Verktækni - 2013, Blaðsíða 6
6 / VERKTÆKNI
Valgerður Halldórsdóttir var nýverið
gestur á hádegisfundi Kvennanefndar
VFÍ. Hún sagði frá þróun farsímaforrits-
ins Kinwins og gerð heimildamyndar-
innar The Startup Kids sem fjallar um
unga veffrumkvöðla og hefur vakið
verðskuldaða athygli. Góð mæting var á
fundinn og gestir voru ekki sviknir því
Valgerður er einstaklega líflegur og
skemmtilegur fyrirlesari.
Valgerður var nýútskrifuð með BS gráðu í
iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands þegar
kreppan skall á haustið 2008. Ekki voru
mörg atvinnutækifæri í boði og hún og
vinkona hennar, Sesselja Vilhjálmsdóttir,
brugðu á það ráð að skapa eigin tækifæri.
Fyrsta verkefnið var útgáfa borðspilsins
Heilaspuni sem þær hönnuðu í samein
ingu, seldu stærstu verslunum hugmyndina
og létu framleiða í Kína. Spilið sló í gegn
og seldist upp fyrir jólin 2009.
Heilaspuni var bara fyrsta skrefið og það
er ekki skortur á góðum hugmyndum og
framkvæmdagleði hjá þeim vinkonunum.
Næsta verkefni var gerð heimildamyndar
innar The Startup Kids. Þær létu það ekki
aftra sér að hafa aldrei komið nálægt kvik
myndagerð heldur lögðu land undir fót og
tóku viðtöl við frumkvöðla vestan hafs og
austan. Meðal viðmælenda eru stofnendur
Vimeo, Soundcloud, Kiip, InDinero,
Dropbox og Foodspotting.
Myndin hefur verið sýnd víða um heim
og vakið sem fyrr segir verðskuldaða
athygli. Þar segja ungir frumkvöðlar frá
reynslu sinni og markmið myndarinnar er
meðal annars að hvetja ungt fólk til að
leggja fyrir sig nýsköpun. Var áhugavert að
Fundur Kvennanefndar VFÍ
Hugmyndaauðgi og kraftur
heyra Valgerði segja frá mismunandi við
horfum í Bandaríkjunum og Evrópu.
Evrópubúar eru almennt feimnir við að
segja frá verkum sínum en bandaríkjamenn
eru miklir sölumenn hvað varðar ágæti
eigin verka. Einnig er litið niður á það að
mistakast í Evrópu en í Bandaríkjunum er
það talin góð reynsla.
Hér heima gefast tækifæri til að sjá
myndina. Hún var sýnd á Reykjavík film
festival, eftir áramótin í háskólum og fram
haldsskólum og viðræður standa yfir um
sýningu í Sjónvarpinu.
KinWins
Samhliða kvikmyndagerðinni stofnuðu þær
Valgerður og Sesselja tæknifyrirtæki og
vinna nú hörðum höndum að gerð far
símaforritsins Kinwins. Það er hvatningar
leikur sem gengur út á að gera notendur að
betri mönnum og stuðla að heilbrigðu líf
erni. Notandinn skráir inn dagleg verkefni
og safnar stigum. Hægt er svo að deila
verkefnunum með vinum og fjölskyldu og
hvetja hver annan áfram. Verkefnið er styrkt
af Tækniþróunarsjóði.
Kæruleysi nauðsynlegt
Valgerður var spurð að því hvernig það
væri að vera frumkvöðull á Íslandi. Hún
sagði enga töfraformúlu vera til og þetta
væri mjög erfitt. Hún nefndi nokkur atriði
sem eru nauðsynleg til að ná árangri:
stefnufesta, úthald, smá kæruleysi, þor til
að biðja um hjálp og... Just do it.
www.heilaspuni.is
www.thestartupkids.com
www.kinwins.com
Valgerður Halldórsdóttir.
Samstarf er lykill að árangri
Haustið 2012 stóðu Verkfræðingafélag
Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands, Arki
tektafélag Íslands, Samband íslenskra
sveitar félaga, Félag byggingarfulltrúa, Sam
tök iðnaðarins og Mannvirkjastofnun, fyrir
fundum um land allt um nýja byggingar
reglugerð, samræmingu eftirlits og leiðir til
aukinna samskipta innan byggingageirans.
Fundirnir voru opnir og ætlaðir hönnuð
um, tæknimönnum, iðnaðarmönnum, eftir
litsaðilum og öðrum áhugasömum. Þeir
voru haldnir á Ísafirði, Egilsstöðum,
Sauðárkróki, Stykkishólmi, Hellu, Reykja
nes bæ og Reykjavík og voru vel sóttir.
Tilgangur fundanna var að kynna breytt
starfsumhverfi mannvirkjageirans, gefa
hlutaðeigandi tækifæri til að spyrja spurn
inga og koma með ábendingar um hvað
betur mætti fara.
Byggingarreglugerðin tók gildi í febrúar
2012 en í henni var bráðabirgðaákvæði
þess efnis að heimilt væri að veita leyfi til
að fara eftir ákvæðum eldri reglugerðar til
loka árs 2012.
Þegar á leið kom æ betur í ljós að nauð
synlegt er að endurskoða nýja byggingar
reglugerð. Því óskuðu framangreind félög
eftir því að bráðabirgðaákvæði reglugerðar
innar yrði framlengt út árið 2014 svo tóm
gæfist til að endurskoða hana.
Umhverfis og auðlindaráðherra hefur
brugðist við og tilkynnt um breytingar á
byggingarreglugerðinni og framlengingu á
framangreindu ákvæði til 15. apríl 2013.
Á sama tíma mun ráðherra skipa starfshóp
sérfræðinga til að skoða reglugerðina í
heild sinni og koma með tillögur um breyt
ingar eftir atvikum.
Mikilvægt er að vinna hratt og markvisst
þannig að þessi stutti frestur nýtist til fulln
ustu.
Félögin sem stóðu að fundunum hafa
ákveðið að halda árangursríku samstarfi
áfram og munu standa fyrir ráðstefnu um
Húshjúpinn 25. janúar. (upplýsingar á vfi.is
og tfi.is)
Árni B. Björnsson,
framkvæmdastjóri VFÍ/TFÍ.