Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,- L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ETOILE model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,- „Maður er auðvitað orðinn ýmsu vanur eftir að hafa lent í nákvæmlega því sama áður, og oftar en einu sinni,“ segir Jón Bjarki Magnússon en til stóð að frumsýna fyrstu heimildarmynd hans í fullri lengd, Hálfur Álfur, daginn eftir að samkomutakmarkanir voru hertar á dögunum. Hann lauk við gerð myndarinnar fyrir ári, svo sem fram kom í viðtali hér í blaðinu fyrir tveimur vikum. „Það breyt- ir því ekki að það var auðvitað töluvert áfall að sjá að ekk- ert yrði af frumsýningu sem við höfðum lagt mikla vinnu í að undirbúa vikurnar á undan. Það var þó bót í máli að við náðum að halda lokaða hátíðarsýningu kvöldið áður.“ Spurður hvort álög hvíli á myndinni svarar Jón Bjarki: „Það má auðvitað segja að það hvíli ákveðin álög á heim- inum þessi misserin. Það hvort þau séu að bitna harkaleg- ar á okkur verða aðrir en ég að dæma um. Nú hef ég ekki talið mig álfatrúar til þessa, en í myndinni segir afi frá því hvernig hann og vinir hans köstuðu steinum í álfastein norður á Ströndum þrátt fyrir að amma hans hefði harð- bannað þeim það. Nú fórum við pabbi minn, Magnús H. Traustason, að þessum steini við tökur myndarinnar og tókum upp á því í stráksskap okkar að gera eins og dreng- irnir forðum. Eftir því sem fleiri frumsýningar verða covid að bráð verður mér æ oftar hugsað til þessa atviks og velti fyrir mér hvort okkur hafi mögulega tekist að reita álfana til reiði og þar með kallað fram einhvers konar álfabölv- un?“ Að sögn Jóns Bjarka bíða aðstandendur myndarinnar færis þar til rofar til en „myndin fer í almennar sýningar í Bíó Paradís um leið og Þórólfur, álfar og aðrar vættir leyfa“. Hálfur Álfur fjallar um ömmu Jóns Bjarka og afa. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Kallaði ég fram álfabölvun? Enn þurfti að fresta frumsýningu á heimildarmyndinni Hálfur Álfur eftir Jón Bjarka Magnússon á dögunum vegna hertra sóttvarnaaðgerða. „Þingið hefir staðið yfir hálfan annan mánuð. Og menn eru að spyrja, hvað það hafi gert á þessum tíma, eða hvað sé merkast af því sem það hafi gert. Svarið er þetta: Þingið hefir ekki fjallað um stórmálin enn þá – þau eru ekki komin úr nefnd. En þau koma bráðum.“ Hvenær haldið þið að þessi frétt hafi verið skrifuð í Morg- unblaðið? Í gær? Nei, í byrjun apríl 1921, sumsé fyrir réttum eitt hundrað árum. Þar stóð ennfremur: „Þingið hefir afgreitt nokkur lög, sem eiga það sammerkt, að efni þeirra er nauðaómerkilegt. Það hefir löggilt verslunarstað, fært út verslunarlóðir, friðað rjúpur, sem dauðar eru fyrir mörgum árum og þar fram eftir göt- unum. Neðri deild hefir rætt fyrirspurn um landhelgisvarn- irnar í þrjá daga og var alveg jafn nær að lokum, barist um vantraust eða traust á stjórn- inni í tvo daga og eina nótt, án þess að annað hafi komið fram um afstöðuna til stjórnarinnar en það, sem allir vissu áður. Þingmenn þeirrar deildar eru svo sárþjáðir af skrafsýki, að þeir verja mörgum klukkutím- um við fyrstu umræðu máls til þess að deila um það, hvort hleypa skuli því til annarrar umræðu.“ GAMLA FRÉTTIN Friðuðu dauðar rjúpur Morgunblaðið var ekki hrifið af vinnubrögðunum á Alþingi árið 1921. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Pacaya í Guatemala í febrúar 2021 Fagradalsfjall á Reykjanesi í mars 2021 Etna á Sikiley í febrúar 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.