Morgunblaðið - 09.04.2021, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021
Slökun Þessi var ekki að flýta sér þegar hann var kominn að eldgosinu í vikunni, og virti vel fyrir sér hraunið og gígana.
Kristinn Magnússon
Fáar skáldsögur
Nóbelskáldsins hafa
fengið viðlíka viðtökur
og Sjálfstætt fólk.
Skáldsagan kom út í
fjórum bindum, en þau
voru sameinuð í einni
bók, sem ber sama
heiti og þessi grein.
Viðtökur þessarar
skáldsögu, sem kann
að flokkast undir fé-
lagslegt raunsæi, voru
með ýmsum hætti. Bændur keyptu
skáldsöguna til þess að fletta henni,
en stungu bókinni í fjóshaug sinn.
Á hinn veg voru þess dæmi að er-
lendir ferðamenn, veðurtepptir á
Íslandi, gerðu sér erindi í leigubíl
frá Keflavíkurflugvelli til Gljúfra-
steins, til þess að tjá skáldinu að
það væru óteljandi Guðbjartar
starfandi í New York.
Þessi saga skáldsins um ferða-
manninn fannst þeim er þetta ritar
ótrúleg, allt þar til prófessor í hag-
fræði í Bandaríkjunum lyftist úr
sæti sínu þegar hann skynjaði að
nemandi hans væri frá Íslandi;
hann hafði aldrei lesið aðra eins
skáldsögu og „Independent
People“. Prófessorinn dáðist að frá-
sögninni um einyrkjann, það væru
óteljandi einyrkjar um öll Banda-
ríkin, raunar fjölluðu allar kennslu-
bækur í hagfræði og fjármálum um
Bjart í Sumarhúsum.
Alþjóðlegir Íslendingar
Kannski hefur Bjartur í Sumar-
húsum verið alþjóðlegastur Íslend-
inga sinnar tíðar. Og Bjartur svífur
enn yfir og allt um kring hjá okkur
í öllum þeim sem vilja sýna frum-
kvæði sér og sínum til bjargar.
Annar Íslendingur er ekki síður
merkur maður, ekki síður alþjóð-
legur. Það er Jón Hreggviðsson.
Hann var svo sjálfstæður að hann
gat sagt; „það sem maður tekur
ekki hjá sjálfum sér
tekur maður hvergi“.
Honum var einnig
sama hvort hann væri
sekur eða saklaus, svo
fremi að hann hefði
bátinn sinn í friði.
Einyrkjar í Sjálf-
stæðisflokknum
Einyrkjar, allir
trillukarlar landsins,
hafa löngum átt skjól í
Sjálfstæðisflokknum.
Nú segja trillukarl-
arnir mínir við mig, að
þeir eigi ekkert skjól, þeir séu aftur
orðnir smalar hjá hreppstjóranum.
Einyrkinn, sem átti skjól í Sum-
arhúsum, er aftur farinn að hokra í
Veturhúsum. Til þess voru refirnir
alls ekki skornir.
Þegar fiskveiðistjórnarkerfið ber
á góma, eru svör þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins „hagkvæmni“.
Vissulega hefur hagkvæmni og ár-
angur fiskveiða á Íslandi vaxið
verulega frá 1984, þegar aflamarki
var úthlutað eftir aflareynslu þeirra
skipa, sem stunduðu á þeim tíma
miðin, og aflamarki var úthlutað.
Dregið úr sókn
Ég er alls ekki viss um það, að
þeir sem studdu það að dregið væri
úr sókn í takmarkaða fiskistofna
árið 1984, hafi gert sér grein fyrir
því að þar með væri lokað fyrir þá,
sem ekki stunduðu fiskveiðar árið
1984 og ókomnar kynslóðir, að geta
stundað fiskveiðar, að eilífu, á
grundvelli þessa „manntals“ árið
1984. Eina leiðin væri að kaupa sér
aðgang af þeim eru voru á réttum
stað í manntalinu árið 1984, erf-
ingjum þeirra, eða af þeim sem
þegar hafa keypt sér aðgang að
auðlindinni.
Lög um stjórn fiskveiða
Hafa ber í huga að,
„Nytjastofnar á Íslandsmiðum
eru sameign íslensku þjóðarinnar.
Markmið laga þessara er að stuðla
að verndun og hagkvæmri nýtingu
þeirra og tryggja með því trausta
atvinnu og byggð í landinu. Út-
hlutun veiðiheimilda samkvæmt
lögum þessum myndar ekki eign-
arrétt eða óafturkallanlegt forræði
einstakra aðila yfir veiðiheim-
ildum.“
Hagkvæmni í fiskveiðum hefur
ekki skilað sér í auknu kjörfylgi
Sjálfstæðisflokksins. Það kann að
vera að rétt sé að auka frelsi
strandveiðimanna. Þeir eru sjálfs
sín herrar og miklir menn á sínu
fleyi!
Hví hefur dregið úr kjörfylgi
Sjálfstæðisflokksins í alþingiskosn-
ingum? Hví hafa einyrkjarnir horf-
ið? Kjörfylgið hefur sveiflast nokk-
uð í liðnum kosningum, með leitni
niður á við, úr tæpum 40% í 25%,
en nokkru lægra í skoðanakönn-
unum. Þetta er alls óásættanlegt
fyrir sjálfstætt fólk og borgaraleg
öfl, sem hingað til hafa átt skjól hjá
Sjálfstæðisflokknum. Trillukarlar
og einyrkjar eru ósáttir við hlut-
skipti sitt.
Kaupmaðurinn á horninu
Einyrkjar, sem kölluðust „kaup-
maðurinn á horninu“, eru horfnir. Í
þeirra stað eru komnir risar á smá-
sölumarkaði með afkomu sem jafn-
ast helst til tískuvöruverslana í út-
löndum, sem hafa einkasölu á
sínum vörumerkjum, það sem kall-
að er einkasölusamkeppni. Er það
ásættanlegt að leggja 5% skatt á
alla neyslu, til að ná hagn-
aðarmarkmiðum, þegar samkeppni
á að virka? Í virkri samkeppni
nálgast hagnaður 0% af veltu, en
þar sem veltuhraði vöru er mikill
kann að myndast hagnaður af fjár-
magni, sem bundinn er í rekstr-
inum. Sjálfstætt fólk vill ekki vera
féþúfa fyrir banka eða vildarvið-
skiptavini þeirra!
Fjármál hjá sjálfstæðu fólki
Sá er þetta ritar hefur helgað líf
sitt fjárhagslegu sjálfstæði fólks.
Með fjárhagslegu sjálfstæði er átt
við réttinn til að eiga og réttinn til
að taka lán. Þar í milli er miðlari
fjármagns, banki eða lífeyrissjóður
einstaklinga til sameiginlegrar fjár-
festingar fyrir sjóðfélaga, til að
eiga lífeyri á efri árum. Slíkur
sparnaður er þóknanlegur. Ætla
mætti að frjáls sparnaður ein-
staklinga væri stjórnvöldum ekki
þóknanlegur, því ávöxtur slíks
sparnaðar er skattlagður í drep,
rétt eins og frestun neyslu sé
hættuleg. Í tímaritinu „Fjármál og
ávöxtun“ kemur fram að jafnvel
verðtryggðir reikningar bera nei-
kvæða ávöxtun, eftir skattlagningu.
Slíkt er tilræði við fjárhagslegt
sjálfstæði fólks. Vissulega eru
skattleysismörk, en það sem er um-
fram skattleysismörkin virðist
hættulegt fyrir sjálfstætt fólk.
Skjól fyrir sjálfstætt fólk
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
skjól fyrir sjálfstætt fólk, einyrkja,
frumkvöðla og trillukarla. Ef skil
verða á milli þeirra og flokksins, þá
er spurning hvort einhver þörf sé
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Varla er
ætlunin að flokkurinn verði flokkur
bænda og embættismanna?
Bjartur hefur ævinlega talað fyr-
ir Sjálfstætt fólk. Í uppgjöri hans
við sjálfstæðið sagði Bjartur; „ég
segi fyrir mig, maður fer á mis við
lífið þángaðtil maður er orðinn
sjálfstæður. Fólk sem er ekki sjálf-
stæðisfólk, það er ekki fólk. Maður
sem er ekki sjálfra sinna, hann er
eins og hundlaus maður.“
Sjálfstætt fólk og borgaraleg öfl
verða að standa saman.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason
» Og Bjartur svífur
enn yfir og allt um
kring hjá okkur í öllum
þeim sem vilja sýna
frumkvæði sér og sínum
til bjargar.
Höfundur var alþingismaður
og verður það aftur.
Sjálfstætt fólk
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Einyrkjar „Trillukarlar og einyrkjar eru ósáttir við hlutskipti sitt.“
Vilhjálmur
Bjarnason
Stundum eru
það litlu málin
sem segja mest.
Íbúar í Voga-
byggð, nýju
hverfi í Reykja-
vík, hafa verið
skikkaðir til að
rækta berja-
runna á því pínu-
litla svæði sem
þeir hafa sjálfir
til afnota fyrir utan íbúðir sín-
ar. Í raun hefur borgin sett
íþyngjandi skilmála um heimili
fólks og þröng skilyrði um
hvað megi gera í einkagörðum
íbúa. Þetta er forræðishyggja
af gamla skólanum. Þessi
íhlutun er svo rökstudd með
því að verið sé að „fjölga
grænu svæðunum“! Á sama
tíma er markvisst vegið að
helstu grænu svæðum borg-
arinnar af borgarstjórnar-
meirihlutanum sjálfum.
Dæmin eru mörg. Áform
um atvinnustarfsemi í Elliða-
árdal standa þrátt fyrir mikil
mótmæli. Árbæjarlónið hefur
verið tæmt. Áform eru um
stórfelldar landfyllingar við
ósa Elliðaáa og við fjörur
Skerjafjarðar. Byggð er víða
þétt með því að ganga á græn
svæði. Þvert á vilja íbúanna.
Á aðalskipulagsteikningum
má finna íbúða-
blokkir efst í
Laugardalnum
sem munu
skyggja á Laug-
ardalinn. Sú leið
að „fjölga græn-
um svæðum“
með því að
skikka fólk til að
setja upp einn
berjarunna á bak
við girðingu er
svipað og ef boð-
ið væri upp á eina rúsínu í
skólamötuneytum í heilsubót-
arskyni.
Væri ekki nær að vernda og
efla grænu almenningsrýmin,
en leyfa fólkinu sjálfu að ráða
görðum sínum?
Eftir Eyþór
Arnalds
Eyþór Arnalds
» Íbúar í Voga-
byggð, nýju
hverfi í Reykjavík,
hafa verið skikkaðir
til að rækta berja-
runna á því pínu-
litla svæði sem þeir
hafa sjálfir til af-
nota fyrir utan
íbúðir sínar.
Höfundur er oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn.
Af ávöxtunum
skulið þér
þekkja þá