Verktækni - 2013, Blaðsíða 13

Verktækni - 2013, Blaðsíða 13
Stjórn TFÍ og Menntunarnefnd félags- ins heimsóttu Keili til að fræðast um tæknifræðinámið sem þar er boðið upp á. Hjá Keili er hægt að læra Orku- og umhverfis tæknifræði og Mekatróník hátæknifræði. Gestirnir fengu meðal annars að skoða verklegu aðstöðuna sem er mjög glæsileg. Meðal annars sýnu nemendur á þriðja ári fjarstýrðan svitaþerrara sem mun hugsanlega leysa af manninn á moppunni, þann sem þurrkar upp svita og tár sem falla á gólf íþróttahúsa í hita leiksins. Heimsókn til Keilis Nemendahópurinn með fjarstýrðan svitaþerrara sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Þjarkur, eða róbót, teiknaði merki TFÍ... Svitaþerrarinn. ...og það leit svona út. EFLA verkfræðistofa, Verkfræðistofa Suðurlands og Verkfræðistofa Norðurlands mynda sameinuð öfluga liðsheild, sem veitir víðtæka þjónustu um allt land.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.