Morgunblaðið - 09.04.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér finnst þetta skrýtin forræðis-
hyggja. Þarna er verið að ráðskast
með það hvernig fólk á að hafa reit-
ina sína,“ segir Guðmundur Heiðar
Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó
og íbúi í Vogabyggð.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær hefur Reykjavíkur-
borg hafnað ósk ÞG íbúða um að
felld verði niður kvöð í skipulagi hins
nýja hverfis Vogabyggðar um
gróðurþekjur og berjarunna innan
sérafnotareita/einkagarða íbúða í
hverfinu. Guðmundur Heiðar vakti
máls á þessum skilmálum borgarinn-
ar í Facebook-færslu í byrjun árs og
vöktu fréttir af málinu mikla athygli.
Morgunblaðið hefur heyrt af fleiri
íbúum í hverfinu sem eru ósáttir
vegna þessa.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Guðmundur Heiðar að hann sé
ósammála því sem borgin hafi lýst
yfir að ekki sé um íþyngjandi skil-
mála að ræða. Umræddur grasblett-
ur verði pínulítill og nýtist sama og
ekkert. Rök um heildarútlit haldi að
hans mati ekki því enginn muni sjá
umræddan blett og runna nema íbú-
arnir sjálfir þar eð garðurinn sé girt-
ur af. Ekki hefur enn verið lagt gras
eða settur niður berjarunni hjá Guð-
mundi og fjölskyldu hans og hann
kveðst ekki vita hver lending í mál-
inu verður. „Við ætlum bara að melta
þetta og sjá hvaða möguleikar eru í
stöðunni þegar fram líða stundir.“
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri
ÞG verktaka, segir í samtali við
Morgunblaðið að beiðni fyrirtækis-
ins hafi verið sett fram í samræmi
við óskir viðskiptavina þess. Fyrir-
tækið vilji mæta óskum kaupenda og
skila eins góðri vöru og hægt er til
þeirra.
„Persónulega finnst mér þetta
einkennileg kvöð. Maður getur auð-
vitað ekki annað en velt því fyrir sér
hvað skipulagsyfirvöldum gengur til.
Ef fólk kaupir sér íbúð og má ekki
fjarlægja berjarunna eða hafa pall-
inn sinn eins og það kýs sjálft, hvað
kemur þá næst? Ætla yfirvöld að
skipa fyrir um lágmarksfjölda á
pottaplöntum inni hjá fólki eða hvað
á að vera í matinn á þriðjudögum?
Mér finnst þetta frekar einkennilegt
inngrip gagnvart íbúum.“
Þorvaldur segir að fyrsti áfangi
uppbyggingar fyrirtækisins í Voga-
byggð, tæplega 80 íbúðir, sé fullfrá-
genginn og búið sé að skila öllum
íbúðum. Framkvæmdir standa yfir
við annan áfanga með 165 íbúðum og
stefnt sé að því að skila fyrstu íbúð-
um þar snemma á næsta ári. Fram-
kvæmdir eru hafnar við þriðja
áfanga og verða íbúðir afhentar í
kringum áramótin 2022-2023.
„Þetta gengur mjög vel og Voga-
byggðin er frábært íbúðasvæði en
við höfum haft áhyggjur af frágangi
Reykjavíkurborgar. Áhyggjur okkar
lúta að skilum og frágangi gatna og
veitna, götulýsingu, frágangi á borg-
arlandinu, uppbyggingu skóla og
fleiru. Við höfum sent Reykjavíkur-
borg bréf og lýst áhyggjum af því
hversu hægt þetta gengur og óskað
eftir úrbótum og samtali en ekki
fengið nein svör. Þetta verður stórt
og glæsilegt íbúðahverfi og það er
mjög mikilvægt að borgin standi
sína plikt hvað varðar samnings-
bundna og nauðsynlega uppbygg-
ingu á svæðinu.“
Furða sig á „inngripi“
yfirvalda í Vogabyggð
- Kvöð um gróður á lóð - Áhyggjur af frágangi borgarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Vogabyggð Uppbygging hverfisins gengur vel og verður það „frábært íbúðasvæði“ þegar fram líða stundir.
Guðmundur Heiðar
Helgason
Þorvaldur
Gissurarson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Hér hefur í áratugi verið leiksvæði
barna, sleðabrekka á veturna og
ævintýrahóll á sumrin. Börnin
renna sér ekki
meira hérna,“
segir Agnar
Hansson, einn
íbúa við svo-
nefndan Sjó-
mannaskólareit í
Reykjavík.
Eins og fram
kom í Morgun-
blaðinu í gær hóf-
ust framkvæmdir
á reitnum í vikunni en þar er fyrir-
huguð bygging tveggja þriggja
hæða fjölbýlishúsa á vegum Leigu-
félags aldraðra, alls 51 íbúð.
Þessi áform hafa verið umdeild og
hafa íbúar í nágrenninu mótmælt
hástöfum, meðal annars með kæru
til umboðsmanns Alþingis. Agnar
segir í samtali við Morgunblaðið að
sárt sé upp á að horfa hvernig borg-
aryfirvöld hafi staðið að þessu máli.
Ítrekuð mótmæli íbúa í nágrenni
græna svæðisins við Sjómannaskól-
ann og við Saltfiskmóann hafi verið
virt að vettugi.
Hóllinn verndarsvæði
„Fólki sárnar. Ekkert samráð
hefur verið við íbúana. Allt ferlið
virðist vera sýndarmennska og ég
vil að fólk hafi það í huga þegar
gengið verður til kosninga. Minja-
stofnun og fleiri aðilar hafa sem bet-
ur fer aðeins náð að hemja borgina
og fyrir vikið var vatnshóllinn skil-
greindur sem verndarsvæði. En svo
er auðvitað skorið alveg við rætur
þess svæðis,“ segir hann.
Agnar segir að fólk geti kannski
ekki átt heimtingu á grænu svæði
við hús sín en borgaryfirvöld hefðu í
það minnsta átt að sýna sóma í að
það sem byggt verður væri í sam-
ræmi við byggingar sem þarna eru
fyrir. „Það á að skella niður blokk-
um hér. Af hverju þarf að gjör-
breyta götumyndinni? Í venjulegu
árferði, þegar skólar eru opnir og
fullsetnir, er hverfið fullt af nem-
endum og öll bílastæði troðfull. Við
þessar nýbyggingar á ekki að vera
eitt einasta bílastæði því menn
segja að það séu svo mörg stæði í
götunni. Framkvæmdin skal vera
eins og borgarstjóri vill hafa hana,
alveg sama hvað fólkinu finnst. Ég
held að hann hafi aðeins misskilið
sitt hlutverk.“
Börnin mótmæla
Síðdegis í gær komu nemendur í
Háteigsskóla saman við reitinn í
mótmælastöðu þar sem byrjað er að
grafa. Hafa börnin í hverfinu verið
mjög ósátt við þessa breytingu á
svæðinu og möguleikum þeirra til
að leika sér og renna sér í hólnum.
Telur allt ferlið sýndarmennsku
- Nágrannar óánægðir með framkvæmdir á Sjómannaskólareit - Telja að ekkert samráð hafi verið
haft við íbúa - Gjörbreytt götumynd - Gengið á leiksvæði - „Börnin renna sér ekki meira hérna“
Ljósmynd/Bergrún Tinna
Mótmæli Nemendur Háteigsskóla tóku sér stöðu við framkvæmdirnar sem
hafnar eru á Sjómannaskólareitnum, þar sem byggja á tvö fjölbýlishús.
Agnar Hansson
Guðmundur Helgi Þórarinsson, for-
maður VM, Félags vélstjóra og
málmtæknimanna, segir að staðan í
yfirstandandi kjaraviðræðum við
Samtök fyrir-
tækja í sjávar-
útvegi (SFS) sé
þung. VM er í
samfloti í kjara-
viðræðunum með
Sjómanna- og vél-
stjórafélagi
Grindavíkur og
Sjómannafélagi
Íslands og hafa
þau öll vísað
kjaradeilum sín-
um við SA og SFS til ríkissáttasemj-
ara.
„Við töldum okkur ekki fá nein svör
þannig að við ætlum okkur ekki að
vera lengi í einhverju kaffispjalli nið-
ur í SFS,“ segir Guðmundur um
ástæður þess að félögin ákváðu að
vísa deilunni til sáttameðferðar.
Kjaradeilur Sjómannasambands
Íslands og Félags skipstjórnarmanna
við útvegsmenn hafa verið á borði
sáttasemjara frá því í febrúar og eru
nú öll stéttarfélög sjómanna komin
með kjaradeilur sínar í sáttameðferð
hjá ríkissáttasemjara. Boðað er til
sáttafundar í deilu SÍ og FS við SA og
SFS í dag.
„Síðast tók nokkur ár að ná samn-
ingi sem endaði með sjö vikna verk-
falli 2017,“ rifjar Guðmundur upp.
Hann segir að menn hafi ekki margra
ára biðlund en kjarasamningarnir
losnuðu í árslok 2019 og viðræður
komust ekki í almennilegan gang fyrr
en í lok síðasta árs að sögn hans.
„Við erum búnir að eiga nokkuð
marga fundi, þetta byrjaði ágætlega
en við höfum ekki náð að klára eitt
eða neitt. Þetta virðist farið í ein-
hverja störukeppni, þannig að okkur
fannst réttast að hafa þetta undir
verkstjórn sáttasemjara,“ segir hann.
Fái sama lífeyrisrétt og aðrir
„Við erum með mjög fáar kröfur og
teljum þær mjög sanngjarnar. Eitt af
því sem við viljum er að okkar menn
fái sömu lífeyrisréttindi og annað fólk
í landinu. Þeir borga núna bara 8% í
lífeyrissjóð þegar önnur fyrirtæki
borga 11,5% og svo vantar okkur
meira gagnsæi á fiskverð. Þetta eru
að okkar mati mjög skýr atriði. Við
höfum ekki fengið nein hrein svör við
neinu. Það er alltaf verið að hugsa
eitthvað,“ segir hann.
omfr@mbl.is
„Höfum ekki feng-
ið nein hrein svör“
- Deilur sjómanna á borði sáttasemjara
Guðmundur Helgi
Þórarinsson