnir eftir erfitt farflug
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Vetur Sex tegundir vaðfugla í hreti í Eyrarbakkafjöru fyrir nokkrum árum:
Tjaldur, heiðlóa, sandlóa, sendlingur, stelkur og tildra. Fjaran er matarkista.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Einstaklingum verður á ný heim-
ilað samkvæmt frumvarpi Bjarna
Benediktssonar, fjármála- og efna-
hagsráðherra, að taka út allt að 12
milljónir kr. af séreignarsparnaði
sínum allt til næstu áramóta. Fyrri
heimild til út-
tektar séreignar-
sparnaðar, sem
ákveðin var í
fyrra vegna kór-
ónuveirufarald-
ursins, rann út 1.
janúar sl.
Frumvarpi
fjármálaráð-
herra um frekari
aðgerðir til að
mæta áframhaldandi óvissu um
efnahagsleg áhrif faraldursins hef-
ur verið dreift á Alþingi. Þar er
einnig lagt til að launagreiðendum
verði gefinn kostur á frekari fresti
til að standa skil á staðgreiðslu af
launum og tryggingagjaldi með
greiðsludreifingu og geti sótt um
að dreifa þeim greiðslum í 48
jafnháar mánaðarlegar greiðslur,
að uppfylltum tilteknum skilyrð-
um.
Í fyrra nýttu margir launagreið-
endur sér úrræðið að fresta
greiðslu staðgreiðslu og trygginga-
gjalds en alls sóttu 785 lögaðilar og
46 einstaklingar í atvinnurekstri
um það og var 8,4 milljörðum
frestað vegna þessa í fyrra.
„Áætlað er að margir muni nýta
sér úrræði til frekari frestunar og
fjárhæðin í heild muni nema á
bilinu 6,5-7,5 milljörðum kr.,“ segir
í greinargerð.
Í fyrra sóttu 18.386 einstakling-
ar um heimild til að taka út sér-
eignarsparnað og höfðu 25,5 millj-
arðar verið greiddir út í febrúar sl.
Fram kemur að eignir séreignar-
sjóða námu 842 milljörðum kr. í
lok síðasta árs og nema því úttekt-
ir vegna úrræðisins 3% af heildar-
eignum þeirra.
Greiða þarf tekjuskatt og útsvar
af úttektunum og kemur fram að
gera megi ráð fyrir að skatt-
greiðslur á síðasta ári hafi verið
liðlega níu milljarðar kr. Þar af
runnu 5,6 milljarðar í ríkissjóð.
Geta tekið út allt að 12 milljónum
- Úttekt séreignarsparnaðar verði heimil á ný út allt árið - Launagreiðendur fái frekari greiðsludreif-
ingu samkvæmt frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra vegna faraldursins og áframhaldandi óvissu
Bjarni
Benediktsson
Lagt er til í frumvarpi fjármála-
og efnahagsráðherra að sjóð-
félögum lífeyrissjóða verði heim-
iluð skattfrjáls ráðstöfun til-
greindrar séreignar af lífeyris-
sparnaði, eða allt að 3,5%, til
kaupa á fyrsta íbúðarhúsnæði.
Þessi heimild kemur til viðbótar
við gildandi úrræði um ráðstöfun
séreignarsparnaðar. Frumvarpinu
um breytingar á lífeyrissjóða-
lögunum hefur verið dreift á Al-
þingi en með því á að lögfesta
hækkun lágmarksiðgjalds til líf-
eyrissjóða í 15,5% í stað 12% og
þá breytingu sem ASÍ og SA
sömdu um 2016, að sjóðfélögum
sé heimilt að ráðstafa hækkun
lágmarksiðgjalds til tilgreindrar
séreignar. Fram kemur að 77-
100% launagreiðenda, mismun-
andi eftir sjóðum, greiða nú þegar
11,5% mótframlag í lífeyrissjóð á
móti 4% iðgjaldi launþega.
Tilgreind séreign í íbúðakaup
LÖGFESTA Á 15,5% LÁGMARKSIÐGJALD Í LÍFEYRISSJÓÐI
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sparnaður Almenningi gefst nú kostur á að taka út allt að 12 milljónir
króna af séreignarsparnaði sínum til áramóta, samkvæmt nýju frumvarpi.
Ekki er útilokað að fleiri gos-
sprungur geti myndast á svæðinu
við gosstöðvarnar í Geldingadöl-
um. Þetta er mat vísindaráðs al-
mannavarna sem fundaði í gær.
Í fréttatilkynningu almanna-
varna segir að nýjar sprungur geti
opnast með litlum fyrirvara þar
sem allar mælingar sýni að kvika
liggi grunnt undir yfirborði alls
gossvæðisins. Einnig segir að
hraunflæði virðist hafa aukist í
takt við opnun tveggja nýrra
sprungna á svæðinu.
Björgunarsveitir á suðvestur-
horninu og úr Árnessýslu voru
kallaðar út í gærkvöldi til leitar að
tveimur göngumönnum sem voru
týndir við gosstöðvarnar á Reykja-
nesskaga. Heimildir Morgunblaðs-
ins hermdu að mennirnir væru er-
lendir ferðamenn. Þeir komust af
sjálfsdáðum aftur að upphafi
gönguleiðar um svæðið og hittu
þar björgunarsveitarmenn sem
voru að búa sig undir leit að þeim.
Hætta á svæðinu
getur skapast hratt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldgos Varað er við því að sprung-
ur geti opnast með litlum fyrirvara.