Morgunblaðið - 09.04.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.04.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021 Mynd af flaki flug- vélarinnar Hot Stuff Í myndatexta með frétt á blaðsíðu 22 í Morgunblaðinu í gær var sagt að myndin væri af flaki flugvél- arinnar „Hot Stuff“, sem Frank M. Andrews, hershöfðingi, fórst með á Kasti við Fagradalsfjall 1943. Myndin og upplýsingar í mynda- texta voru sóttar í grein í Morgun- blaðinu í desember 1963. Blaðinu hafa borist ábendingar um að myndin sé af flaki stórs fjögurra hreyfla bresks flugbáts af gerðinni Short Sunderland sem fórst við Langhól í Fagradalsfjalli 1941. Rangt nafn í myndatexta Rangt var farið með nafn Bjarna Hafþórs Helgasonar í myndatexta með frétt um afhendingu styrks til Parkinsonsamtakanna í Morgun- blaðinu í gær. Er beðist velvirð- ingar á því. LEIÐRÉTT Ljósmynd/Bandaríski herinn Fagradalsfjall Flak flugvélarinnar Hot Stuff. 9. apríl 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.57 Sterlingspund 174.73 Kanadadalur 100.39 Dönsk króna 20.225 Norsk króna 14.957 Sænsk króna 14.692 Svissn. franki 136.19 Japanskt jen 1.1519 SDR 180.29 Evra 150.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.7927 Hrávöruverð Gull 1736.0 ($/únsa) Ál 2247.0 ($/tonn) LME Hráolía 62.6 ($/fatið) Brent BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íslenska netöryggisfyrirtækið AwareGO hefur samið við matvöru- risann Mondelêz International um netöryggisþjálfun starfsfólks hans um heim allan. Mondelêz fram- leiðir m.a. Toble- rone, Oreo, Cad- bury- og Milka-súkkulaði og er einn stærsti framleiðandi heims á sínu sviði með um 80 þús- und starfsmenn. Ragnar Sig- urðsson, fram- kvæmdastjóri AwareGO, stofnaði fyrirtækið árið 2007 ásamt Helgu Björgu Steinþórsdóttur. Mistök geta verið dýrkeypt Ragnar segir lausnir AwareGO efla netöryggi fyrirtækja. „Mesta áhættan við tölvukerfi er nú fólgin í mistökum starfsfólks en þau eiga hlut að máli í 90% af tölvu- innbrotum. Það er verið að plata fólk. Við framleiðum stuttar auglýsingar til að markaðssetja öryggismál innan fyrirtækja en þá eru meiri líkur á að starfsfólkið muni hvernig á að átta sig á hættunum þegar þar að kemur,“ segir Ragnar og útskýrir hvernig nálgun AwareGO hafi breyst með ár- unum. Fyrsti viðskiptavinurinn hafi verið auglýsingastofa í Bretlandi. „Við gerðum 12 þætti á árunum 2007 og 2008 og renndum þá svolítið blint í sjóinn. Fyrsta útgáfan var leiknir þættir – við vorum að reyna að vera The Office fyrir öryggismál – sem reyndust vera of langir. Þá spurðu viðskiptavinir okkar í Banda- ríkjunum hvers vegna við værum að- eins með hvíta leikara. Það var eitt- hvað sem við höfðum ekki hugleitt hér á Íslandi. Við breyttum síðan um stefnu árið 2014 og fórum þá úr sjón- varpsþáttaforminu í auglýsinga- formið. Þá gátum við snúið okkur aft- ur til sömu aðila og við höfðum áður rætt við og bent þeim á að nú værum við komin með lausnina sem þeir hefðu verið að bíða eftir,“ segir Ragn- ar. Markmiðið sé að framleiða hnit- miðað og eftirminnilegt efni. Skera sig úr á markaðnum Ragnar segir AwareGO hafa sér- stöðu á þessum markaði. „Við erum einstök hvað snertir efn- istök. Flestir samkeppnisaðilar okkar eru með teiknimyndir og fáir fram- leiða svona leikið efni. Síðan er kennsluhugbúnaðurinn okkar í fremstu röð í samanburði við sam- keppnisaðila,“ segir Ragnar. Að hans sögn er hægt að dreifa efn- inu á einfaldan hátt með kennslu- hugbúnaðinum frá AwareGO. Jafn- framt sé hægt að mæla þátttöku en flestir viðskiptavinir vilji mæla árang- urinn af þjálfuninni með enn ná- kvæmari hætti. „Myndi starfsfólkið falla fyrir tölvupóstasvindli? Myndi það deila lykilorðum eða hleypa ókunnugum inn í fyrirtækið? Við er- um sem stendur að þróa hugbúnaðinn okkar frekar til að geta gert þessar mælingar. Það eru geysileg verðmæti fólgin í því.“ Ragnar segir aðspurður að lausn fyrirtækisins sé því miklu háþróaðri en til dæmis að framleiða myndband og dreifa því á YouTube. „Við vorum með stóra viðskiptavini áður en við þróuðum hugbúnaðinn – General Electric, Barclays banka, Credit Suisse og fleiri – og við afhent- um þeim myndbandsskrár en höfðum síðan ekki yfirsýn yfir hvernig þjálf- unin var framkvæmd,“ segir Ragnar. Sá tími sé nú að baki. AwareGO framleiðir sem áður seg- ir stutt netöryggismyndbönd og hef- ur jafnframt þróað kennsluhugbúnað sem á að hámarka árangur fræðslu- herferða sem kenna starfsmönnum að varast netsvik. Ragnar segir hægt að keyra kennsluna í gegnum kennsluhugbún- aðinn og tengja hann við t.d. Slack eða Microsoft Teams. Þjálfunin sé því ekki lengur bundin við tölvupóst. Lausnin sé hönnuð til að geta tengst alls kyns hugbúnaði. Með 26 starfsmenn Ragnar segir aðspurður að samn- ingurinn við Mondelêz International sé að verðmæti um 200 milljónir og til þriggja ára með möguleika á fram- lengingu. AwareGO sé nú með 26 starfsmenn. Þar á meðal forritara, markaðsfólk og vöruhönnuði. „Við höfum verið öflug í að gefa út efni, blogga og gefa út bækur, sem skilar okkur ofarlega á leitarvélum og hefur það í för með sér að nýir við- skiptavinir bætast í hópinn hjá okkur í hverjum mánuði.“ AwareGO samdi við matvælarisa - Íslenska netöryggisfyrirtækið AwareGO hefur samið við matvælarisann Mondelêz International - Um 80 þúsund starfsmenn síðarnefnda fyrirtækisins munu fá þjálfun í að verjast netglæpum Ljósmynd/AwareGO Öryggismál AwareGO framleiðir efni til að efla netvarnir. Ragnar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.