Morgunblaðið - 09.04.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021
_ Nú liggur fyrir hvaða lið mætast hjá
körlunum í 8-liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu, sterkustu félagsliða-
keppninni í handknattleiknum. Þrjú Ís-
lendingalið eru eftir í keppninni,
Barcelona og Aalborg. Barcelona mæt-
ir Meshkov Brest frá Hvíta-Rússlandi
en Aron Pálmarsson leikur með Barce-
lona sem kunnugt er. Arnór Atlason er
aðstoðarþjálfari hjá Aalborg sem þarf
að glíma við Alexander Petersson og
félaga hjá Flensburg sem eru líklegir til
að verða þýskir meistarar í vor. Ekki er
langt að fara því Flensburg er nærri
landamærum Þýskalands og Danmerk-
ur. Í 8-liða úrslitum mætast einnig
Nantes og Veszprém og stórliðin Kiel
og París St. Germain.
_ Íslendingar áttu fulltrúa í leik Gra-
nada og Manchester United í Evr-
ópudeild karla í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Róbert Agnarsson var
eftirlitsmaður Knattspyrnusambands
Evrópu á leiknum.
_ Maksim Akbachev hefur verið ráð-
inn yfirþjálfari handknattleiksdeildar
Gróttu og tekur hann við af Hákoni
Bridde sem hefur verið ráðinn í sams
konar starf hjá HK. Maksim hefur þjálf-
að hjá Gróttu frá því á síðasta ári en
hann hefur áður þjálfað hjá Val og
Haukum og m.a. stjórnað U17 ára
drengjalandsliði Íslands.
_ Zinedine Zidane verður knatt-
spyrnustjóri Juventus og það er aðeins
tímaspursmál hvenær hann yfirgefur
Real Madrid til að taka við sínu gamla
félagi. Þetta er fullyrt í spænska
íþróttadagblaðinu AS með fyrirsögn-
inni: Ekki hvort heldur hvenær. Zidane
á rúmt ár eftir af samningi sínum við
Real Madrid en Andrea Pirlo þykir afar
valtur í sessi hjá Juventus. Ítalíumeist-
aratitillinn er nánast runninn liðinu úr
greipum og liðið féll úr keppni í sextán
liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Zid-
ane lék með Juventus í fimm ár, frá
1996 til 2001, lék 151 leik með liðinu í
A-deildinni og varð tvívegis ítalskur
meistari.
_ Rhein-Neckar Löwen fór upp að hlið
Flensburg á toppi þýsku 1. deildarinnar
í handknattleik í gær með sigri á Nord-
horn. Löwen lék á heimavelli og vann
30:26. Skoraði Ýmir Örn Gíslason eitt
mark fyrir Löwen sem er með 36 stig.
Flensburg hefur hins vegar aðeins leik-
ið 20 leiki en Löwen 25 leiki.
Göppingen vann 31:30 útisigur á Bal-
ingen og er í 5. sæti með 33 stig. Odd-
ur Gretarsson skoraði 2 mörk fyrir
Göppingen. Gunnar Steinn Jónsson
gaf eina stoðsendingu fyrir Göppingen
en Janus Daði Smárason er á sjúkra-
listanum hjá Göppingen. Balingen er í
16. sæti, rétt fyrir ofan fallsæti, með 15
stig.
Melsungen er í 8. sæti með 25 stig eft-
ir 21 leik. Liðið vann Essen 35:31 á
heimavelli. Landsliðsþjálfarinn Guð-
mundur Guðmundsson stýrir liðinu og
Arnar Freyr Arnarsson leikur með því.
Í 2. deildinni tapaði Gummersbach
heldur óvænt fyrir Rimpar á útivelli,
28:24. Rimpar
er í 10. sæti
en Gum-
mersbach
í 2. sæti.
Elliði
Snær Við-
arsson lék
ekki með
Gummers-
bach en
Guðjón Val-
ur Sigurðsson
stýrir liðinu.
Eitt
ogannað
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nú styttist í leikina mikilvægu hjá
kvennalandsliðinu í handknattleik.
Liðið mætir Slóvenum í tveimur
umspilsleikjum um sæti í loka-
keppni HM sem fram fer á Spáni í
desember. Ísland hefur einu sinni
áður komist á HM en það var í
Brasilíu árið 2011 og komst liðið þá í
16 liða úrslit. Kvennalandsliðið
braut ísinn þegar það komst á EM
2010 og lék einnig á EM 2012. En
síðan þá hefur liðið ekki komist á
stórmót. Er ekki kominn tími á að
endurtaka leikinn?
„Ó jú. Mig kitlar í magann því
mig langar svo mikið að komast aft-
ur á stórmót. Þetta er svo mikil
reynsla fyrir utan hvað það er
skemmtilegt. Við vorum nálægt því
núna ef við horfum á þetta þannig
að við erum á leiðinni í úrslitaleiki
um sæti á HM. Þess vegna er af-
skaplega gott að fá þessar aukaæf-
ingar fram að leik og það vekur hjá
manni frekari vonir um að nú geti
eitthvað stórt gerst,“ sagði lands-
liðskonan Lovísa Thompson þegar
Morgunblaðið ræddi við hana á
landsliðsæfingu í vikunni. Sjálf hef-
ur Lovísa leikið á HM U20 ára
landsliða og gerði það árið 2019.
Landsliðshópurinn hefur fengið
meiri tíma til að stilla saman streng-
ina en ráð var fyrir gert. Deilda-
keppnin liggur niðri hér heima og
landsliðið fékk undanþágu til að
æfa. Liðið æfði fyrir páska og tók
aftur upp þráðinn á annan í páskum.
„Við æfðum á skírdag og aftur á
annan í páskum. Ég á von á því að
við æfum daglega fram til 12. apríl
en þá förum við út. Fyrri leikurinn
er 17. apríl. Það var geggjað fyrir
okkur að fá undanþágu til að æfa.
Verkefnið verður skemmtilegra fyr-
ir vikið og við fáum tækifæri til að
vinna í stórum þáttum sem við vilj-
um setja inn í okkar leik,“ sagði
Lovísa en síðari leikurinn fer fram
21. apríl.
Nýjar áherslur virka vel
Lovísa segir að framan af í æf-
ingaferlinu sé hópurinn að hugsa
um leik íslenska liðsins og andstæð-
ingurinn verði kortlagður þegar
nær dregur leikjunum.
„Við erum með á bak við eyrað
hvernig andstæðingi við mætum en
hópurinn er ekki farinn að leik-
greina þær strax. Þjálfararnir setja
æfingarnar þó upp þannig að við
vinnum í atriðum sem lagt verður
upp með í leikjunum,“ sagði Lovísa
og hún var nokkuð ánægð með
spilamennskuna á dögunum þegar
Ísland mætti N-Makedóníu, Grikk-
landi og Litháen í undankeppninni.
„Mér finnst við stefna í rétta átt.
Nýjar áherslur sem Addi [Arnar
Pétursson landsliðsþjálfari] og
Gústi [Ágúst Jóhannsson aðstoð-
arþjálfari] hafa komið með inn í liðið
gefa manni aukið sjálfstraust. Mér
fannst ganga vel í leikjunum um
daginn. N-Makedónía var fyrir fram
talið sterkara lið en við. Þeim leik
töpuðum við stærra en við hefðum
átt að gera. Mér finnst þær make-
dónsku ekki vera þetta mikið betri
en við vegna þess að við áttum mjög
góðar syrpur í þeim leik. Ég held að
það búi mikið í okkar liði og spila-
mennskan er að verða flott,“ sagði
Lovísa enn fremur í samtali við
Morgunblaðið.
Undankeppnin fór fram í Skopje í
N-Makedóníu og tvö efstu liðin
héldu áfram keppni. Lék liðið þrjá
leiki á þremur dögum. Ísland tapaði
24:17 fyrir N-Makedóníu sem vann
riðilinn. Í framhaldinu vann Ísland
örugga sigra, 31:19 gegn Grikklandi
og 33:23 gegn Litháen.
Með HM-fiðrildi í maganum
- Styttist í mikilvæga umspilsleiki gegn Slóveníu - Níu ár frá því landsliðið
komst síðast á stórmót - Þakklátar fyrir undanþáguna sem nýtist vel
Ljósmynd/Robert Spasovski
Mikilvæg Lovísa Thompson nýtist landsliðinu vel enda útsjónarsöm bæði í vörn og sókn.
Haukur Helgi Pálsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, leikur ekki
meira með Andorra á Spáni á þessu
keppnistímabili. Félag hans til-
kynnti í gær að Haukur hefði
meiðst á ökkla og yrði frá keppni í
um það bil fjóra mánuði þar sem
hann þyrfti að gangast undir upp-
skurð. Þetta er áfall fyrir Hauk og
fyrir lið Andorra sem er í harðri
baráttu um sæti í átta liða úrslit-
unum um spænska meistaratitilinn.
Haukur missir af síðustu níu leikj-
um liðsins í deildinni þar sem An-
dorra er í tíunda sæti.
Missir af síðustu
níu leikjunum
Ljósmynd/EuroCup
Uppskurður Haukur Helgi Pálsson
hefur lokið keppni á tímabilinu.
Portúgalski handknattleiksmað-
urinn André Gomes hefur skrifað
undir þriggja ára samning við
þýska félagið Melsungen og þar
með hefur Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari og
þjálfari Melsungen, krækt í leik-
mann sem gerði honum lífið leitt í
þremur landsleikjum þjóðanna í
janúarmánuði. Gomes er 22 ára og
af mörgum talinn vera kominn í
hóp bestu handknattleiksmanna
heims en hann þykir stór fengur
fyrir lið Melsungen sem er í níunda
sæti í Þýskalandi.
Guðmundur nær
í lykilmann
AFP
Öflugur André Gomes er kominn í
fremstu röð í heiminum.
Rúmlega 22 þúsund áhorfendum
verður leyft að sjá leiki Englend-
inga í riðlakeppni Evrópumóts
karla í knattspyrnu í sumar en þeir
leika alla þrjá leiki sína í D-riðli
keppninnar á þjóðarleikvangi sín-
um, Wembley í London.
Enska knattspyrnusambandið
hefur staðfest við UEFA, Knatt-
spyrnusamband Evrópu, að áhorf-
endum verði heimilað að mæta á
leikina en England mætir Króatíu,
Skotlandi og Tékklandi dagana 13.,
18. og 22. júní.
Wembley rúmar 90 þúsund
áhorfendur en samkvæmt áætlun
bresku ríkisstjórnarinnar um af-
léttingar banna vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar mega 10 þúsund
manns mæta á íþróttaviðburði frá
17. maí til 21. júní.
Knattspyrnusambandið hefur
fengið undanþágu fyrir leikina á
Wembley þannig að leyfilegt sé að
nýta fjórðung af sætum vallarins.
Undanúrslit og úrslitaleikur EM
fara fram á Wembley dagana 6. til
11. júlí en UEFA vonast eftir því að
þá verði búið að rýmka heimild-
irnar enn frekar og 45 þúsund
áhorfendur geti mætt á völlinn á þá
leiki.
AFP
Wembley Englendingar sigruðu Pólverja á tómum þjóðarleikvangi sínum í
síðustu viku en þeir fá góðan stuðning á leikjunum þremur á EM í sumar.
Fjórðungur sæta
á Wembley á EM