Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Síða 15
4.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 „Nei, alls ekki. Í dag er þetta bara æðislega skemmtileg minning; eitt af mörgum ævintýr- um sem maður hefur lent í. Annað eftirminni- legt ævintýri var tónleikaferðin sem ég fór í með hljómsveit minni til Sovétríkjanna 1982 og spilaði vítt og breitt. Það voru 28 tónleikar, í Jerevan, þar sem hörmungarlandsleikur fór fram á dögunum, og í Sotchi.“ Björgvin kom víðar við og ekki má gleyma fyrstu sólóplötunni, Þó líði ár og öld, sem kom út 1971. Né heldur Einu sinni var: Vísur úr Vísnabókinni sem hann gerði ásamt Gunnari Þórðarsyni og Tómasi M. Tómassyni 1976, en hún seldist í bílförmum. „Við tókum þetta upp í stúdíóinu fræga í London, þar sem The Who gerði Tommy. Það var frábært að vinna með þessum snillingum. Blessuð sé minnig Tomma bassa! Enn og aftur. Ég hef séð á bak mörgum eftirminnilegum samstarfsmönnum.“ Tóku viðtöl við endur á tjörninni Björgvin lifði alfarið á tónlist þangað til börn hans og eiginkonu hans, Ragnheiðar Bjarkar Reynisdóttur, komu í heiminn. Svala fæddist 1977 og Krummi 1979. Fyrir átti Björgvin son- inn Sigurð Þór sem fæddist 1971. „Þegar börnin voru komin í spilið þurfti maður að eignast íbúð og axla meiri ábyrgð. Ég var áfram á fullu í tónlistinni en hef unnið ýmis störf meðfram henni gegnum tíðina. Um skeið vann ég á auglýsingastofu, var markaðs- stjóri hjá Óla Laufdal á Broadway og kom með ýmsa fræga tónlistarmenn til landsins. Ég var líka framkvæmdastjóri stúdíó Sýrlands og framkvæmdastjóri útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar. Þar störfuðu Eiríkur Jónsson og Jón Ársæll Þórðarson meðal annarra og tóku viðtöl við endurnar á tjörninni.“ Hann hlær. Björgvin var dagskrárstjóri Bylgjunnar í tvö ár og hefur unnið óslitið fyrir Stöð 2 frá árinu 1992. Meðal annars við markaðsstörf en einnig sem þulur stöðvarinnar fram á þennan dag. Þá kom hann Bíórásinni á fót, svo sem fyrr var getið. Tónlistin hefur þó alltaf ráðið för og ekki hægt að segja að Björgvin hafi nokkru sinni yf- irgefið sviðið þessi rúmlega fimmtíu ár. Brimkló naut áfram vinsælda á níunda ára- tugnum, auk þess sem hann lagði meiri rækt við sólóferilinn. Þá var Björgvin fulltrúi Íslands í Júróvisjón árið 1995, svo eitthvað sé nefnt. Í seinni tíð hefur hann komið með jólin til okkar allra á hinum feikivinsælu tónleikum Jólagestir Björgvins, í bæði Laugardalshöll og Hörpu. – Þú hefur aldrei farið úr hringiðunni? Hverju þakkarðu það? „Ég hef bara haldið mínu striki. Það er langt síðan ég áttaði mig á því að tónlistin fer í enda- lausa hringi og allt sem einhverju sinni hefur verið vinsælt og gott kemur aftur. Þess vegna hef ég aldrei viljað elta tískustrauma; er bara sjálfum mér trúr og mínum rótum. Það hefur gefist ágætlega. Ég hef hljóðritað vel yfir níu hundruð lög en hef eigi að síður alltaf jafn gam- an af því að gera tónlist og stefni á plötu með nýju efni í haust. Þetta er líka spurning um taktík; markaðurinn er lítill og maður vill ekki ofgera fólki með nærveru sinni. Þess vegna reyni ég frekar að koma annað slagið inn á völl- inn og skora kannski eitt og eitt mark.“ – Þú ert auðvitað löngu orðinn vanur en var aldrei erfitt að vera stöðugt með kastljósið á sér? „Í raun og veru ekki enda lærði ég fljótt að skipta mér upp; annars vegar er það sjó- mannssonurinn og fjölskyldumaðurinn Björg- vin Helgi Halldórsson úr Hafnarfirði og hins vegar söngvarinn Björgvin Halldórsson sem ég sæki bara í skápinn þegar ég þarf á honum að halda. En auðvitað hefur gengið á ýmsu. Ég lét ýmislegt flakka þegar ég var yngri, eins og ungir og áhyggjulausir menn gera, og lenti fyrir vikið í hakkavél fjölmiðlanna um stund, þar sem allt sem ég sagði var teygt og togað og ég stimplaður einfaldur og kjaftfor strákur. Það er ekki mitt hlutverk að skrifa söguna en það var samt kærkomið tækifæri til að leið- rétta rangfærslur þegar Gísli Rúnar skrifaði bókina um mig fyrir tuttugu árum. Bara svo mitt sjónarhorn liggi fyrir. Blessuð sé minning Gísla Rúnars, við vorum miklir vinir. Annars hef ég litlar áhyggjur af umfjöllun um mig, hvort sem er í fjölmiðlum eða á samfélags- miðlum. Ég hef ekkert að fela.“ Gæti unnið á bókasafni Eins slitgóður og hann hefur verið í tónlistinni þarf Björgvin varla að búa sig undir feril á öðr- um vettvangi í þessu lífi. En hvað ef hann hefði aldrei orðið söngvari? „Ætli ég hefði ekki fundið mér starf í sam- bandi við tækni og tölvur. Eins og ég gat um áðan þá er ég á heimavelli þar. Ég er líka mik- ill fagurkeri og grúskari og gæti til dæmis vel hugsað mér að vinna á bókasafni. Það er ábyggilega skemmtilegt. Ég hef alltaf dáðst að fallegum hlutum, eins og gíturunum sem ég safna. Það er fimmtíu ára árátta, ætli ég eigi ekki einhver 45 stykki. Ég er líka mjög forvit- inn um gítara og er í sérvitringaklúbbi á netinu til að afla mér meiri upplýsinga. Svo er þetta líka fjárfesting; að safna merkilegum gíturum er eins og að safna málverkum. Þeir halda verðgildi sínu.“ – Safnarðu einhverju fleiru? „Já, ég safna alls konar dóti, mest tengt tón- list. Ég safna til dæmis vínilplötum, vegg- spjöldum og úrklippum sem tengjast ferli mín- um. Mamma byrjaði á því, var stolt af drengnum sínum, og ég hef haldið því áfram. Það efni snýr ekki bara að mér, heldur safna ég líka ýmsu tengdu samferðamönnum mínum í tónlistinni og vil gjarnan hafa það í samhengi við tíðarandann hverju sinni. Þetta er einhver sagnfræðiáhugi. Ég skildi samt aldrei al- mennilega hvers vegna ég var að safna þessu öllu – þar til fyrir fimm árum að sett var upp sýning mér til heiðurs hérna í Rokksafninu. Þá áttaði ég mig. Já, þess vegna var ég að þessu. Rokksafnið er frábært og lofsvert framtak hjá Reykjanesbæ, en hugmyndin kemur upphaf- lega frá Rúna Júl., enda skiptir menningin okkur svo miklu máli. Það er hún sem mótar okkur mest.“ – Þetta er í blóðinu, er ekki bróðir þinn líka forfallinn safnari? „Jú, þessi árátta kemur frá Baldvini, eldri bróður mínum, en hann er einn mesti safnari landsins, gefur út Safnarablaðið og er fimm stjörnu maður á eBay.“ „Ekki hafa svona hátt, strákar!“ Talið berst að því hvað hafi breyst mest í ís- lensku tónlistarlífi á þessum rúmu fimmtíu ár- um. „Hvað tónlistarlífið hefur blómstrað,“ er Björgvin fljótur að segja. „Þegar maður var að byrja voru ekki margir tónlistarmenn þess um- komnir að spila inn á plötur og aðstaðan ekki upp á marga fiska. Þegar ég tók upp mína fyrstu sólóplötu 1971 notaði ég erlenda hljóð- færaleikara og við urðum að gera þetta í húsa- kynnum Ríkisútvarpsins á Skúlagötunni. Jón Múli kom reglulega inn í stúdíóið og sussaði á okkur. „Ekki hafa svona hátt, strákar! Ég er í miðjum fréttum!“ Veggirnir hljóta að hafa ver- ið þunnir. Annars var Jón Múli mikill höfðingi en hundrað ár eru nú liðin frá fæðingu hans. Nú er hér frábær aðstaða til að taka upp tónlist og hver snillingurinn upp af öðrum til að spila.“ – Og gróskan mikil? „Heldur betur. Framboðið er miklu betra en það var í gamla daga og þar sem flestir eru með stúdíó heima hjá sér kemur mikið út. Það efni er auðvitað misjafnt en margt mjög gott. Ég er feginn því að rappararnir séu farnir að syngja melódíur og láta menn spila undir hjá sér, Herra Hnetusmjör, Emmsjé Gauti og þeir. Ég hef efni á að segja þetta vegna þess að ég veit um hvað ég er að tala; legg mig eftir því að setjast niður með heyrnartól og hlusta á þessa tónlist í rólegheitunum. Það er segin saga – við förum alltaf aftur í ræturnar. Eyrað vill láta kitla sig. Þess vegna kemur melódían alltaf aftur. Hvers vegna heldurðu að kántrí njóti alltaf svona mikillar hylli? Það er bara þrír hljómar og sannleikurinn.“ Hann segir textana líka skipta höfuðmáli. „Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á texta; gerði það til dæmis að stefnu hjá Brimkló. Og við verðum að passa upp á söguna og íslenskuna; það er hún sem gerir okkur að þjóð. Unga fólk- ið verður að gæta sín á enskuslettunum, „beis- iklí“ er til dæmis ekki íslenska. Vöndum text- ana og höfum þá skiljanlega!“ Uppistandari inni í skáp Björgvin er þekktur fyrir hnyttin tilsvör og ekki er hægt að sleppa honum án þess að spyrja út í þann góða sið. „Ætli ég sé ekki bara uppistandari inni í skáp,“ svarar hann kíminn. „Ég er húmoristi og svolítið kaldhæðinn að upplagi og ef það opnast gluggi sem getur skýrt margt læt ég það mér helst ekki úr greipum ganga. Gísli Rúnar kallaði þetta ein- línunga og ætli maður hafi ekki séð þetta fyrst hjá grínistunum í Kanasjónvarpinu, George Carlin og þeim gaurum. Svo þarf maður auð- vitað að vera með svör á reiðum höndum á tón- leikum ef einhver úti í sal byrjar að hekla mann. Auðvitað getur lífið verið erfitt en það hlýtur samt að vera auðveldara að glíma við það ef húmorinn er með í för.“ Við endum þar sem við byrjuðum, á tíma- mótunum fram undan. Björgvin er þakklæti efst í huga. „Ég er þakklátur fyrir allt þetta frábæra hæfileikafólk sem ég hef verið svo lán- samur að vinna með. Ég hef staðið á öxlunum á risum. Ég hef lært af ótalmörgum og vonandi einhverjir af mér á móti. Þess utan hef ég ver- ið heppinn með það mikilvægasta í lífinu – fjöl- skylduna, heilsuna og tímann. Ég er líka stolt- ur af því að vera Hafnfirðingur og Íslendingur. Er hægt að hugsa sér fallegra land? Því hef ég kynnst vel gegnum eitt af mínum helstu áhugamálum, stangveiðina, sem ég kolféll fyrir upp úr 1990. Þá fór ég að sjá dýrðina hinum megin við fjallið. Það eina sem ég á eftir er að fara í golfið en eins og það er nú heilsusamlegt sport þá fer ég ekki að gera konunni það líka!“ Svo mörg voru þau orð. Ljósið er kveikt í bíósalnum og við Björgvin göngum saman fram í anddyrið. Þar verða á vegi okkar tveir drengir innan við fermingu. Þeim verður star- sýnt á söngvarann og óska eftir því að fá mynd af sér með honum. Það er auðsótt. Þegar við kveðjum drengina segir sá yngri hýreygur: „Lögin þín eru mjög flott!“ Þar er mælt fyrir munn margra. Morgunblaðið/Eggert Björgvin leikur á flygil vinar síns, Ragnars Bjarnasonar, sem nú er til sýnis í Rokksafni Íslands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.