Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021 KNATTSPYRNA Þegar ég er úti á vellinum nýtég þess bara. Ég vil verameð knöttinn og spila. Við þær aðstæður hugsa ég skýrast og finn ekki fyrir nokkurri pressu,“ segir nýstirnið Jamal Musiala við heimasíðu félags síns, Bayern München, en þessi átján ára gamli piltur hefur slegið í gegn á sínu fyrsta tímabili með Bæjurum og er kominn í þýska landsliðið. Menn spá því þegar að hann hafi burði til að fara alla leið á toppinn. Musiala fæddist í Fulda í Þýska- landi 26. febrúar 2003. Móðir hans er þýsk en faðirinn bresk/níger- ískur. Honum stóð því til boða að leika landsleiki fyrir þrjár ólíkar þjóðir. Þegar Musiala var sjö ára flutti fjölskyldan til Bretlands og eftir stutta viðkomu hjá Southamp- ton bauð Chelsea honum til sín þeg- ar hann var aðeins átta ára. Musiala dafnaði vel í Vestur- Lundúnum og hæfileikarnir komu snemma í ljós. Í viðtalinu á heima- síðu Bayern er hann spurður hvort hann hafi sparkhæfileikana frá föð- ur sínum. „Það hlýtur að vera,“ svarar hann. „Hann var sjálfur góð- ur í fótbolta enda þótt hann gerðist ekki atvinnumaður. Ég byrjaði að spila þriggja ára, fyrir framan húsið með föður mínum. Við lékum bolt- anum endalaust á milli okkar. Ég þurfti að reyna að leika á hann eða hann var í markinu. Fjögurra ára fór ég á mína fyrstu æfingu hjá liði og lék þar með krökkum sem voru árinu eldri.“ Alla jafna yngstur á vellinum Það hefur verið leiðarstefið til þessa dags; Musiala er alla jafna yngsti maðurinn á vellinum. „Ég þurfti alltaf að kljást við eldri og lík- amlega sterkari andstæðinga. Til að ná árangri þurfti ég fyrir vikið að finna aðrar lausnir og nýta líkams- burði mína á réttan hátt. Þegar ég var í skóla á Englandi tefldi ég líka og þar þarf maður að hugsa á fyrir- byggjandi hátt; stöðugt að gera ráð fyrir því hvað andstæðingurinn kann að gera. Ég hafði gaman af því,“ segir hann við heimasíðu Bay- ern. Okkar maður þurfti á allri þeirri herkænsku að halda þegar hann var fyrst valinn í lið Chelsea, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, aðeins 15 ára, tveggja mánaða og 13 daga. Þeir kunna sína tölfræði, Bretarnir. Enginn vill sjá stríð milli Eng- lands og Þýskalands aftur en eins konar ígildi þess skall þó á fyrir nokkrum árum þegar kom að því að velja Musiala í yngri landslið. Eng- lendingar voru á undan; völdu hann 13 ára gamlan í 15 ára liðið sitt. Fljótt var hann færður upp í 16 ára liðið. Þá kom boð frá Þýskalandi og ungi maðurinn hafði búningaskipti til að leika með 16 ára liði Þjóð- verja. Að því búnu færði hann sig aftur yfir í enska liðið og hefur bæði leikið með 17 og 21 árs liðinu, tvo leiki með því síðarnefnda seint á síðasta ári og skoraði í þeim eitt mark. Á þeim tíma benti ekkert til annars en að Musiala myndi velja England enda lærði hann sínar fót- menntir að mestu þar um slóðir og átti góða vini bæði hjá Chelsea og í yngri landsliðunum. Þjóðverjar hentu handklæðinu meira að segja inn í hringinn. „Hann hefur gefið sterklega í skyn að hann sjái fram- tíð sína með ensku landsliðunum. Við virðum þá ákvörðun og óskum honum alls hins besta á íþróttaferl- inum,“ hefur miðillinn Sport 1 eftir yfirmanni unglingalandsliða Þýska- lands, Meikel Schonweitz. Það kom því bæði Þjóðverjum og Englendingum í opna skjöldu þegar Musiala tilkynnti undir lok febrúar síðastliðins að hann ætlaði sér að leika fyrir þýska landsliðið í fram- tíðinni. Joachim Löw lét ekki segja sér það tvisvar og valdi drenginn strax í hóp sinn fyrir þríhöfðann í undankeppni HM í lok mars og setti hann inn á í fyrsta leiknum, gegn Íslendingum í Duisburg. Af virð- ingu við ykkur, kæru landar, læt ég vera að rifja þann leik upp að öðru leyti. „Hjartað í mér slær bæði fyrir Þýskaland og England og svo verð- ur áfram,“ sagði Musiala við mið- ilinn Sportschau þegar ákvörðunin lá fyrir. „Ég hef velt þessu vel og vandlega fyrir mér og á endanum lét ég tilfinninguna ráða og rétta ákvörðunin er að leika fyrir Þýska- land. Eigi að síður var þetta þegar upp er staðið alls ekki svo auðvelt val en ég fæddist í Þýskalandi og þar byrjaði ég að leika knatt- spyrnu.“ Finnur fyrir miklu trausti Musiala hafnar því ekki í téðu við- tali að sú staðreynd að hann flutti sig frá Chelsea yfir til Bayern München árið 2019 hafi haft áhrif á valið. Eftir þau vistaskipti hafi hann fengið sitt fyrsta tækifæri í meist- araflokki og endurnýjað kynnin við móðurlandið. Hann finni fyrir miklu trausti frá hendi Hansi Flick, knatt- spyrnustjóra Bayern, og samherj- anna í liðinu. Skyldi engan undra, Musiala hef- ur hingað til staðið undir öllum væntingum. Hann var fluttur með hraði úr unglingaliði Bayern upp í varaliðið og í júní á síðasta ári þreytti hann frumraun sína með að- alliðinu. Í viðtalinu á heimasíðu fé- lagsins lýsir hann fyrstu æfingunni með Lewandowski, Gnabry, Müller, Kimmich og þeim köppum öllum með mjög skemmtilegum hætti. Hann svaf nær ekkert nóttina áður enda stöðugt að líta á klukkuna. Þegar á svæðið var komið þorði hann heldur ekki að yrða á nokkurn mann, hvað þá setjast niður í bún- ingsklefanum af ótta við að taka snagann af einhverju stórstirninu. Á endanum kom starfsmaður fé- lagsins honum til bjargar. Þess hógværð var þó ástæðulaus enda féll Musiala að Bayern-liðinu eins og flís við rass og hófst þegar í stað handa við að endurskrifa sparksöguna. Hann er yngsti leik- maðurinn í sögunni til að verja heið- ur Bayern í Búndeslígunni, 17 ára og 115 daga. Þjóðverjar eru síst verri í tölfræði en Bretar enda þótt það hjálpi þeim ekki eins mikið í slagnum um bóluefni gegn kór- ónuveirunni. Musiala lét ekki þar við sitja. Í september varð hann yngsti markaskorari Bæjara í Bún- deslígunni, 17 ára og 205 daga; sló met Roque Santa Cruz, sem var 18 ára og 12 daga. Þaðan lá leiðin í Meistaradeild Evrópu, þar sem Mu- siala gerði sitt fyrsta mark í febrúar síðastliðnum og varð þar með yngsti Þjóðverjinn og Englendingurinn til að setj’ann í þeirri virðulegu keppni. Ef þessi drengur á ekki framtíð- ina fyrir sér þá heiti ég Páll Rós- inkranz! Á grænu taflborði Hinn átján ára Jamal Musiala hefur komið eins og stormsveipur inn í Evrópuboltann með Bayern München og nú þýska landslið- inu. En hver er þessi sókndjarfi strákur sem einnig hefði getað leikið fyrir England og Nígeríu? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is AFP Jamal Musiala í sínum fyrsta landsleik fyrir Þjóðverja; gegn Íslendingum í Duisburg. AFP Musiala varð yngsti Þjóðverjinn og Englendingurinn til að skora í Meistaradeild Evrópu í febrúar síðastliðnum, þegar hann skoraði fyrir Bayern gegn Lazio.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.