Morgunblaðið - 09.04.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.04.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021 Slökun Þessi var ekki að flýta sér þegar hann var kominn að eldgosinu í vikunni, og virti vel fyrir sér hraunið og gígana. Kristinn Magnússon Fáar skáldsögur Nóbelskáldsins hafa fengið viðlíka viðtökur og Sjálfstætt fólk. Skáldsagan kom út í fjórum bindum, en þau voru sameinuð í einni bók, sem ber sama heiti og þessi grein. Viðtökur þessarar skáldsögu, sem kann að flokkast undir fé- lagslegt raunsæi, voru með ýmsum hætti. Bændur keyptu skáldsöguna til þess að fletta henni, en stungu bókinni í fjóshaug sinn. Á hinn veg voru þess dæmi að er- lendir ferðamenn, veðurtepptir á Íslandi, gerðu sér erindi í leigubíl frá Keflavíkurflugvelli til Gljúfra- steins, til þess að tjá skáldinu að það væru óteljandi Guðbjartar starfandi í New York. Þessi saga skáldsins um ferða- manninn fannst þeim er þetta ritar ótrúleg, allt þar til prófessor í hag- fræði í Bandaríkjunum lyftist úr sæti sínu þegar hann skynjaði að nemandi hans væri frá Íslandi; hann hafði aldrei lesið aðra eins skáldsögu og „Independent People“. Prófessorinn dáðist að frá- sögninni um einyrkjann, það væru óteljandi einyrkjar um öll Banda- ríkin, raunar fjölluðu allar kennslu- bækur í hagfræði og fjármálum um Bjart í Sumarhúsum. Alþjóðlegir Íslendingar Kannski hefur Bjartur í Sumar- húsum verið alþjóðlegastur Íslend- inga sinnar tíðar. Og Bjartur svífur enn yfir og allt um kring hjá okkur í öllum þeim sem vilja sýna frum- kvæði sér og sínum til bjargar. Annar Íslendingur er ekki síður merkur maður, ekki síður alþjóð- legur. Það er Jón Hreggviðsson. Hann var svo sjálfstæður að hann gat sagt; „það sem maður tekur ekki hjá sjálfum sér tekur maður hvergi“. Honum var einnig sama hvort hann væri sekur eða saklaus, svo fremi að hann hefði bátinn sinn í friði. Einyrkjar í Sjálf- stæðisflokknum Einyrkjar, allir trillukarlar landsins, hafa löngum átt skjól í Sjálfstæðisflokknum. Nú segja trillukarl- arnir mínir við mig, að þeir eigi ekkert skjól, þeir séu aftur orðnir smalar hjá hreppstjóranum. Einyrkinn, sem átti skjól í Sum- arhúsum, er aftur farinn að hokra í Veturhúsum. Til þess voru refirnir alls ekki skornir. Þegar fiskveiðistjórnarkerfið ber á góma, eru svör þingmanna Sjálf- stæðisflokksins „hagkvæmni“. Vissulega hefur hagkvæmni og ár- angur fiskveiða á Íslandi vaxið verulega frá 1984, þegar aflamarki var úthlutað eftir aflareynslu þeirra skipa, sem stunduðu á þeim tíma miðin, og aflamarki var úthlutað. Dregið úr sókn Ég er alls ekki viss um það, að þeir sem studdu það að dregið væri úr sókn í takmarkaða fiskistofna árið 1984, hafi gert sér grein fyrir því að þar með væri lokað fyrir þá, sem ekki stunduðu fiskveiðar árið 1984 og ókomnar kynslóðir, að geta stundað fiskveiðar, að eilífu, á grundvelli þessa „manntals“ árið 1984. Eina leiðin væri að kaupa sér aðgang af þeim eru voru á réttum stað í manntalinu árið 1984, erf- ingjum þeirra, eða af þeim sem þegar hafa keypt sér aðgang að auðlindinni. Lög um stjórn fiskveiða Hafa ber í huga að, „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Út- hlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eign- arrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheim- ildum.“ Hagkvæmni í fiskveiðum hefur ekki skilað sér í auknu kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins. Það kann að vera að rétt sé að auka frelsi strandveiðimanna. Þeir eru sjálfs sín herrar og miklir menn á sínu fleyi! Hví hefur dregið úr kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins í alþingiskosn- ingum? Hví hafa einyrkjarnir horf- ið? Kjörfylgið hefur sveiflast nokk- uð í liðnum kosningum, með leitni niður á við, úr tæpum 40% í 25%, en nokkru lægra í skoðanakönn- unum. Þetta er alls óásættanlegt fyrir sjálfstætt fólk og borgaraleg öfl, sem hingað til hafa átt skjól hjá Sjálfstæðisflokknum. Trillukarlar og einyrkjar eru ósáttir við hlut- skipti sitt. Kaupmaðurinn á horninu Einyrkjar, sem kölluðust „kaup- maðurinn á horninu“, eru horfnir. Í þeirra stað eru komnir risar á smá- sölumarkaði með afkomu sem jafn- ast helst til tískuvöruverslana í út- löndum, sem hafa einkasölu á sínum vörumerkjum, það sem kall- að er einkasölusamkeppni. Er það ásættanlegt að leggja 5% skatt á alla neyslu, til að ná hagn- aðarmarkmiðum, þegar samkeppni á að virka? Í virkri samkeppni nálgast hagnaður 0% af veltu, en þar sem veltuhraði vöru er mikill kann að myndast hagnaður af fjár- magni, sem bundinn er í rekstr- inum. Sjálfstætt fólk vill ekki vera féþúfa fyrir banka eða vildarvið- skiptavini þeirra! Fjármál hjá sjálfstæðu fólki Sá er þetta ritar hefur helgað líf sitt fjárhagslegu sjálfstæði fólks. Með fjárhagslegu sjálfstæði er átt við réttinn til að eiga og réttinn til að taka lán. Þar í milli er miðlari fjármagns, banki eða lífeyrissjóður einstaklinga til sameiginlegrar fjár- festingar fyrir sjóðfélaga, til að eiga lífeyri á efri árum. Slíkur sparnaður er þóknanlegur. Ætla mætti að frjáls sparnaður ein- staklinga væri stjórnvöldum ekki þóknanlegur, því ávöxtur slíks sparnaðar er skattlagður í drep, rétt eins og frestun neyslu sé hættuleg. Í tímaritinu „Fjármál og ávöxtun“ kemur fram að jafnvel verðtryggðir reikningar bera nei- kvæða ávöxtun, eftir skattlagningu. Slíkt er tilræði við fjárhagslegt sjálfstæði fólks. Vissulega eru skattleysismörk, en það sem er um- fram skattleysismörkin virðist hættulegt fyrir sjálfstætt fólk. Skjól fyrir sjálfstætt fólk Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið skjól fyrir sjálfstætt fólk, einyrkja, frumkvöðla og trillukarla. Ef skil verða á milli þeirra og flokksins, þá er spurning hvort einhver þörf sé fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Varla er ætlunin að flokkurinn verði flokkur bænda og embættismanna? Bjartur hefur ævinlega talað fyr- ir Sjálfstætt fólk. Í uppgjöri hans við sjálfstæðið sagði Bjartur; „ég segi fyrir mig, maður fer á mis við lífið þángaðtil maður er orðinn sjálfstæður. Fólk sem er ekki sjálf- stæðisfólk, það er ekki fólk. Maður sem er ekki sjálfra sinna, hann er eins og hundlaus maður.“ Sjálfstætt fólk og borgaraleg öfl verða að standa saman. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Og Bjartur svífur enn yfir og allt um kring hjá okkur í öllum þeim sem vilja sýna frumkvæði sér og sínum til bjargar. Höfundur var alþingismaður og verður það aftur. Sjálfstætt fólk Morgunblaðið/Sigurður Bogi Einyrkjar „Trillukarlar og einyrkjar eru ósáttir við hlutskipti sitt.“ Vilhjálmur Bjarnason Stundum eru það litlu málin sem segja mest. Íbúar í Voga- byggð, nýju hverfi í Reykja- vík, hafa verið skikkaðir til að rækta berja- runna á því pínu- litla svæði sem þeir hafa sjálfir til afnota fyrir utan íbúðir sín- ar. Í raun hefur borgin sett íþyngjandi skilmála um heimili fólks og þröng skilyrði um hvað megi gera í einkagörðum íbúa. Þetta er forræðishyggja af gamla skólanum. Þessi íhlutun er svo rökstudd með því að verið sé að „fjölga grænu svæðunum“! Á sama tíma er markvisst vegið að helstu grænu svæðum borg- arinnar af borgarstjórnar- meirihlutanum sjálfum. Dæmin eru mörg. Áform um atvinnustarfsemi í Elliða- árdal standa þrátt fyrir mikil mótmæli. Árbæjarlónið hefur verið tæmt. Áform eru um stórfelldar landfyllingar við ósa Elliðaáa og við fjörur Skerjafjarðar. Byggð er víða þétt með því að ganga á græn svæði. Þvert á vilja íbúanna. Á aðalskipulagsteikningum má finna íbúða- blokkir efst í Laugardalnum sem munu skyggja á Laug- ardalinn. Sú leið að „fjölga græn- um svæðum“ með því að skikka fólk til að setja upp einn berjarunna á bak við girðingu er svipað og ef boð- ið væri upp á eina rúsínu í skólamötuneytum í heilsubót- arskyni. Væri ekki nær að vernda og efla grænu almenningsrýmin, en leyfa fólkinu sjálfu að ráða görðum sínum? Eftir Eyþór Arnalds Eyþór Arnalds » Íbúar í Voga- byggð, nýju hverfi í Reykjavík, hafa verið skikkaðir til að rækta berja- runna á því pínu- litla svæði sem þeir hafa sjálfir til af- nota fyrir utan íbúðir sínar. Höfundur er oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn. Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.