Verktækni - 2013, Blaðsíða 1
Málþing um
almenningssamgöngur
3
Líffrræðileg hreinsun
skólps
8
Af stjórnarborðum
12
Frumkvöðull
6
Minningarorð
14
1 . t b l . 19. á r g . 2 013
Launaviðtöl
4
Í hófi sem haldið var í tilefni af útgáfu
bókarinnar VFÍ í 100 ár – Saga Verkfræðinga-
félags Íslands fengu heiðursfélagarnir Vigdís
Finnbogadóttir og Egill Skúli Ingibergsson,
bókina afhenta. Með útgáfu bókarinnar
hefur það markmið náðst sem sett var á
90 ára afmæli félagsins að gefa út ritröð
sem hæfist með bókinni Frumherjar í verk-
fræði og lyki á 100 ára afmælisári með sögu
félagsins. Bókin er glæsilegur gripur, hana
prýðir fjöldi mynda sem gæða hana lífi og
gera skemmtilega aflestrar.
Bókin er í tveimur hlutum. Fyrri hlut
inn fjallar um 50 ára sögu VFÍ en hún var
gefin út í hefti á 50 ára afmælinu og rituð
af prófessor Jóni Guðnasyni. Bætt hefur
verið inn fleiri myndum og rammagreinum.
Annar hlutinn er mun stærri og fjallar um
seinni 50 árin. Hann er í tíu meginköflum
og var unninn á þann hátt að sérfróðir
menn á hverju sviði rituðu hvern kafla.
Ritnefnd samræmdi efnið og skrifaði það
Heiðursfélögum afhent
saga VFÍ
sem upp á vantaði. Meginkaflarnir í bók
inni fjalla um skipulag og félagsstarfsemi,
menntun verkfræðinga, Verkfræðingahús,
kjaramál, útgáfu, orðanefndir formenn og
framkvæmdastjóra, heiðursfélaga, stórfram
kvæmdir í landinu og stórafmæli félagsins.
Í ritnefnd bókarinnar voru Hákon
Ólafsson, Logi Kristjánsson og Sveinn
Þórðarson.