Verktækni - 2013, Blaðsíða 3

Verktækni - 2013, Blaðsíða 3
Blaðið VERKTÆKNI er gefið út af Verkfræðingafélagi Íslands og Tæknifræðingafélagi Íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram í blaðinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Svansprent · Mynd á forsíðu: Rafn Sigurbjörnsson · Aðstoð við útgáfu: Hænir · Sími: 55 88 100 · utgafa@utgafa.is Engjateigi 9 · 105 Reykjavík Sími: 535 9300 · Símbréf: 535 9311 Tölvupóstur: sigrun@verktaekni.is V E R K T Æ K N I Kunnugleg saga Þegar liggur fyrir að skrifa leiðara þá er andinn ekki alltaf yfir manni, eins og gengur. Það getur verið snjallt að byrja á því að athuga hvert var innihald slíkra skrifa fyrir tíu árum. – Og þetta hljómar kunnuglega. Þá voru framundan tvær ráðstefnur hjá félögunum, annars vegar um Norðlingaölduveitu og hins vegar um tækni í sjávarútvegi. Í leiðaranum var tekið fram að fyrri ráðstefnan muni „án efa vekja mikla athygli með tilliti til um ræðunnar í þjóðfélaginu um virkj­ anamál og deilur sem tengjast þeim.“ Tíu árum síðar er enn tekist á um virkjunarkosti og deilt hart um afgreiðslu þingsályktunar um vernd og nýtingu landsvæða, rammaáætlun sem var ætlað að skapa sátt um þennan mikilvæga málaflokk. Þegar þetta er skrifað verður atkvæðagreiðsla Alþingis eftir nokkra daga. Það hefur verið rauna legt að fylgjast með umræðu um þetta mál og mikil vonbrigði að alþing­ ismenn hafi ekki getað fylkt sér að baki faglegri vinnu sem staðið hefur yfir í mörg ár. Í marsmánuði 2012 sendi stjórn Verkfræðingafélags Íslands frá sér ályktun þar sem segir meðal annars: „VFÍ undirstrikar mikilvægi þess að haldið verði áfram að nýta orkuauð­ lindirnar til góðs fyrir landsmenn en telur að nýtingin eigi að vera sem fjöl­ breyttust og tekið tillit til þess að um takmarkaða auðlind er að ræða. Hafa verður jafnframt að leiðarljósi að há­ marka ber heildarafrakstur orkuauð­ lindanna fyrir íslenskt samfélag. VFÍ lýsir yfir vonbrigðum með þau inngrip sem gerð hafa verið í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða, með því að taka vinnu að áætluninni úr fag­ legum farvegi. Rammaáætluninni er ætlað að marka framtíðarsýn og ná sátt um hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða. Að áætluninni hefur verið unnið um árabil, með viðamiklu kynningar­ og samráðsferli, í þeim tilgangi að ná almennri sátt um nýtingu takmarkaðra orkuauðlinda.“ Það er ekki víst að þetta mál fái far­ sælan endi í bráð. Sigrún S. Hafstein, ritstjóri Almenningssamgöngur í forgang Föstudaginn 1. febrúar 2013 mun Bygg­ ingarverkfræðideild VFÍ standa fyrir mál­ þingi á Grand Hótel um Almennings­ samgöngur í borgarumhverfi. Tveir fyrirlesarar frá COWI í Danmörku munu vera með erindi, en það eru Michael Knørr Skov, yfirmaður Urban planning og transport og Preben Vilhof, einn helsti sérfræðingur dana í skipulagi almennings­ samgangna. Þá mun sérfræðingur á vegum Strætó BS segja frá því sem er á döfinni með þróun leiðarkerfis Höfuðborgar­ svæðisins og Bergþóra Kristinsdóttir sviðsstjóri umferðar­ og skipulags hjá EFLU verkfræðistofu fjalla um samgöngur við fyrirhugaðan Landspítala við Hringbraut. RÝNI 2013 - Pétursborg Rýnisferðir TFÍ sem farnar hafa verið frá árinu 1998 hafa frá upphafi notið mikilla vinsælda. Undirbúningur fyrir Rýnisferð 2013 er vel á veg kominn og er stefnan sett á ferð til Pétursborgar 8. ­ 14. september. Flogið verður til Helsinki sunnudaginn 8. september þaðan sem ekið verður til Pétursborgar. Heimflug frá Pétursborg laugardaginn 14. september. Gert er ráð fyrir allt að 65 manns í ferðina. Skráning ferðina hefst fljótlega eftir áramót og verður auglýst nánar síðar. Ferðin er opin öllum félagsmönnum í TFÍ og VFÍ. Í undirbúningsnefnd Rýni 2013 eru: Haraldur Sigursteinsson, Hreinn Ólafsson og Jóhannes Benediktsson. Skilafrestur Útgáfumál félaganna hafa verið endur­ skoðuð. Markmiðið er meðal annars að auka veg ritrýndra greina og tæknigreina sem birst hafa í Árbók félaganna. Ekki verður gefin út árbók en greinar birtar undir nafni Verktækni. Stefnt er að útgáfu í mars­apríl. Skilafrestur á ritrýndum greinum er til loka janúarmánaðar. Greinum skal skilað til ritstjóra Verktækni, sigrun@verktaekni.is, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Facebook VFÍ og TFÍ eru á Facebook. Þar eru sett inn stutt skilaboð um viðburði framundan, umsóknarfresti hjá sjóðum og annað sem er gott að fá upplýsingar um. Farið inn á síðuna og „lækið“ og þá komist þið í beint samband við okkur. Tæknifræðingafélag Íslands: www.facebook.com/tfi.1960 Verkfræðingafélag Íslands: www.facebook.com/vfi.1912 LE IÐAR INN Árshátíð VFÍ Árshátíð Verkfræðingafélags Íslands verður haldin í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 2. febrúar 2013. Skemmtidagskrá • Hátíðarkvöldverður • Dansleikur Miðapantanir og nánari upplýsingar á skrifstofu VFÍ í síma: 535 9300. Netfang: skrifstofa@verktaekni.is Miðaverð kr. 7.900.-

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.