Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021 E r til betri staður til að hitta Björgvin Halldórsson að máli en Rokksafn Íslands í Hljómahöllinni eða Stap- anum í Reykjanesbæ? Þar er saga popp- og rokktónlistar á Íslandi rakin í máli, munum og myndum og þáttur Björgvins ekki lítill enda losar ferill söngvarans vinsæla fimmtíu ár. Björgvin er mættur á svæð- ið þegar okkur Eggert Jóhannesson ljósmynd- ara ber að garði og er að fara yfir hluta af gít- arasafni sínu, sem er til sýnis í safninu, ásamt Tómasi Young, framkvæmdastjóra Hljómahall- arinnar, enda bættist nýverið nýtt djásn í safnið, forláta Hofner-bassagítar, árgerð 1961, eins og Paul McCartney spilaði á í Bítlunum. Þarna er líka að finna fyrsta gítar Björgvins, blómum skreyttan kassagítar, og fjölmarga sem hann hefur eignast þar á milli, hvern öðrum merki- legri enda er maðurinn safnari af Guðs náð. Og fylgist vel með. Þegar Björgvin sér rokksögu- legan gítar sem hann langar að eignast ann hann sér ekki hvíldar fyrr en hann hefur leyst gripinn til sín. Það er harður húsbóndi, safn- araeðlið, og líður engar málamiðlanir. Margt merkra gripa er í Rokksafninu. Eftir að hafa heilsað sendinefnd Sunnudagsblaðsins með nettum olnboga sýnir Björgvin okkur trommusett síns gamla félaga Gunnars Jökuls Hákonarsonar, einn af einkennisbúningum stjörnusveitarinnar Change, sem flutti til Lundúna á áttunda áratugnum til að meika það, og sitthvað fleira. Þarna er til dæmis heill veggur með myndum af plötualbúmum sem Björgvin hefur sent frá sér. Engu er logið um afköstin. Loks nemur Björgvin staðar við nýj- asta gripinn í safninu, flygil sem var í eigu Ragnars heitins Bjarnasonar söngvara og þar á undan föður hans, Bjarna Böðvarssonar hljómsveitarstjóra. Að sönnu rokkmenningar- legt verðmæti – og hljómurinn ennþá góður, eins og Björgvin sýnir okkur fram á. Þegar Eggert ljósmyndari hefur lokið sér af komum við Björgvin okkur makindalega fyrir í bíósal safnsins í þessum líka dúnmjúku leður- stólum. Vel fer á því enda söngvarinn forfall- inn áhugamaður um kvikmyndir og setti á sín- um tíma Bíórásina á laggirnar. Ágrip af sögu íslenskrar rokktónlistar má sjá á tjaldinu og við höfum ekki setið lengi þegar Krummi, son- ur Björgvins, birtist ber að ofan með félögum sínum í Mínus. Augljóslega fæddur til að standa á sviði. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, eins og þar stendur. „Ég er eiginlega ekki búinn að átta mig á þessu, þannig að ég veit ekki hvernig tilfinn- ingin er. Ég hef náttúrlega aldrei orðið svona gamall áður,“ byrjar Björgvin að svara fyrstu spurningunni en hún snýr að tímamótunum sem eru fram undan en hann verður sjötugur hinn 16. apríl. „Það var mikið stuð undir lok sjöunda áratugarins og svo áfram á áttunda og níunda áratugnum og hver hefði getað ímynd- að sér að öllum þessum árum seinna yrði mað- ur búinn að fylla allar þessar hallir og gefa út allar þessar plötur?“ Popparar voru ungt fólk Þegar Björgvin var ungur þótti honum gamalt að verða fimmtugur, hvað þá sjötugur. Og var ugg- laust ekki einn um það. Er það ekki alltaf þannig þegar við horfum á þá sem eldri eru? Margt hef- ur líka breyst á umliðnum áratugum og fólk slít- ur sér upp til hópa seinna út, sjötugur maður í dag er ekki sama og sjötugur maður árið 1971. „Mér finnst ég ekki vera gamall,“ heldur Björgvin áfram, „enda heldur músíkin mér ungum. Ég hef alltaf fylgst vel með, bæði sen- unni hér heima og erlendis, og það hefur gefið mér mikinn kraft sem ég nærist ennþá á. Hljómsveitin mín í dag er líka skipuð mun yngri mönnum sem brýnir mig og fær mig til að vera á tánum.“ – Hefðum við hist árið 1971 og ég sagt þér að þú yrðir ennþá að syngja sjötugur, hefðirðu trúað mér? „Nei, ertu frá þér? Ég gat ekki ímyndað mér að ég yrði ennþá að sjötugur, án þess að ég hafi endilega verið að velta því mikið fyrir mér. Þegar ég var að byrja í bransanum voru popp- arar langmest ungt fólk, undir þrítugu, og ekki óalgengt að maður fengi eftirfarandi spurn- ingu frá sér eldra fólki: Hvernig er þetta eigin- lega með þig drengur, hvenær ætlarðu að hætta að leika þér og fara að gera eitthvað af viti? Og farðu svo í klippingu!“ Hann hlær. Sennilega væri fátæklegt um að litast í Rokksafni Íslands hefðu frumherjarnir, kyn- slóð Björgvins, farið að þeim ráðum. „Einhverju sinni var ég spurður hvort ég myndi ekki bara enda á Hótel Sögu,“ rifjar Björgvin upp. „Ég svaraði því til að það yrði þá bara með sinfóníuhljómsveit en það fór samt svo að ég söng þarna einn vetur með bandi, frábærum mönnum, og hafði mjög gaman af. Á þeim tímapunkti hafði maður löngu áttað sig á því að ekki yrði aftur snúið og ég er gæfusam- ur maður að hafa alla tíð fengist við það sem ég hef gaman af; listagyðjan læsti í mig klónum og ég mun halda ótrauður áfram meðan röddin dugar. Við Raggi Bjarna og fleiri komum fram saman á Fiskideginum mikla á Dalvík fyrir ör- fáum árum og hann var eins og tímastillir á okkur hin – söng þangað til hann var 85 ára og hafði ekkert fyrir því. Það segir okkur meira en öll orð um það að aldur er afstæður. Bara hugarástand.“ Býður inn á skrifstofuna Björgvin heldur að sjálfsögðu upp á æfmælið með pomp og prakt á tónleikum í Borgarleik- húsinu að kvöldi afmælisdagsins, 16. apríl. Engir gestir verða í sal vegna heims- faraldursins en dagskránni verður streymt á netinu og hjá Símanum og getur fólk nálgast kóðamiða á tix.is. „Covid hefur verið algjör bömmer fyrir okk- ur tónlistarmenn en neyðin kennir naktri konu að spinna og þar sem veiran er ekki alveg á förum kemur streymið í góðar þarfir. Við Sena Live prófuðum þetta með Jólagesti Björgvins í fyrra og það heppnaðist alveg ljómandi vel. Við seldum meira að segja þúsund miða í út- löndum, Alsír, Nýja-Sjálandi, Portúgal og víð- ar. Eflaust mest til Íslendinga og fólks sem tengist landinu. Það var mjög gaman að geta komið með þessa tónleika heim í stofu til fólks.“ Á þeirri reynslu verður byggt 16. apríl til að færa fólki afmælisveisluna heim. „Ég er með æðislegt teymi með mér í þessu, bæði á sviðinu og að tjaldabaki. Þetta verður svona má-bjóða- ykkur-inn-á-skrifstofuna-mína-stemning. Ég og gestir mínir syngjum lög sem ég hef sungið gegnum tíðina. Svala og Krummi verða þarna, GDRN, KK og Jóhanna Guðrún og í bakrödd- um Friðrik Ómar, Regína Ósk og Eyfi Krist- jáns, en sá kæri vinur minn verður einmitt sex- tugur á miðnætti þetta kvöld. Frábær stórhljómsveit Björgvins verður til staðar skipuð vinum og samstarfsnönnum. Ísleifur Þórhallsson, sá mikli tónleikahaldari, og Sena Morgunblaðið/Eggert Eyrað vill láta kitla sig Björgvin Halldórsson, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, verður sjötugur 16. apríl næstkomandi og heldur upp á tímamótin með tónleikum sem streymt verður úr Borgarleikhúsinu þá um kvöldið. Björgvini finnst hann ekki vera gamall enda haldi tón- listin, sem gefið hefur honum svo margt, honum ungum og ferskum. „Ég mun halda ótrauður áfram meðan röddin dugar.“ Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Það var mikið stuð undir lok sjöunda áratugarins og svo áfram á áttunda og níunda ára- tugnum og hver hefði getað ímyndað sér að öllum þessum árum seinna yrði maður búinn að fylla allar þessar hallir og gefa út allar þessar plötur? „Ég hef alltaf fylgst vel með, bæði senunni hér heima og erlend- is, og það hefur gefið mér mikinn kraft sem ég nærist ennþá á,“ segir Björgvin Halldórsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.