Morgunblaðið - 09.04.2021, Side 32

Morgunblaðið - 09.04.2021, Side 32
Alls hafa 7.553 börn á aldrinum fimm til fimmtán ára heimsótt Borgarleikhúsið á fyrstu þremur mánuðum ársins, þrátt fyrir þær samkomutakmarkanir sem sett hafa sviðslistastofnunum landsins miklar skorður í rekstri. Samkvæmt upplýsingum frá Borgarleikhúsinu fengu þrír árgangar boð um að sjá þrjár ólíkar leiksýn- ingar í húsinu. Fimm ára börn sáu Leikskólasýningu ársins, 11 ára krakkar sáu Stúlkuna sem stöðvaði heim- inn og 15 ára unglingar sáu Allt sem er frábært. Tölu- verður fjöldi grunnskólanemenda tók síðan þátt í hæfi- leikakeppninni Skrekk í leikhúsinu. Auk þess voru sýndar barnasýningarnar Gosi og Fuglabjargið. 7.553 börn í Borgarleikhúsið FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Glíman við Augusta National-golfvöllinn í Georgíuríki í Bandaríkjunum reyndist mörgum af snjöllustu kylf- ingum heims erfið í gær þegar Masters-mótið hófst. Mótið er fyrsta risamót ársins í golfinu hjá körlunum og einn stærsti íþróttaviðburður í Bandaríkjunum ár hvert. Þrátt fyrir heimsfaraldurinn eru áhorfendur leyfðir á mótinu en þó ekki nema um fjórðungur þess fjölda sem alla jafna er leyfður á mótinu. Völlurinn er harður og mikla útsjónarsemi þarf til að leika þetta árið. Ólympíu- meistarinn Justin Rose átta langbesta hringinn. »26 Rose í miklu stuði þegar margir áttu erfitt uppdráttar á Augusta ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Við Grafarvogskirkju í Reykjavík hef- ur verið hrundið af stað söfnun vegna kaupa á orgeli fyrir kirkjuna. Í hljóð- færasmiðjunni Aeris Orgona í Búda- pest í Ungverjalandi er um þessar mundir verið að leggja lokahönd á smíði orgelsins sem er 33 radda og píp- ur þess 2.277 talsins. Til þess að fjár- magna kaupin stendur fólki nú til boða að kaupa eða borga fyrir pípur, sem eru misjafnar að stærð. Minnstu píp- urnar kosta 5.000 kr. og svo hækkar verðið hlutfallslega eftir stærð. Fyrir þær stærstu þarf að gefa 100 þús. kr. Vagga tónlistarlífs „Veglegt pípuorgel er nokkuð sem alltaf hefur vantað í Grafarvogskirkju, sem var vígð árið 2000,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur. „Orgelið sem við höfum í dag hæfir ekki kirkjunni sem er vinsæl fyrir kirkjulegar athafnir og tónleika auk helgihaldsins. Tónlistarfólk og kór- stjórar sem hér spila í athöfnum velja oft flygil í stað orgels. Með pípuorgeli væntum við að breyting verði þar á, enda eru hér oft haldnir tónlistar- viðburðir af ýmsum toga. Grafarvogs- kirkja er að mörgu leyti vagga tónlist- arlífs hér í hverfinu. Væntanlega mun tónleikum fjölga enn frekar með til- komu orgelsins. “ Stór biti fyrir söfnuðinn Reiknað er með að uppsett með öllu kosti orgelið góða 110 milljónir króna. Í orgelsjóði Grafarvogskirkju eru í dag um 70 milljónir króna, svo enn vantar 40 milljónir króna í pott- inn. „Kaupin á orgelinu eru stór biti fyrir söfnuðinn og við tökum ekki við hljóðfærinu fyrr en fjámögnun er tryggð alla leið,“ segir Guðrún. „Sal- an á pípunum er leið til þess að ná þeirri upphæð sem upp á vantar og sem betur fer höfum við fengið frá- bærar viðtökur hjá fólki hér í hverf- inu og fleirum. Ég vona að málið náist í höfn í vor og þá verði hljóðfærið flutt til landsins og sett upp í kirkjunni í sumar. Uppsetning orgelsins er tveggja mánaða verkefni og á meðan verður helgihald okkar og athafnir í Kirkjuselinu í Spöng.“ Langt er síðan farið var að safna fyrir orgelkaupunum og var málið komið á rekspöl fyrir 15 árum eða svo, en var sett á núllpunkt eftir efna- hagshrunið árið 2008. „Fyrir nokkr- um misserum var svo farið af stað að nýju og eftir ábendingum var leitað til hins unga og áræðna Ungverja Fa- rago Attila,“ segir Hákon Leifsson organisti og bætir við: Breytir ásýnd athafna „Attilla hefur getið sér orð fyrir smíði endurgerða af sögulegum org- elum. Hann er langt kominn með smíði orgelsins nýja, sem er í 19. aldar snemmrómantískum stíl. Það hefur samt nútímalegt útlit og fullkominn stafrænan búnað. Hljóðfærið mun því í mörgu tilliti breyta ásýnd athafna hér í Grafarvogskirkju sem er þekkt fyrir góðan hljómburð.“ Selja pípur og safna fyrir kaupum á orgeli - 33 radda orgel væntanlegt í Grafarvogskirkju í sumar Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónlist Hákon Leifsson organisti og Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur með pípu eins og nú er hægt að kaupa. Alls verða 2.277 slíkar í nýju hljómmiklu orgeli kirkjunnar, en nú er verið að leggja lokahönd á smíði þess. Grafarvogssókn - Orgelsjóður kt. 520789-1389 / 0301-22-7382 EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF HEILSUDÝNUM GERIÐ GÆÐA & VERÐSAMANBURÐ NÝ NÁTTÚRULEG HEILSUDÝNA Á KYNNINGARVERÐI MARGAR STÆRÐIR Í BOÐI MIÐGARÐUR KODDA OG LÍN SPREY MIKIÐ ÚRVAL AF GÓÐUM ILMVÖRUM NÝTT Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.