Morgunblaðið - 13.04.2021, Side 32
Þegar sólin var að búa sig undir að setjast í Georgíu í
Bandaríkjunum undir kvöld á sunnudag var hún að
koma upp á mánudagsmorgni í Japan. Hideki Matsu-
yama var þá að klæðast græna jakkanum á Augusta
National-golfvellinum eftir að hafa sigrað á Masters,
fyrsta risamóti ársins hjá körlunum í íþróttinni. Japanir
vöknuðu því við þau tíðindi að Japani hefði unnið risa-
mót í golfi hjá körlunum í fyrsta skipti. Japanskar kon-
ur höfðu áður afrekað slíkt. Í blaðinu í dag er að finna
umfjöllun um Hideki Matsuyama. »26
Stórfréttir fyrir Japani bárust yfir
hafið í morgunsárið á mánudegi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn hefur riðl-
að mörgu og hefði veiran ekki
skollið á heimsbyggðinni í fyrra
væri Keflvíkingurinn Kristinn
Óskarsson búinn að dæma yfir
1.000 leiki í efstu deild karla í
körfubolta. Hann hefur dæmt 997
leiki í deildar- og úrslitakeppninni,
samkvæmt samantekt Rúnars
Birgis Gíslasonar, eftirlitsmanns
FIBA, og bíður spenntur eftir því
að keppni verði leyfð á ný. „Ég
trúi því að við komumst á gólfið á
ný og náum að ljúka mótunum
með einhverjum hætti, get varla
beðið eftir að byrja aftur,“ segir
hann.
Samkomutakmarkanir gera
dómurum í íþróttum lífið leitt.
Þeir verða að halda sér í formi við
óvenjulegar aðstæður, hafa ekkert
húsnæði til æfinga fyrir utan
heimili sín og dómarar í bolta-
íþróttum fá enga leikæfingu frek-
ar en leikmenn. „Dómarar fara út
að hlaupa en veðrið hefur verið
leiðinlegt að undanförnu og ekki
bætt stöðuna,“ segir Kristinn, sem
hefur útbúið sér æfingaaðstöðu í
bílskúrnum sínum til að halda sér
við.
Dæmdi 18 ára í efstu deild
Keflavík hefur lengi verið
Körfuboltabærinn með stóru K-i
og Kristinn æfði og lék í yngri
flokkum ÍBK. Hann byrjaði að
dæma í fjölliðamótum yngri
flokka, tók dómarapróf 1986,
dæmdi fyrsta leik sinn í efstu
deild kvenna árið eftir, þá 18 ára,
og fyrsta leikinn í meistaraflokki
karla 1988. „Ég hef því dæmt á
fimm áratugum,“ bendir hann á,
en samkvæmt fyrrnefndri saman-
tekt hefur hann dæmt 1.887 leiki á
vegum KKÍ. Rögnvaldur Hreið-
arsson hefur dæmt 2.027 leiki,
Sigmundur Már Herbertsson
1.990 leiki og Jón Otti Ólafsson
dæmdi 1.673 leiki.
„Þetta hefur verið ótrúlega
gaman allan tímann,“ segir Krist-
inn um dómaraferilinn, en hann
hefur m.a. dæmt 197 leiki í efstu
deild kvenna og 30 í úrslitakeppn-
inni, 12 bikarúrslitaleiki karla og
fimm bikarúrslitaleiki kvenna, og
82 FIBA leiki í 19 löndum, þar
sem lið frá 42 þjóðum hafa keppt.
Hann tiltekur þrjú atriði sem
haldi sér við efnið. „Í fyrsta lagi
finnst mér ég vera að gera gagn. Í
öðru lagi tel ég mig enn vera í
framför. Það gætu verið hugar-
órar gamals manns, en mér finnst
ég vera betri í ár en í fyrra. Það
mikilvægasta er samneyti við allt
þetta góða fólk, vini mína í dóm-
gæslunni og fólkið í hreyfingunni.
Auðvitað hefur stundum gefið á
bátinn en það er hluti af þessu og
það eru algjör forréttindi að fá að
taka þátt í íþróttinni á efsta stigi,
kominn á sextugsaldur.“
Kristinn var íþróttakennari í
áratug, sneri sér síðan að mann-
auðsmálum og er nú mannauðs-
stjóri hjá Reykjanesbæ. Hann er
alþjóðlegur leiðbeinandi dómara
með það hlutverk að deila fræðslu
frá FIBA. Í mörg ár hefur hann
verið nokkurs konar þjálfari dóm-
ara, hvatt þá áfram og sett mark-
miðin. „Þar fæ ég útrás fyrir
kennaraelementið í mér,“ segir
orkuboltinn og bætir við að hann
leggi alltaf áherslu á gæði umfram
magn. „Mér finnst alveg nóg að
dæma 70 til 80 leiki á ári. Ég
fagna hverjum leik og get ekki
hætt við þessar aðstæður, vil
hætta að loknu heilu eðlilegu
tímabili og stefni því á að minnsta
kosti eitt ár í viðbót.“
Tímamót hjá einum
reyndasta dómaranum
- Kristinn Óskarsson æfir sig í bílskúrnum fyrir næstu leiki
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í leik Kristinn Óskarsson fylgist vel með Larry Thomas og Jakobi Sigurð-
arsyni til hægri í viðureign KR og Þórs frá Þorlákshöfn í janúar.
Á æfingu Kristinn hjólar, lyftir og
teygir í bílskúrnum heima.
Opið: 11-18 virka daga www.alno.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is
ALVÖRU ELDHÚS
Verið velkomin í sýningarsalinn að
Suðurlandsbraut 26
innlifun.is
Við hönnum
DRAUMAELDHÚSIÐ
EFTIR ÞÍNU HÖFÐI
Alþjóðlegi myndlistardagurinn World Art Day verður
haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn á Íslandi á fimmtudag-
inn, 15. apríl, með ýmsum viðburðum á vegum Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna, SÍM, eins og sjá má
á Facebook-síðu þess. Í tilefni dagsins vill SÍM vekja at-
hygli á listamannareknum rýmum á Íslandi og því ötula
starfi sem þau vinna í þágu myndlistar. Í aðdraganda
World Art Day hefur SÍM birt kynningarmyndbönd á
Instagram, Facebook og Youtube, eitt á dag, frá 1. apríl,
þar sem nokkur listamannarekin rými eru kynnt.
World Art Day haldinn hátíðlegur
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 103. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING