Morgunblaðið - 13.04.2021, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021
SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA UM LEIÐ OG COVID LEYFIR.
Starfsfólk Sambíóanna sendir ykkur öllum bestu kveðjur.
Hlökkum til að hitta ykkur í bíó aftur og upplifa
skemmtilegar stundir saman.
VÆ
NT
AN
LEG
Í B
ÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR
VÆNTANLEG Í BÍÓ
Eftir að hafa verið þrjú ár í undir-
búningi hefur flennistór sýning á
verkum japönsku myndlistarstjörn-
unnar Yayoi Kusama verið sett upp í
hinum víðáttumikla grasagarði
Bronx-hverfisins í New York. Gagn-
rýnendur hrósa sýningunni í hástert
og segja að allt þetta pláss – verk-
unum er dreift um 100 hektara garð-
inn – henti afar vel nú á tímum
heimsfaraldurs kórónuveirunnar þar
sem hægt er að njóta líflegra og
bráðskemmtilegra verkanna úti í
vorgrænni náttúrunni en flest eru
sett upp utan dyra.
Popp- og gjörningalistakonan Ya-
yoi Kusama er orðin 92 ára og hefur
notið sívaxandi vinsælda í hinum al-
þjóðlega myndlistarheimi. Hún hefur
lengi glímt við andleg veikindi og
meðal annars ofskynjanir sem hún
hefur leikið með í verkunum en þau
eru flest auðþekkt vegna hvítra
hringanna á litríkum flötunum sem
listakonan vinnur oftast með. Einnig
hafa speglasalir sem hún hefur sett
upp í söfnum víða, og virðast skapa
óendanleg rými, lengi notið hylli.
Kusama hefur frá æsku verið heill-
uð af heimi plantna og dýra og sækir
þangað lífræn form skúlptúra sinna.
Mörg ævintýralegra verkanna á sýn-
ingunni í New York eru flennistór og
sett upp í sjónrænu samtali við tré og
tjarnir í garðinum. Þá eru einnig sett
upp verk innandyra í sýningarsölum
grasagarðsins, til að mynda yfirlits-
sýning á eldri málverkum og gjörn-
ingum listakonunnar sem starfaði
um tíma fyrir um hálfri öld í New
York-borg en flutti aftur heim til
Japans til að leita sér lækninga við
veikindunum.
Heiti sýningarinnar er Kusama:
Cosmic Nature og er 250 gestum
hleypt inn í einu og því lofað að allir
hafi nægilegt rými til að njóta hressi-
legra verkanna innan um gróðurinn,
sem er tekinn að blómstra. Og stund-
um virðast verk Kusama vera eins
konar ávextir á raunverulegum
plöntum en nokkur hávaxin tré hafa
bókstaflega verið klædd í sköp-
unarverk listakonunnar.
Gagnrýnandi The New York Tim-
es er hrifinn af framkvæmdinni og
finnst „hófstilltur hápunktur“ sýn-
inarinnar vera verkið „Garður Nars-
issusar“ sem er endurgerð verks sem
Kusama setti upp í Feneyjum árið
1966. Verkið er 1.500 spegilgljáandi
kúlur sem fljóta á tjörn og við hana
er skilti sem á stendur: „Sjálfhverfni
þín er til sölu“.
Litríkt Einn hinna stóru skúlptúra Kusama, „I Want to Fly to the Universe“, speglast í tjörn. Fljótandi speglar Í verkinu „Garður Narsissusar“ fljóta 1.500 spegilgljáandi kúlur á andatjörn.
Ævintýri Kusama í grasagarðinum
- Fjöldi stórra verka eftir Yayoi Kusama settur upp í grasagarði Bronx-hverfis í New York
AFP
Lífrænt Í nokkrum verka Yayoi Kusama í grasagarði Bronx-hverfis hafa tré hreinlega verið klædd í sköpunarverk
listakonunnar, til að mynda hér í verkinu „Ascension of Polka Dots on Trees“ sem tekur sig vel út í vorgrænkunni.