Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is MYRKVA RÚLLUGARDÍNUR 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.40 Adda klóka 09.05 It’s Pony 09.25 Mia og ég 09.50 Lína langsokkur 10.15 Lukku láki 10.35 Ævintýri Tinna 11.00 Angry Birds Stella 11.05 Rabbit School 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Modern Family 13.50 Um land allt 14.35 Dagvaktin 15.15 Þær tvær 15.45 Ísskápastríð 16.35 Kórar Íslands 17.35 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Dolittle 20.25 Vegferð 20.55 Green Book 23.05 Aquaman 01.25 The Ugly Truth 02.55 Tin Star: Liverpool 03.45 Western Stars ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Kraftur síðasti sprett- urinn 21.00 Vegabréf – Gauti Ein- arsson 21.30 Uppskrift að góðum degi – Eyjafjörður 4. þáttur Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 20.00 Kaupmaðurinn á horn- inu – saga JMJ Herra- deild 20.30 Sólheimar 90 ára – seinni hluti 21.00 Maður sviðs og söngva – Björgvin Halldórsson – Seinni hluti 21.30 Fréttavaktin – Sérúrval Endurt. allan sólarhr. 10.00 Snæþór: Hvíta górillan 11.30 Aulinn ég 2 – ísl tal 13.05 The Hundred-Foot Jour- ney 16.00 Hver drap Friðrik Dór? 16.40 Vinátta 17.10 Með Loga 17.50 Jarðarförin mín 18.20 Venjulegt fólk 18.50 Framing Britney Spears 20.05 Systrabönd 20.50 Þorpið í bakgarðinum 22.20 The Butler 00.35 Thelma and Louise 02.40 Burnt 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hinir hinstu dagar. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Tónlist að morgni páska- dags. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir og veðurfregnir. 10.13 Veröldin hans Walts. 11.00 Guðsþjónusta í Dómkirkj- unni. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Allir deyja. 14.00 Óperan okkar. 15.00 Útvarpsleikhúsið: Vorar skuldir. 15.25 Ratsjá: Eftirlit. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Jóhann syngur Mahler. 17.25 Sprengingin á Borgarfirði eystra. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Kona með sólhlíf sem snýr sér til vinstri. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Páskaópera Útvarpsins: Lucia di Lammermoor með Mariu Callas. 21.15 Páskarím. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Ástir gömlu meistaranna. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Refurinn Pablo 07.21 Úmísúmí 07.44 Poppý kisukló 07.55 Kúlugúbbarnir 08.18 Lautarferð með köku 08.24 Hæ Sámur – 45. þátt- ur 08.31 Flugskólinn 08.53 Hrúturinn Hreinn 09.00 Múmínálfarnir 09.22 Robbi og Skrímsli 09.44 Eldhugar 09.48 Sjóræningjarnir í næsta húsi 09.59 Minnsti maður í heimi 10.00 Þorri og Þura – vinir í raun 10.11 Frímó 10.23 Lúkas í mörgum mynd- um 10.30 Hneturánið 12.00 Amma Hófí 12.50 Lói – þú flýgur aldrei einn 14.10 Straumar 15.25 Lagið um hatrið 16.00 Herra Bean 16.25 Draumur 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Menningin – sam- antekt 19.00 Fréttir 19.20 Íþróttir 19.25 Veður 19.35 Ávarp forseta Íslands 19.50 Landinn 20.20 Sóttkví 20.55 Húsmæðraskólinn 22.15 Hvítur, hvítur dagur 24.00 París norðursins 01.35 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm- plötuframleiðenda. Snorri Másson stýrir hlaðvarpinu Skoðana- bræður ásamt bróður sín- um Bergþóri Mássyni. Sjálfur hlustar Snorri reglulega á hlaðvörp og fékk K100 hann til þess að gefa lesendum álit á því sem hann hlustar á. Hlaðvörp hafa verið gífurlega vinsæl undanfarið og erf- itt getur verið að finna hlaðvarp sem hentar áhugasviði hvers og eins enda um svakalegt úrval að ræða. Við hér á K100 erum mikið áhugafólk um hlaðvörp og ákváðum að ræða við það fólk sem heldur úti hlaðvarpi hér á Ís- landi og fá það til þess að gefa okkur upp hvaða hlað- varpsþætti, fyrir utan sína eigin, það hlustar á í sínum frítíma. Það ætti að geta gefið fólki góðar hugmyndir um áhugaverð hlaðvörp sem henta þess áhugasviði. Hlaðvarpslista Snorra má nálgast í heild sinni á K100.is. Áhugaverð hlaðvörp: Snorri Másson gefur álit París. AFP. | Franski leikstjórinn Bertrand Tavernier lést 25. mars 79 ára að aldri. Hann var samviska franskra kvikmynda og óhræddur við fylgja sannfæringu sinni þótt það gæti einangrað hann frá vinum sín- um á vinstri vængnum. Tavernier var sonur franskrar andspyrnuhetju og ávann sér aðdá- endur og alþjóðlega hylli með ein- stakri blöndu af myndum með sögu- legum bakgrunni og samtímasögum með baráttuþema. Hann fjallaði um óréttlæti, kyn- þáttafordóma og lýjandi bölvun at- vinnuleysis og var fyrir vikið líkt við breska leikstjórann Ken Loach, þótt stíll hans ætti meira sameiginlegt með Hollywood-jöfrinum John Ford. Tavernier var óþreytandi fyrir framan myndavélina og aftan í bar- áttu sinni gegn ritskoðun, pynting- um í stríðinu fyrir sjálfstæði Alsír, fyrir réttindum innflytjenda og fyrir því að Evrópa héldi sínu gagnvart Hollywood. Hann skammaðist sín heldur ekk- ert fyrir að kjósa hægrimanninn Nicolas Sarkozy í forsetakosningun- um 2007. Sarkozy hafði sem innan- ríkisráðherra afnumið lög, sem kváðu á um að vísa mætti fangelsuð- um innflytjendum úr landi jafnvel þótt þeir ættu nána aðstandendur í Frakklandi. Sarkozy tók þessa ákvörðun eftir að hafa séð heim- ildamynd eftir Tavernier um efnið. Beitti sér gegn óréttlæti Leikstjórinn sagði að hann hefði ár- angurslaust reynt að fá „huglausa“ stjórn sósíalista til að bregðast við í þessu máli. „Sarkozy má þakka vin- sældir sínar gagnsleysi vinstri manna,“ sagði Tavernier síðar. Tavernier með sinn hvíta makka var þá þegar orðinn einn af nestor- um franskrar kvikmyndagerðar, en hann var jafn ákafur og afkastamik- ill og hann hafði verið 20 árum fyrr og beitti sér gegn óréttlæti í heim- ildamyndum á milli þess sem hann gerði dýrari leiknar myndir. Hann hlaut BAFTA-verðlaunin 1990 fyrir myndina La vie et rien d’autre (Lífið og ekkert annað), átakamikið drama um tilraunir til að bera kennsl á jarðneskar leifar fall- inna á vígvöllum fyrri heimsstyrj- aldar. Philippe Noiret fékk einnig Cesar (franska Óskarinn) fyrir leik sinn í myndinni. Hann hafði oft unnið með Tavernier eftir að myndin L’Horlo- ger de Saint-Paul (Úrsmiðurinn frá Saint-Paul) hlaut Silfurbjörninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín 1974. Þegar Tavernier hlaut verðlaun fyrir ævistarf sitt á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2015 hafði hann gert rúmlega 40 leiknar myndir í nánast öllum greinum kvikmynda og hlotið eina tilnefningu til Óskarsverðlauna. Tavernier fæddist í seinni heims- styrjöld í borginni Lyon 25. apríl 1941. Borgin var þá í klóm Gestapo- foringjans miskunnarlausa Klaus Barbie, sem fékk viðurnefnið slátr- arinn frá Lyon. Faðir hans, rithöfundurinn Rene Tavernier, gekk snemma í and- spyrnuhreyfinguna og skaut skjóls- húsi yfir ljóðskáldið og kommúnist- ann Louis Aragon allt stríðið. Ást á vestrum Tavernier var heilsuveill á yngri ár- um. Heimur kvikmyndanna opnaðist fyrir honum þegar hann dvaldi á heilsuhæli eftir að hafa fengið berkla. Hann flutti til Parísar til að nema lög, en fór brátt að skrifa fyrir tímarit um kvikmyndir og aðstoða leikstjóra, þeirra á meðal Jean-Luc Godard, meistara nýbylgjunnar. Gullöld Hollywood veitti honum innblásturinn til að búa til bíómyndir og sagði hann að það að horfa á kú- rekamyndir hefði veitt sér líkamlega ánægju. „Ég varð leikstjóri út af ást minni á vestrum,“ sagði hann við AFP. Sú ást varð kveikjan að myndinni In the Electric Mist, sem hann gerði í Bandaríkjunum 2009 með Tommy Lee Jones og John Goodman í aðal- hlutverkum. Þar fékk hann útrás fyrir ástríðu yngri ára fyrir einvígj- um og hestum. „Skyndilega fann ég aftur hvernig þessum leikstjórum hlýtur að hafa liðið þegar þeir mynduðu hópreiðar og landslag. Það var eins og ég væri að fara aftur til rótanna eins og mér leið þegar ég var 15. Á ný birtust mér stórkostleg skylmingaratriði úr Scaramouche eftir George Sidney.“ Það var nóg af sverðum og hestum í rómantísku skylmingamyndinni La Princesse de Montpensier frá 2011 sem gerðist í grimmilegum trúar- bragðaátökum í Frakklandi á 16. öld. Í kjölfarið fylgdi grínmyndin Quai d’Orsay árið 2013 um lífið í franska utanríkisráðuneytinu í aðdraganda Íraksstríðsins 2002. Tavernier vann mikið með eigin- konu sinni, Colo O’Hagan handrits- höfundi, og hélt samstarf þeirra áfram eftir skilnað þeirra. Dóttir þeirra, Tiffany, er einnig rithöfund- ur og heldur í fjölskylduhefðina. Hún vann með föður sínum að mynd- inni Holy Lola frá 2004. Bertrand Tavernier þakkar áhorfendum á kvikmyndahátíðinni Lu- miere í fæðingarborg sinni, Lyon, árið 2019. BERTRAND TAVERNIER LÁTINN Afkastamikill baráttumaður AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.