Morgunblaðið - 05.05.2021, Side 1

Morgunblaðið - 05.05.2021, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. M A Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 105. tölublað . 109. árgangur . ELDGOSIÐ ÝTTI DRÓN- UM Á FLUG TÍSKA, MANNLÍF OG FÓLK SMARTLAND 10 ÁRAVIÐSKIPTAMOGGINN Heilmikill gróðureldur kviknaði í Heiðmörk um fjögurleytið í gær og varð reyksins vart víða um höfuðborgarsvæðið. Um 70-80 manns komu að slökkvistarfinu og kallaði slökkvilið höfuðborgarsvæðisins á aðstoð frá Brunavörnum Suðurnesja og Árnessýslu, auk þess sem Landsbjörg lagði til mannskap. Þá sinnti þyrla Landhelgisgæslunnar slökkvistarfi og sótti vatn úr nærliggjandi vötnum til að dreifa yfir eldinn. Áætlað var að minnst 5 hektarar af skóglendi hefðu farið undir eld og var búist við að slökkvistarf stæði fram á nótt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Að minnsta kosti fimm hektarar skóglendis undir eld Stefán E. Stefánsson Baldur Arnarson „Við þurftum að loka útboðinu um dag- inn, við söfnuðum í raun miklu meiri peningum en við ætluðum að gera því áhuginn var svo gríðarlegur frá fag- fjárfestum og er enn þá.“ Þetta segir Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, en hann er gestur Dagmála á mbl.is í dag. Hann segir að fyrirhuguð skráning félagsins í júní á markað sé ekki komin til vegna þess að félagið sárvanti aukið fjármagn heldur sé það talin góð leið til þess að hleypa fjár- festum að borðinu sem helst fjárfesti aðeins í skráðum bréfum og eins al- menningi sem sýnt hafi starfseminni mikinn áhuga. Margir vilji koma að endurreisn íslenskrar ferðaþjónustu. „Við erum á hverjum einasta degi að segja, þú verður að bíða,“ segir Birgir þegar hann lýsir áhuga fjárfesta á fé- laginu. Hann telur að skráning félags- ins á markað tryggi ákveðinn aga og festu í reksturinn sem „sé stóra breyt- an í því að ná árangri því það er ekki einhver einn einstaklingur sem er að ráða eða tekur einhverjar ákvarðanir sem byggðar eru á einhverjum öðrum forsendum en þeim sem eru viðskipta- lega réttar,“ segir Birgir. Þar sem umræðan barst að kjara- samningum sem Play hefur gert við Hið íslenska flugstéttafélag, en þeir ná bæði til flugmanna og flugliða, segir Birgir að búið sé að færa veruleika þeirra nær því sem gengur og gerist almennt á íslenskum vinnumarkaði. Allar reglur séu virtar, kjörin séu góð en nýting áhafna tryggi hagfellda nið- urstöðu fyrir félagið. Ekki sé byggt á starfsaldurslistum líkt og á vettvangi Icelandair. Á hálfu ári hyggst Play tvöfalda um- svif sín og hefja flug til Bandaríkjanna. Þá hefur mikil vinna verið lögð í að tryggja félaginu lendingarheimildir á evrópskum flugvöllum. Heathrow er ekki meðal þeirra. Ráða 200 manns í sumar Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, áætlar að hafa yfir 300 starfsmenn í sumar. Um hundrað manns hafa starfað hjá fyrirtækinu í vetur en mest störfuðu um 700 hjá því sumarið 2018. Hefur fyrirtækið boðið fólki sem missti vinnuna í kórónuveiru- faraldrinum að koma til starfa á ný. Fyrirtækið þjónustar flugfélög á Keflavíkurflugvelli og segir Sigþór Kristinn að nær öll félög sem það hafi þjónustað séu að koma til baka. Varðandi áform Play segir Sigþór Kristinn að Airport Associates muni þjónusta flugfélagið. „Ég er mjög spenntur fyrir komu Play inn á mark- aðinn og á von á því að viðtökur verði mjög jákvæðar,“ segir hann. Margir fjárfestar vilja koma að borðinu hjá Play að sögn forstjóra - Engir starfsaldurslistar í kjarasamningum - Airport Associates að ráða 200 manns Play Birgir Jónsson ræðir málefni flugfélagsins í Dagmálum í dag. M »ViðskiptaMogginn Mótun nýrrar landbún- aðarstefnu er hafin, en í dag mun Kristján Þór Júlíusson landbún- aðarráðherra kynna nýtt um- ræðuskjal þar að lútandi, sem þau Björn Bjarnason og Hlédís H. Sveinsdóttir unnu að beiðni ráðherra. Í skjalinu er hugtakið landbún- aður víkkað að ýmsu leyti og tek- ur þar t.d. til bindingar kolefnis í jörðu og fleira, sem ekki hefur til þessa talist til hefðbundinna bú- starfa. Þar er í auknum mæli horft til umhverfisverndar og sjálfbærrar landnotkunar, mat- væla- og fæðuöryggis og fjöl- margra annarra þátta, þar sem fjórða iðnbyltingin er ekki undan- skilin. Þá er vikið að breyttu fyrir- komulagi opinbers stuðnings við búsetu og jarðrækt. »4 Ný stefna til umræðu Kristján Þór Júlíusson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.