Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Side 12
Gluggi inn í hjartað Avraham Feldman, rabbíni gyðingasamfélagsins á Íslandi, lýsir bók dr. Gisellu Perl, Ég var læknir í Auschwitz, sem glugga inn í hjarta fanganna sem þar dvöldust. Feldman, sem er fyrsti starfandi rabbíninn á Íslandi, segir að helförin megi ekki gleymast og sjaldan eða aldrei hafi verið mikilvægara að fræða fólk og upplýsa um hryllinginn sem þar átti sér stað. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is A vraham Feldman, rabbíni gyð- ingasamfélagsins á Íslandi, býð- ur okkur Kristni Magnússyni ljósmyndara glaðlega góðan daginn þegar við sækjum hann heim en skiptir að því búnu yfir í móðurmál sitt, enskuna, en hann er frá New York. „Ég hef átt mjög annríkt frá því ég flutti hingað en núna er ég loksins byrjaður að taka íslensku- námið föstum tökum og ætla mér að ná góðu valdi á tungumálinu ykkar,“ útskýrir Feldman um leið og hann vísar okkur til stofu. Biðst um leið afsökunar á fáeinum barnaleikföngum sem liggja á gólfinu en hann á fjórar ungar dætur ásamt eiginkonu sinni, Mushky; þá elstu fædda 2016. Það er svo sannarlega ekkert að afsaka, leikföngin ljá stofunni bara aukið líf og hlýju. „Já, hér er alla jafna líf og fjör á daginn, eins og þið getið ímyndað ykkur,“ segir Feld- man brosandi en mæðgurnar eru að heiman meðan samtal okkar fer fram. Tilefni heimsóknarinnar er útgáfa bókarinnar Ég var læknir í Auschwitz eftir Gisellu Perl í ís- lenskri þýðingu Ara Blöndal Eggertssonar. Út- gefandi er Hringaná og Avraham Feldman rabbíni ritar formála. Dr. Gisella Perl var ung- verskur gyðingur sem var ekki bara fangi held- ur starfaði hún einnig sem læknir í alræmdustu útrýmingarbúðum nasista í seinni heimsstyrj- öldinni. Eiginmaður hennar og sonur létust í haldi nasista en þeim hjónum tókst að leyna dóttur sinni hjá fólki sem ekki var gyðingar meðan á stríðinu stóð. Perl tók við fyrirmælum beint frá hinum alræmda dr. Josef Mengele og var látin stunda lækningar án allra nauðsyn- legra tækja, lyfja og hreinlætis. Orð hennar, út- sjónarsemi og manngæska björguðu lífi þús- unda kvenna, svo sem fram kemur á bókarkápu. Perl bjó síðar og starfaði í Bandaríkjunum en lést í Ísrael árið 1988, 81 árs að aldri. Mannvonska og grimmd Sjálfur hef ég lesið talsvert um helförina, Auschwitz og aðrar útrýmingarbúðir nasista, komið á söfn erlendis og séð leiknar kvik- myndir og heimildarmyndir um efnið en Ég var læknir í Auschwitz er með því átakanleg- asta af því öllu; það er óhætt að fullyrða. Lýs- ingarnar á mannvonskunni og grimmdinni sem viðgekkst í búðunum eru yfirgengilegar og eins upplýsandi og grafískur og lesturinn er þá er hann um leið gríðarlega erfiður. Maður er sem lamaður að honum loknum. Það er eng- in leið að setja sig í aðstæður þessa fólks. Perl skrifaði bókina skömmu eftir þessa hræðilegu lífsreynslu en hún kom fyrst út á ensku árið 1948. „Þetta er mjög fræg bók,“ svarar Feldman, spurður hvort hann hafi þekkt til verksins áður. „Ég las hana fyrst fyrir mörgum árum en las hana aftur núna eftir að ég var beðinn að rita formálann við þessa þýðingu. Ég vildi hafa efnið ferskt í minninu. Það er alveg rétt hjá þér, þessi bók er mjög erfið aflestrar, en um leið ákaflega góð, mikilvæg og kraftmikil. Hér er helförinni og lífinu í Auschwitz lýst frá fyrstu hendi og við upplifum fórnarlömbin sem manneskjur en ekki sem tölfræði; sex milljónir gyðinga týndu lífi í útrýmingarbúðum nasista og þar fram eftir göt- unum. Við tengjum við fólkið sem hermt er af og grimmileg örlög þess. Gisella Perl var mann- eskja, eins og aðrir sem voru þarna í haldi, og það hefur djúpstæð áhrif á mann að kynnast persónulegri reynslu hennar af vistinni og þess- ari martröð. Ég var læknir í Auschwitz er gluggi inn í hjarta og huga fólks sem átti sínar vonir og drauma, alveg eins og við hin, en var svipt frelsinu og í mörgum tilvikum lífinu með þessum viðurstyggilega hætti.“ Feldman ber lof á Hringaná fyrir að ráðast í útgáfuna; ánægjulegt sé að bókin sé komin út á íslensku. „Það skiptir svo miklu máli að fræða fólk um helförina. Aldrei aftur! erum við vön að segja en til að koma í veg fyrir að nokk- uð þessu líkt eigi sér aftur stað er grundvall- aratriði að fólk viti hvað gerðist í helförinni og hvernig siðblinda og grimmd yfirtóku heilt samfélag. Hver einasti einstaklingur sem reyndi helförina á eigin skinni skiptir máli og á skilið virðingu okkar. Grimmdin og illskan eru ímyndunarafli okkar nánast framandi og þess vegna skipta bækur sem þessi svo miklu máli enda gerir hún mjög sannfærandi grein fyrir aðstæðum og hryllingnum sem aumingja fólk- ið mátti búa við.“ Mikilvægt að fræða fólk 76 ár eru nú liðin frá lokum seinni heimsstyrj- aldarinnar og því meiri sem fjarlægðin verður þeim mun mikilvægara að halda fræðslunni áfram, að dómi Feldmans. „Þeim fækkar stöð- ugt sem upplifðu helförina enda langt um liðið og nú er það hlutverk okkar, næstu kynslóða, að halda þessari sögu að heiminum – annars er hætta á því að hún gleymist. Eins erfitt og það er þá þurfum við að minna okkur reglulega á helförina, að þessi hryllingur hafi í raun og veru átt sér stað, og fræða þá sem þekkja ekki eins vel til og við sjálf.“ Feldman hefur skilning á því að fólk í sam- tímanum eigi erfitt með að tengja við hrylling helfararinnar; ekki síst þegar skoðað er úr hverju hann er sprottinn. „Þýskaland var þró- að samfélag á fjórða áratug seinustu aldar; leiðandi á sviði vísinda, menningar, lista og svo framvegis. Þarna réðu engir villimenn ríkjum; alltént litu þeir ekki þannig út. Eigi að síður voru þessir upplýstu menn þess umkomnir að fremja svona hræðilega glæpi. Hvernig má það vera? Það sýnir okkur, svo ekki verður um villst, að enginn er fullkominn og auðvelt er að verða hált á svellinu. Gleymum því heldur ekki að helförin átti sér ekki stað á einni nóttu; að- dragandinn var langur og strangur og það tók tíma að gera gyðinga að „djöflum“ og „ófreskj- „Gisella Perl var manneskja, eins og aðrir sem voru þarna í haldi, og það hefur djúpstæð áhrif á mann að kynnast persónulegri reynslu henn- ar af vistinni og þessari martröð,“ segir Avraham Feldman, rabbíni gyðingasamfélagsins á Íslandi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Avraham Feldman rabbíni ásamt eiginkonu sinni, Mushky, og þremur af fjórum dætrum þeirra. Ljósmynd/Bríet Olga VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.4. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.