Morgunblaðið - 09.04.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Varastu að dæma hlutina af fyrstu
kynnum því oft ber yfirborðið ekki með sér
hvað undir býr. Biddu um hjálp, það er ekki
veikleikamerki.
20. apríl - 20. maí +
Naut Reyndu að forðast árekstra við aðra
því þeir leiða aðeins illt af sér. Gerðu öðr-
um grein fyrir því að þú átt líka rétt á þín-
um skoðunum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Loksins virðist þér óhætt að fara
af stað með mál, sem þú hefur lengi þurft
að sitja á. Kapp er best með forsjá.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hittir óvænt gamlan vin sem
getur komið þér til hjálpar í erfiðu persónu-
legu máli. Þú ættir að gefa þér tíma á
hverjum degi í einrúmi, þú þarft á því að
halda.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það getur verið dýrkeypt að blanda
sér í annarra mál að ástæðulausu. Trúin
flytur fjöll.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú svífur um á sæluskýii. Vertu á
varðbergi því ekki eru allir viðhlæjendur
vinir. Þú færð klapp á bakið frá manneskju
sem þú lítur upp til.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það getur reynst þér skeinuhætt að
hlaupa í blindni eftir athugasemdum ann-
arra. Njóttu þess sem lífið færir þér, en
mundu að engin manneskja er annars eign.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þér liggur ekki lífið á að velja
næsta skref í viðkvæmu máli. Taktu stjórn-
ina í þínar hendur og þá munu hjólin fara
að snúast þér í hag.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú þarft að venja þig af því að
ætla að keyra skoðanir þínar ofan í annað
fólk. Láttu ekki öfund annarra draga þig
niður, láttu sem ekkert sé.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Láttu allar ákvarðanir bíða með-
an þú hreinsar hugann af því sem dreifir
honum um of. Kvöldið verður skemmtilegt
og þú kynnist nýju fólki.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Sláðu á létta strengi til að laga
andrúmsloftið heima. Sinntu þínum áhuga-
málum, það gerir það enginn fyrir þig.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Margt er þér í hag þessa dagana og
sjálfsagt að notfæra sér meðbyrinn meðan
hann varir. Dagurinn hentar vel til að halda
því áfram með smíðaverkefni.
um í það starf sem hann sinnir í
dag. „Við vorum tveir félagarnir
sem rákum heildverslun og flutt-
um m.a. inn gáma og tunnur sem
við seldum til sorphirðuaðila á
landsbyggðinni. Við sannfærðum
mikla virðingu bónda sem keypti
heil ósköp eftir að ég hafði sannað
mig.“
Stofnun Gámafélagsins
Sölumennskan leiddi Jón að lok-
J
ón Þórir Frantzson er
fæddur 9. apríl 1961 í
Reykjavík. Fyrstu 10 ár-
in bjó Jón á fæðingar-
heimili sínu á Grensás-
vegi en síðan flutti fjölskyldan í
Laugarneshverfið.
Jón gekk í Laugarnesskóla, síð-
an Laugalækjarskóla, varð stúd-
ent frá Menntaskólanum í Reykja-
vík og hóf nám í lögfræði við
Háskóla Íslands. „Þessi tilraun til
að mennta mig enn frekar við HÍ
gekk ekki sem skyldi. Eftir að
hafa lokið einu ári sá ég að ég
myndi aldrei geta unnið við þessi
fræði og hætti námi. Það hefur þó
reynst mér ágætlega sem grunnur
í mörgu sem ég hef tekið mér fyr-
ir hendur. Þarna lærði maður þó
„júrískan þankagang“ eins og einn
prófessorinn staglaðist svo mikið á
og hefur sá lærdómur reynst mér
afar vel í mörgu sem ég hef tekið
mér fyrir hendur.“
Við tók skrautlegt og fjölbreytt
tímabil, að sögn Jóns, þar sem
mörg störf voru reynd, s.s. garð-
yrkjustörf, gæslustörf á spítala,
frystihúsavinna, ræstingar og
margt fleira. „Ég leiddist samt
alltaf að lokum út í einhvers konar
sölumennsku og hef í raun reynt
fyrir mér á flestum sviðum sölu-
mennskunnar, vann í verslun bæði
hjá BYKO og Hljómbæ, var far-
andsölumaður með bækur, rak
heildverslun með tískufatnað,
áfengisheildsali, sölumaður hjá
Plastos, ferðaðist um landið og
seldi bændum verkfæri beint úr
bíl. Ég var með sölubás í gamla
góða Kolaportinu og sitt hvað
fleira. Í sölumennskunni reyndi
maður og lærði ýmislegt og gerði
nánast hvað sem er til að selja.
Mér er minnisstætt þegar ég
kom að bæ og vildi sýna bónda
verkfærin sem ég hafði að bjóða.
Þá stoppaði hann mig í miðri ræðu
og sagðist ekkert kaupa fyrr en
við værum búnir að fá okkur að
borða. Ég er mjög matvandur en
þarna var mér boðin soðin síld í
aðalrétt og blóðgrautur í eftirrétt.
Fyrir söluna gerir maður allt og
torgaði ég hvorutveggja og hlaut
þá um að þeir ættu að stofna deild
í Reykjavík með samskonar þjón-
ustu og þeir buðu úti á landi. Til-
gangurinn var að selja þeim gáma
en það endaði þannig að ég var
beðinn um að taka að mér fram-
kvæmdastjórastöðuna tímabundið
meðan verið væri að finna annan,
sem hefði eitthvert vit á brans-
anum. Ríflega tuttugu árum síðar
er ég enn í þessu starfi sem for-
stjóri Íslenska Gámafélagsins,“ en
Jón er jafnframt einn af aðaleig-
endum fyrirtækisins.
Íslenska Gámafélagið stækkaði
smám saman með því að fleiri
sorphirðuaðilar sameinuðust því
og starfar fyrirtækið nú á lands-
vísu, er með tæplega 300 manns í
vinnu og veltir 5,4 milljörðum á
ári. „Við erum með þjónustu til að
sækja ruslið, koma því í endur-
vinnslu og flytja út til brennslu og
höfum átt stóran þátt í þeim fram-
förum sem hafa orðið í flokkun á
rusli frá heimilum síðustu 20 árin.
Við erum að verða einhver stærsti
útflutningsaðili landsins, en við
flytjum út um 30.000 tonn á ári í
skipagámum af vöru til endur-
vinnslu.“
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska Gámafélagsins – 60 ára
Brugðið á leik Forstjórinn á árlegum Grafarvogsdegi þar sem fyrirtæki á
svæðinu sýna gestum og gangandi starfsemi sína.
Leiðandi fyrirtæki í endurvinnslu
EM 2016 Jón ásamt aðstoðarsforstjóranum Ólafi Thordersen, í miðjunni, og
fyrrverandi starfsmönnum Íslenska Gámafélagsins sem þeir rákust á.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Forstjórinn Jón átti hugmyndina að
stofnun Íslenska Gámafélagsins.
Davíðsson, f. 1979, hagfræðingur.
Börn þeirra eru Hilmir Freyr, f.
2008, Áslaug Sól, f. 2013, og Friðrik
Heiðar, f. 2015. Foreldrar Eddu eru
hjónin Ari Skúlason, hagfræðingur
hjá Landsbankanum, og Jane Pind,
fyrrverandi dönskukennari.
40 ÁRA Edda Sif Pind Aradóttir
fæddist í Árósum í Danmörku og
ólst þar upp og í Kópavogi, en býr í
Fossvogi.
Edda er með BS-gráðu í efna-
verkfræði, MS-gráðu í eðlisefna-
fræði, hvort tveggja frá HÍ, og lauk
einnig doktorsverkefninu þaðan, en
það var um Carbfix-verkefnið. Hún
hefur síðan unnið við þetta nýsköp-
unarverkefni hjá Orkuveitu Reykja-
víkur og árið 2019 var stofnað sér-
stakt fyrirtæki um það sem hún er
framkvæmdastjóri yfir.
„Það sem Carbfix gerir er að við
flýtum náttúrlegum ferlum sem
binda koldíoxið í berg í stað þess að
það fari út í andrúmsloftið og valdi
með því hlýnun jarðar.“
Eiginmaður Eddu er Erlendur
Edda Sif Aradóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Hekla María Pétursdóttir
fæddist á Akranesi 2. ágúst 2020 kl.
22.13. Hún vó 3.464 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Sandra Jóns-
dóttir og Pétur Guðbjörn Sigurðarson.
Nýr borgari
Kauptu næluna á blarapril.is
Einhverfa er alls konar
Ég á erfitt
með að
tilfinningar