Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.4. 2021 Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Allt að 3 mánaða skammtur í glasi. Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin. C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Í þínu liði fyrir þína liðheilsu! Glucosamine & Chondroitin Complex „Ég lenti í bílslysi og fann til í öllum líkamanum, það komu dagar sem voru rosalega erfiðir þangað til ég kynntist Glucosamine og Chondroitin frá Natures aid, ég er töluvert betri og ég gæti ekki mælt meira með þessu liðbætiefni.“ Petra Breiðfjörð 08.00 Laugardagsklúbburinn 08.05 Barnaefni 08.25 Adda klóka 08.45 Blíða og Blær 09.10 Monsurnar 09.20 Mia og ég 09.45 Lína langsokkur 10.05 Lukku láki 10.30 Ævintýri Tinna 10.55 It’s Pony 11.25 Angry Birds Stella 11.30 Top 20 Funniest 12.05 Nágrannar 13.50 Um land allt 14.10 Friends 14.30 The Office 14.55 Dagbók Urriða 15.20 Blindur bakstur 15.50 Grand Designs 16.50 60 Minutes 17.35 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Skítamix 19.35 Vegferð 20.15 We Are Who We Are 21.05 Tell Me Your Secrets 21.55 Prodigal Son 2 22.40 Shameless 23.40 Warrior ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 19.30 Uppskrift að góðum degi; Norðurland vestra Þáttur 4 20.00 Í Austurdal 21.00 Vegabréf; Baldvin Ólafsson Endurtek. allan sólarhr. 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 24.00 Joyce Meyer 00.30 Tónlist 01.30 Global Answers 19.30 Karlmennskan (e) 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Leiðtoginn 21.30 Sir Arnar Gauti (e) Endurtek. allan sólarhr. 11.15 The Block 15.20 Dr. Phil 16.10 The King of Queens 16.30 Everybody Loves Ray- mond 16.55 The Bachelor 18.25 The Block 19.30 This Is Us 20.20 Systrabönd 21.05 Roadkill 22.00 The Good Lord Bird 22.50 The Walking Dead 23.35 Love Island 00.30 Ray Donovan 01.20 The Rookie 02.05 Blue Bloods 02.50 Mayans M.C. 03.45 Síminn + Spotify 06.55 Morgunbæn 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Víði- staðakirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Ljóða- tónleikar í Salnum. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Orðin sem við skiljum ekki. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ástir gömlu meistaranna. 20.35 Gestaboð. 21.30 Úr gullkistunni. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Refurinn Pablo 07.21 Hið mikla Bé 07.44 Poppý kisukló 07.55 Kúlugúbbarnir 08.18 Lautarferð með köku 08.24 Hæ Sámur – 47. þáttur 08.31 Kúlugúbbarnir 08.53 Hrúturinn Hreinn 09.00 Múmínálfarnir 09.22 Robbi og Skrímsli 09.44 Eldhugar – Tove Jans- son – málari og Múm- ínmamma 09.48 Sjóræningjarnir í næsta húsi 10.00 Ævar vísindamaður 10.30 Andrar á flandri 11.00 Silfrið 12.10 Alla leið 13.20 Lagið um hatrið 13.50 Íslensku tónlist- arverðlaunin 15.25 Fullkomin pláneta 16.25 Stamið stöðvað 17.35 Landakort 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Söguspilið 18.25 Menningin – sam- antekt 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.20 Ísland: bíóland – Tími Íslensku kvikmynda- samsteypunnar 21.20 Djöflaeyjan 23.00 Tvöfalt líf Veróniku 00.35 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar . 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins . Foreldrar fagna þegar nýjar barnaplötur líta dagsins ljós. Á dög- unum gaf Alexander Freyr út plötuna „Út í geim og aftur heim“ sem er aðgengileg á YouTube og Spotify. „Þetta er geimævintýri blandað saman við lög. Þetta er saga,“ útskýrir Alexander í viðtali við Helgarútgáfuna. Alexander fer sjálfur með hlutverk Ofur-Ólafs en söng- konan Karitas Harpa talar og syngur fyrir Geimgerði. Al- exander segir að sig hafi alltaf langað að gefa út barna- plötu vegna frelsisins sem býr í því að bulla og búa til eitthvað skrítið. Dóttir Alexanders hjálpaði honum við gerð plötunnar og segir hann hana hafa verið mjög hreinskilna. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að fá síður úr litabók með því að hafa samband á Facebook-síðu Út í geim og aftur heim en Alexander segir tilvalið fyrir börn að hlusta á plötuna og lita á sama tíma. Viðtalið við Alexander má nálgast í heild sinni á K100.is. „Út í geim og aftur heim“ H ver man ekki eftir hinni al- vörugefnu og svölu Lilly Rush sem fór fyrir harð- snúnu liði rannsóknarlögreglu- manna í Fíladelfíu og dustaði rykið af óleystum og jafnvel löngu gleymdum morðgátum í sjónvarps- þáttunum Cold Case? Lilly bless- unin hafði ráð undir rifi hverju í vinnunni en var oftar en ekki með vindinn í fangið í einkalífinu, eins og gengur. Svo föl var hún alla jafna í framan að maður óttaðist að hún liði út af þá og þegar. Það gerðist þó aldrei og alltaf gekk rannsóknin upp, óháð því hvort morðið var fram- ið 1919 eða 1999. Einhverjir mestu formúluþættir sögunnar, Cold Case, uppbyggingin var nánast alltaf sú sama, en sjarm- inn fólst í tímaflakkinu enda tókst iðulega að stinga manni í beint sam- band við tíðarandann, með andrúms- loftinu, búningunum og ekki síst tón- listinni. Svo voru aðalpersónurnar flestar áhugaverðar. Þið munið líka eftir Scotty Valens, John Stillman, Will Jeffries, Kat Miller og síðast en ekki síst Nick Vera, yndislegum dreng í yfirvigt sem var með allt niðrum sig í einkalífinu. Hvenær verður eiginlega búin til sjónvarps- lögga sem er með allt sitt á hreinu í lífinu og gyrt upp að brjóstum? Það var leikkonan Kathryn Morr- is sem fór með hlutverk Lilly Rush. Hún fæddist árið 1969 í Ohio en óx úr grasi í Connecticut ásamt fimm systkinum. Þrjú þeirra voru með henni og föður þeirra í gospel- bandinu The Morris Code sem ferð- aðist um Biblíubeltið meðan Kat- hryn var barn og unglingur. Faðir hennar var biblíufræðingur og krist- in gildi í hávegum höfð á heimilinu. Morris lagði stund á leiklist í gagnfræðaskóla en varð fyrir því óláni að ekið var á hana á leið í fyrsta launaða verkefnið – japanskt tónlist- armyndband byggt á Grease. Henni varð ekki meint af högginu og náði á tökustað í tæka tíð. Hermt er að á þeim tímapunkti hafi hún ákveðið að leggja leiklistina fyrir sig. Spielberg klippti hana út Hún byrjaði í agnarsmáum hlut- verkum í Hollywood, meðal annars í Óskarverðlaunamyndinni As Good as It Gets. Fyrsta alvöru tækifærið kom í sjónvarpsþáttunum Pensa- cola: Wings of Gold frá 1997-98. Ste- ven Spielberg réð Morris síðan í stórmyndina A.I.: Artificial Intelli- gence, þar sem hún var send í stífa söng- og gítartíma. Á endanum voru öll atriðin með henni þó klippt út úr myndinni. Sem var bömmer. Morris sást þó í annarri Spielberg-mynd, Minority Report, þar sem hún lék þjakaða eiginkonu Tom Cruise. Stóra giggið kom svo 2003 þegar Cold Case var hleypt af stokkunum. Alls voru gerðir 156 þættir á sjö ár- um og Lilly Rush var brennipunkt- urinn í þeim öllum. Ellefu ár eru liðin frá því að síð- asta málinu var lokað og satt best að segja hefur afskaplega fátt verið að frétta af Morris síðan. Árið 2013 lék hún í sjónvarpsmyndinni The Swee- ter Side of Life og 2018 fékk hún hlutverk í sjónvarpsþáttunum Re- verie en framleiðslu þeirra var hætt eftir einn vetur. Örfá aukahlutverk hefur Morris fengið í bíómyndum, nú síðast sást hún á djamminu með ærslabelgjunum í Mötley Crüe í leikinni kvikmynd um ævi þeirra og störf, Dirt, sem frumsýnd var 2019. Lék móður Nikki gamla Sixx. Sambýlismaður Morris er leik- arinn Johnny Messner og eiga þau tvíbura, fædda 2013. orri@mbl.is Lilly Rush ásamt félögum sínum Will Jeffries og Scotty Valens í Cold Case. CBS HVAÐ VARÐ UM LILLY RUSH? Leysti rykfallnar morðgátur Kathryn Morris lék síðast í Mötley Crüe-myndinni, Dirt, árið 2019. Lítið hefur farið fyrir henni frá því að Cold Case lagði upp laupana fyrir ellefu árum. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.