Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021 Þ að hefur eitthvað gerst. Ég veit ekki ná- kvæmlega hvað það er en það er alveg ljóst að jafnvel eðlilegustu hlutir hafa breyst þannig að þeir eru algjörlega óþekkj- anlegir. Nema, og það er sennilega líklegra, að minnið sé farið að gefa sig og allt úr æskunni sé baðað í ljósrauðum bjarma áhyggjuleysis. Ég ólst upp við að bera út blöð. Öll blöð sem komu út: Moggann, sem fór á nánast hvert heimili, Þjóðviljann, sem fór býsna víða, Tím- ann, sem var ekki alveg jafn vinsæll í Reykja- vík, og Alþýðublaðið, sem var venjulega í örfá- um eintökum, enda varla hægt að kalla eina opnu dagblað. Í minningunni skottaðist ég um heilu póst- númerin áhyggjulaus. Man ekki einu sinni eft- ir því að hafa þurft að vakna neitt sérstaklega snemma. Helstu minningarnar eru að standa í dyragættinni um kvöld, með lykt af soðinni ýsu fyrir vitunum að rukka fyrir blaðið. Það var nefnilega hluti af því að vera blaðberi að sjá til þess að fólk borgaði. Og sennilega erfið- asti hlutinn því fólk átti ekki alltaf pening og stundum þurfti maður að koma nokkrum sinn- um og jafnvel geyma ávísanir. Reglan var nefnilega sú að ef kaupendur borguðu ekki – þá fékkst þú ekki borgað. Þetta þótti semsagt eðlilegt þá. Ungir krakkar á ferð um kvöld með mikla peninga í vasanum að banka upp á hjá ókunnugu fólki. Þetta er nánast eins og sögur úr annarri vídd. Það er liðin tíð og enginn þarf að standa í að rukka. Og því fannst mér gráupplagt að bjóða dóttur minni, sem er að safna sér fyrir hesti, að prófa að bera út blöð. Bara tvo daga til að athuga hvort þetta væri eitthvað sem hana langaði til að gera. Þetta er á listanum yfir einhverjar verstu hugmyndir sem ég hef fengið. Ekki síst vegna þess að ég ákvað að vera nú góði pabbinn og labba þetta með henni. Sem var reyndar bara eins gott. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að blaðburði sé lokið fyrir klukkan sjö. Lokið. Það þýðir að það þarf að vakna klukkan nótt. Í öðru lagi fylgir alls konar dót með, bæklingar og auglýsingar og það þarf allt að fara á réttan stað. Það eru nokkrar tegundir af miðum sem afþakka fjöldapóst eða fríblöð og sumir eru með hand- skrifaðar leiðbeiningar. Þetta þarf allt að skoða í myrkrinu. Í þriðja lagi virðist hafa gripið um sig mjög bjánaleg tíska í útidyrum. Pínulitlar lúgur og jafnvel neðst á hurðinni eru ekki draumur blaðberans. Sérstaklega ekki þegar þykku helgarblöðin þurfa að komast í gegn. Í fjórða lagi þurftu þessir tveir dagar að lenda á einhverju versta kuldakasti vetrarins þar sem fólki var bent á að best væri nú að halda sig heima. Einmitt. Það kom semsagt í ljós að það sem var í minningunni léttur göngutúr áður en maður fór í skólann var orðið að tveggja tíma stífri vinnu við að klífa ísilagðar tröpp- ur, troða blöðum í gegnum lúgur sem voru senni- lega bara hann- aðar fyrir póst- kort og í mesta lagi umslög og lesa á illa merkt- ar útidyr svo Mogginn félli ekki í rangar hend- ur. Sem reyndar gerðist tvisvar og biðjumst við velvirðingar á því. Þegar þú lest þennan pistil með morgunkaffinu í hlýjunni er allt í lagi að hugsa til blaðberans sem mögulega barðist í gegnum appelsínugula viðvörun til að koma blaðinu til þín. Og ég get sagt þér að blað- berinn var ekki við feðginin. Því jafn ákaft og hana dreymir um hest þá held ég að ég geti fullyrt að hún hefur lokið störfum sem blaðberi. Eftir seinni daginn, þegar við stauluðumst örþreytt inn þá leit hún á mig og sagði af nokk- urri yfirvegun: „Það var gaman að fara með þér í göngutúr en þetta gerum við aldrei aft- ur.“ Við sjáum til. Þessi hestur er ekki að fara að kaupa sig sjálfur. ’ Þetta þótti semsagt eðlilegt þá. Ungir krakkar á ferð um kvöldin með mikla peninga í vasanum að banka uppá hjá ókunnugu fólki. Þetta er nánast eins og sögur úr annarri vídd. Á meðan ég man Logi Bergmann Eiðsson logi@mbl.is Blaðberadraumar N ú er útlit fyrir að halli rík- issjóðs á síðasta ári hafi verið 200 milljarðar eða 6,6% af vergri landsframleiðslu. Á þessu ári er útlit fyrir miklu meiri halla eða 10,2%. Það er mun verri af- koma en 2009, fyrsta árið eftir bankahrunið, og þótti þó flestum nóg um. Þessi alvarlega staða ógnar vel- ferð landsmanna. En hún kemur misjafnlega harkalega niður á fólki til skemmri tíma. Einna verst bitnar hún á þeim ríflega 20 þúsund ein- staklingum sem eru atvinnulausir. Fjöldi þeirra sem hefur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði hefur meira en tvö- faldast á einu ári og þeir eru nú upp undir fimm þúsund. Heildar- atvinnuleysi er farið að nálgast 13% og er meira en það varð mest í kjöl- far bankahrunsins. Blikur á lofti Ástæðan fyrir þessari slæmu stöðu er í stórum dráttum bara ein: Nær algjör samdráttur í ferðaþjónustu. Atvinnuveginum sem stóð undir um 40% af útflutningstekjum Íslands á liðnum árum. Til lengri tíma vegur þessi staða að grunni velferðar okkar allra, með einum eða öðrum hætti. Lykilspurn- ing í því sambandi er: Hversu langur tími er „til lengri tíma“? Við getum náð kröftugri við- spyrnu og rétt hratt úr kútnum. En algjör forsenda þess er að ferðaþjón- ustan nái sér aftur á strik. Áætlanir um afkomu ríkissjóðs á þessu ári (10,2% hallarekstur) miðast við spá Hagstofunnar um að hingað komi yf- ir 700 þúsund erlendir ferðamenn í ár. Blikur eru á lofti hvað það varðar eins og allir þekkja. Það er alvarlegt og ber að taka alvarlega. Bólusetn- ingar, bæði hér á landi og erlendis, munu ráða mestu um framvinduna. Ferðaviljinn erlendis Ef forsendur skapast til að létta á hörðum takmörkunum við landa- mærin er hins vegar ástæða til bjartsýni. Það sýnir m.a. ný könnun um ferðavilja á helstu markaðs- svæðum okkar, sem Íslandsstofa lét gera í febrúar (fyrir gos). Um fjórð- ungur Bandaríkjamanna býst við að ferðast til útlanda á næstu sex mán- uðum. Athygli vekur að hlutfallið er töluvert lægra í Evrópu en engu að síður er ferðaviljinn þokkalegur í ljósi aðstæðna. Júní og september eru oftast nefndir þegar spurt er um tímasetningu. Talið er að miðað við þessar niðurstöður sé ekki alveg úti- lokað að spár um 700 þúsund ferða- menn geti gengið eftir, en til þess þarf margt fleira að ganga upp. Ísland skorar næsthæst í könn- uninni þegar spurt er um viðhorf til sjö landa sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Þar erum við sjónarmun á eftir Nýja-Sjálandi en þessi tvö lönd skera sig nokkuð úr hvað varð- ar jákvætt viðhorf. Ísland skorar reyndar líka hæst þegar spurt er hvaða löndum fólk treysti best til að hafa stjórn á Covid. (Því miður var ekki spurt um Nýja- Sjáland). Það er al- veg ábyggilega orsakasamband þarna á milli; samkeppnisforskot felst í því fyrir Ísland að halda far- aldrinum niðri og mikilvægt að hafa það í huga. Bandaríkjamenn eru líklegastir til að heimsækja Ísland á næstu 12 mánuðum samkvæmt könnuninni. Um 14% þeirra segjast hafa það á stefnuskránni. Þó að hlutfallið sé lægra í Bretlandi var Ísland þó í öðru sæti yfir líklegustu áfangastaði Breta, af þeim löndum sem spurt var um. Þetta sýnir tækifærin sem við stöndum frammi fyrir til að bæta þá vondu stöðu ríkissjóðs sem lýst var hér að framan og vegur að velferð okkar allra. Og ekki hefur eldgosið í Geldingadal dregið úr þeim. Fleira skiptir máli Það væri þó rangt að skilja við mál- efnið á þeim nótum að ekkert annað en ferðaþjónustan skipti máli fyrir viðspyrnu Íslands. Við höfum ótal sóknarfæri. Nýsköpunarumhverfið dafnar sem aldrei fyrr, meðal annars með auknum stuðningi stjórnvalda. Orkuskipti eru stórt efnahagslegt tækifæri til lengri tíma litið og ný- lega var kynnt sérstakt átak sem mun hraða för okkar í átt að grænni framtíð. Við megum aldrei missa sjónar á því hve Ísland á stór tæki- færi til vaxtar og velferðar, hversu alvarlegar sem núverandi áskoranir eru. Morgunblaðið/Eggert Vegið að velferð Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’ Til lengri tíma vegur þessi staða að grunni velferðar okkar allra, með ein- um eða öðrum hætti. „… það felst samkeppn- isforskot í því fyrir Ís- land að halda faraldr- inum niðri og mikilvægt að hafa það í huga.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.