Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Page 20
Morgunblaðið/Ómar
Synd væri að segja að loftbrúhafi verið milli Íslands oghelstu ferðamannastaða þessa
heims undanfarið ár en faraldur kór-
ónuveirunnar hefur tekið utanlands-
ferðir af okkur flestum, eins og svo
margt annað. Sjálfsagt eru margir
orðnir langeygir eftir næstu ferð en
hafa ber þó í huga að utanlandsferðir
eru ekki alltaf dans á rósum, eins og
Íslendingur nokkur fékk að reyna
fyrir réttum sjötíu árum. Hermt var
af hremmingum hans í Morg-
unblaðinu undir fyrirsögninni: Mað-
urinn, sem vann í happdrættinu.
Frásögn blaðsins hófst á þessum
orðum en það var enginn annar en
Víkverji sálugi sem hélt um penna í
þættinum Úr daglega lífinu:
„Þeir, sem öfunda þá lukkunnar
pamfilusa, sem unnið hafa utan-
landsferð í happdrætti, hefðu átt að
líta framan í dauðþreyttan og heldur
lágkúrulegan heppnismann, sem
vann ferð fram og til baka til Kaup-
mannahafnar í happdrætti fyrir
skömmu.“
Þá tók hinn „lágkúrulegi heppn-
ismaður“ sjálfur til máls: „Jeg held,
að ef jeg hefði vitað hvað beið mín, þá
hefði jeg ekki tekið við vinningnum,“
sagði hann er hann drattaðist upp í
flugvélina einn morguninn. „Önnur
eins hlaup hefi jeg aldrei vitað fyrir
það eitt, að hafa unnið í happdrætti.“
Og svo kom sagan á meðan verið
var að hita upp vélina.
Stráheilt en ónýtt vegabrjef
Fyrst var að útvega sér nokkurra
króna virði í gjaldeyri, fyrir dvölinni
milli ferða, því minna en viku gat
karlanginn varla verið úr því farið
var á annað borð. Við erfiðleikum í
sambandi við það hafði hann búist og
þeir létu heldur ekki standa á sér.
En látum það vera.
„Þá var það vegabrjefið. Fyrir
nokkrum árum fór jeg túr á togara
til Englands og fjekk mjer þá vega-
brjef – passa. – Það plagg var ekki
gefið, frekar en annað ef mig minnir
rjett. En nú fjekk jeg að vita, að það
væri orðið ónýtt.“
Ekki var það vegna þess, að illa
hefði verið farið með bókina, að hún
var talin einskis virði. Ljósmyndin
var í besta lagi, skýr og ómáð með
öllu. Einn eða tveir stimplar voru á
einni blaðsíðu af einum 16, sem ætl-
aðar eru fyrir svoleiðis. „Þessi vega-
brjefsbók hefði dugað mjer þótt jeg
yrði níræður, ef vel hefði verið með
hana farið,“ sagði ferðalangur.
En það var ekki til neins að deila
um það, bókin var ónýt – of gömul og
ef okkar maður ætlaði út fyrir land-
steinana, þá varð hann að kaupa
nýja vegabréfsbók og leggjast undir
nýjar mælingar, ákvörðun á augna-
lit, leit að fæðingarblettum á
skrokknum eða gömlum örum – og
svo náttúrlega að borga, því ekki var
hægt að fá neitt fyrir hina bókina,
þótt ekki sæist á henni blettur.
Tortryggni yfirvaldanna
Ekki nóg með það. „Þeir hafa víst
haldið mig einhvern óþokka, þeir
dánumenn, sem fylgjast með ferða-
lögum íslenskra þegna úr landinu,“
hélt sögumaður áfram. „Sennilega
búist við að jeg myndi hlaupa frá
konu og krökkum, húsræflinum og
bílskrjóðnum, því þeir heimtuðu að
jeg borgaði alla mína skatta til ríkis
og bæjar út í hönd, áður en jeg færi
af landinu. – Þeir vildu ekki eiga
neitt á hættu með svona kóna, sem
vinna ferð fram og til baka til
Kaupmannahafnar í happdrætti.
Síðan varð jeg að hlaupa milli bæj-
arskrifstofu, og tollskrifstofunnar
og þaðan á lögreglustöðina. Hjer er
jeg eins og þú sjerð – og hvílík
sjón.“
Þannig var saga þessa lánsmanns,
sem vann ferðalag til útlanda í happ-
drætti árið 1951. „Hún er sögð hjer,“
sagði Víkverji, „ekki til að vara
menn við að vinna stóra vinninga í
happdrætti, heldur til að benda þeim
á, sem eru í þann veginn að leggja út
í buskann, að það getur verið fyrir-
hafnarminnst að horfa til baka og
komast að sömu niðurstöðu og
Gunnar forðum, að fögur sje hlíðin,
því allir Íslendingar sem fara utan
þurfa að ganga í gegnum sömu
eldskírnina og sá, sem vann í happ-
drættinu.“
Óþarflega stór vegabréf
Til skýringar á því, sem sagt er í
sögunni um vegabréfin, sem verða
ónýt þótt þau séu heil, lét Víkverji
þess getið, að einu sinni voru gefin
út vegabréf til fimm ára, en nú yf-
irleitt ekki nema til þriggja. „Það
þýðir, að þeir menn, sem fara á
þriggja ára fresti, eða lengri til út-
landa, þurfa að fá sjer ný vegabrjef
í hvert sinn. Engum hefur dottið í
hug sú sjálfsagða sparnaðar-
ráðstöfun, að nóg væri að fram-
lengja passana með einfaldri uppá-
skrift.“
Nei, það væri alltof einfalt.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Önnur eins hlaup
hefi jeg aldrei vitað“
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að ferðast til útlanda, eins og
Íslendingur nokkur komst að raun um þegar hann vann ferð til
Kaupmannahafnar í happdrætti árið 1951. Ágætt er að rifja sögu
hans upp nú á tímum ferðatakmarkana.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Þetta gamla
vegabréf er
heldur
meira not-
að en vega-
bréf okkar
manns í
sögunni.
Jafnan er líf og fjör
á Ráðhústorginu í
Kaupmannahöfn.
Hver væri ekki til í að
skella sér til Kaupmanna-
hafnar í vor? Passið bara
að vegabréfið sé gilt!
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.4. 2021
FERÐALÖG
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Calia Pier
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.