Morgunblaðið - 09.04.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.04.2021, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021 vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum hafðu það notalegt Stuðningur við landbúnað hér á landi er af tvennum toga. Annars vegar njóta bændur beins op- inbers stuðnings frá stjórnvöldum í gegn- um svokallaða bú- vörusamninga sem gerðir eru á milli bænda og stjórn- valda. Hins vegar nýtur landbúnaðurinn stuðnings með óbeinum hætti í gegnum toll- vernd. Umræðan um tolla á inn- fluttar landbúnaðarvörur hefur oft á tíðum verið þungmelt. Það er því ef til vill allt eins gott í upphafi að nefna að tollar eru lagðir á fleiri vöruflokka en eingöngu innfluttar landbúnaðarvörur, því á meðan skipst er á skoðunum, með eða á móti tollvernd, tínir neytandinn of- an í innkaupakörfuna hjá sér snyrtivörur, hreinlætisvörur, lár- peru, kjúkling og kartöflupylsu- brauð, jafnvel par- maskinku, – hvaðeina, innlent sem og erlent. En stöldrum aðeins við og veltum fyrir okkur til hvers verið er að leggja á tolla á innfluttar landbún- aðarvörur. Tollar eru einfaldlega skattur sem hækkar verð á innfluttri vöru, m.a. með það að markmiði að vernda innlenda framleiðslu. Hann er lagður á vegna þess að við sem samfélag höfum ákveðið að við viljum viðhalda innlendum land- búnaði. Við búum við ysta haf og ræktunaraðstæður hér á landi eru gjörólíkar nágrannalöndum okkar í suðri. Þannig yrði samkeppnin aldrei jöfn ef engir væru tollarnir þó að á öllum öðrum sviðum stæð- um við nokkuð jafnfætis. Gerum kröfur Ísland er í þeirri stöðu að geta framleitt fæðu langt fram yfir það sem þarf til að öðlast fullt fæðu- öryggi. Við erum engu að síður í dag meðal þeirra landa sem flytja inn hvað hæst hlutfall af sinni fæðu. Á sama tíma og stjórnvöld leggja áherslu á fæðuöryggi okk- ar, og innflytjendur vilja opna markaðinn fyrir innflutningi, þá hlýtur það að vera eðlileg krafa landsmanna að innfluttar vörur séu af sömu gæðum og innlend framleiðsla varðandi matvæla- öryggi og að sambærilegar kröfur séu gerðar til dýravelferðar í þeim löndum sem flutt er inn frá og reglur kveða á um hér á landi. Þannig hljóti þær áskoranir sem bíða landbúnaðarins að kalla á keðjuábyrgð neytandans; þar sem hann er meðvitaður um hvaða matvöru hann er að kaupa og sé ekki óbeint að styðja við lága staðla í umhverfismálum, hrein- læti, dýravelferð, léleg kjör og að- búnað bænda og landbún- aðarverkafólks. Landbúnaður er ein grundvallaratvinnugreina á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki í fæðuöryggi þjóðarinnar. Virð- iskeðjan frá haga í maga er burð- arás í lífsviðurværi á mörgum dreifbýlissvæðum landsins og landbúnaðurinn sem atvinnugrein skiptir sköpum fyrir samfélagið í tengslum við lýðheilsu, menningu, efnahag og byggðaþróun. Á næstu árum bíða þó margvíslegar áskor- anir atvinnugreinarinnar, svo sem á sviði loftslags- og umhverf- ismála, nýsköpunar, matvæla- öryggis og örari breytinga á neyslumynstri. Neytendur gera sí- fellt meiri kröfur um fjölbreytt vöruúrval og ferskleika en eft- irspurnin innanlands eftir flestum landbúnaðarvörum hefur aukist, ekki síst með aukinni umhverf- isvitund. Um árabil hafa bændur bent á mikilvægi þess að vernda innlenda matvælaframleiðslu með tilliti til fæðuöryggis þjóðarinnar. Margir hafa gagnrýnt þann málflutning og kallað hann falsrök fyrir styrkjum til landbúnaðar. Það að hér sé matvælaframleiðsla tryggir ekki eitt og sér fæðuöryggi þjóð- arinnar, en hún skiptir verulegu máli. Til þess að innlenda fram- leiðslan geti staðið traustum fótum áfram er skynsamlegt að nýta toll- vernd þar sem það er nauðsynlegt til að íslenskir bændur geti keppt á sanngjörnum forsendum. En það er fyrst og fremst öll virðiskeðja matvæla sem skiptir máli því það á að skipta neytandann máli hvernig matvæli eru framleidd og hvernig þeim er dreift, en jafnframt að þau séu örugg og að nýting við fram- leiðslu og neyslu sé sem best. Keðjuábyrgð neytandans Eftir Vigdísi Häsler Vigdís Häsler » Landbúnaður er ein grundvallar- atvinnugreina á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki í fæðuöryggi þjóðarinnar. Höfundur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Það þótti eitt sinn einkenna góðan blaða- mann að hann leitaði sannleikans í hverju máli og leyfði and- stæðum skoðunum að koma fram svo al- menningur gæti sjálf- ur myndað sér skoð- anir á grunni upplýsinganna. Sú skylda var af- numin í BNA í tíð Reagans, 1987, og hefur leitt til að fjölmiðlar þar hafa orðið málpípur flokka og fyr- irtækja. CNN virðist t.d. algjörlega á bandi Demókrataflokksins og fréttamaður NBC, Lester Holt að nafni, sagði nýverið að fréttamenn þyrftu ekki að heyra báðar hliðar máls til að komast að niðurstöðu um hver sannleikurinn væri. Margir fréttamenn RÚV virðast hafa til- einkað sér þessa hugs- un. Nýlegt dæmi er umfjöllun Róberts Jó- hannssonar um breyt- ingu á kosningalögum í Georgíufylki, BNA: https://www.ruv.is/ frett/2021/03/29/biden- hvattur-til-ad-standa-vord- um-rett-kjosenda. Hann segir frá því að Biden forseti líki nýju lög- unum við Jim Crow- lögin um aðskilnað svartra og hvíta en vitnar einnig í hvað tveir nýir öldungadeildarþingmenn demó- krata hafi sagt um þau. Ekki vitnar hann í neinn er kom að því að semja eða samþykkja þessa nýju breyt- ingu á lögunum. Hefði Róbert nú t.d. forvitnast um skoðanir Brian Kemp ríkisstjóra (hann er repúblikani) þá hefði hann getað haft eftir honum að menn skyldu hunsa innistæðulausar ásak- anir demókrata. Lögunum sé ætlað að vinna gegn kosningasvindli. Gerð sé krafa um að allir kjósendur hafi gild skilríki, líka þeir er panti kjör- seðla í pósti en þeir þurfi að gefa upp tölur á skilríkjum sínum svo staðfesta megi að þeir hafi rétt á að kjósa. Auðveldara sé gert að kjósa því þeim dögum sem menn hefðu til að kjósa utan kjörfundar hefði verið fjölgað í 17 og opnunartími á virk- um dögum lengdur. Komið væri í veg fyrir að utanaðkomandi keyptu flokkum velvild með ókeypis mat og drykk til handa þeim er biðu eftir að kjósa og kosningareglur í fylkinu samræmdar. Ef til vill hefði Kemp getað bætt við að Biden hefði líklega hreint ekki kynnt sér kosningalög Georgíu. Þau hin nýju má finna á netinu: https://www.legis.ga.gov/api/ legislation/document/20212022/201121. Á bls. 56 má lesa að kosningahelgi hafi verið bætt við og opnunartími lengdur. Róbert minnist einnig á tvö frum- vörp Demókrata sem Guardian segi „andstæð tilraunum repúblikana til að gera kjósendum erfiðara fyrir“. Hér hefði þurft eitthvert mótvægi við hið vinstrisinnaða blað Guardi- an. Ef til vill hefði mátt vitna í Lindsey Graham, þingmann repú- blikana sem sagði á Fox News að hið þekktara þessara frumvarpa, H.R.1, gengi gegn stjórnarskránni og jafngilti tilraun demókrata til valdaráns. Í BNA er enginn neyddur til að borga áskrift að CNN, Fox News, New York Times, New York Post eða öðrum fjölmiðlum. Á Íslandi höfum við hins vegar skylduáskrift að RÚV, sem þykist vera í þjónustu allra landsmanna. Séum við neydd til að borga fréttamönnum RÚV laun þá ættum við að geta krafist þess að þeir segi fréttirnar frá ís- lensku sjónarhorni en ekki eins og þeir störfuðu í umboði erlendra stjórnmálahreyfinga. Einnig ætti þeim hluta almennings er telur sér misboðið með hlutdrægum frétta- flutningi að leyfast að láta útvarps- gjald sitt renna til annars fjölmiðils að eigin vali. Hefur RÚV afnumið hlutleysisreglu fréttamanna? Eftir Ingibjörgu Gísladóttur Ingibjörg Gísladóttir »Hafi RÚV kastað hlutleysisreglu sinni fyrir róða þá tel ég ekki nema sanngjarnt að mönnum leyfist að styrkja aðra fjölmiðla í þess stað Höfundur starfar við umönnun aldraðra. Færð og veður á ís- lenskum þjóðvegum geta verið við- sjárverð. Þegar aka á milli landshluta, sér í lagi á veturna, er gott að vera vel und- irbúinn. Margir hafa sem reglu að skoða færðarkortið á vef Vegagerðarinnar en einnig eru fjölmargir sem nýta sér umferð- arþjónustu Vegagerðarinnar í síma 1777. Vegfarendur eru hvatt- ir til að nýta sér þessa þjónustu svo sem kostur er til að auðvelda sér ferðina á þjóðvegum landsins eða jafnvel til að hætta við ferð þegar svo ber undir. Umferðarþjónustan er starfrækt á Ísafirði og þar starfa sjö manns sem hafa mikla reynslu í upplýs- ingagjöf til vegfar- enda. Starfsmenn svara spurningum vegfarenda í síma 1777 en hafa einnig umsjón með svörun skilaboða í gegnum tölvupóst og á sam- félagsmiðlum Vegagerðarinnar. Meðal annarra verkefna þjónust- unnar má nefna tilkynningar og samskipti við fjölmiðla, ferðaþjón- ustu og flutningsaðila, upplýs- 1777 – veitir mik- ilvægar upplýsing- ar til vegfarenda Eftir Bergþóru Kristinsdóttur Bergþóra Kristinsdóttir Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.