Morgunblaðið - 05.05.2021, Side 6
tillögu að deiliskipulagi Bolafjalls,
sem er í um 600 metra hæð yfir sjáv-
armáli. Tilgangur breytts deiliskipu-
lags var að móta heildstætt skipulag
fyrir áfangastað á Bolafjalli sem
miðar að því að vernda sérstöðu og
viðkvæmni svæðisins en gefa um leið
einstaka upplifun í nálægð við nátt-
úruöflin. Innan svæðisins er lóð rat-
sjár- og fjarskiptastöðvar Atlants-
hafsbandalagsins sem rekin er af
Landhelgisgæslu Íslands og skil-
greind er sem öryggissvæði.
Segull í sveitarfélaginu
Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri
Bolungarvíkurkaupstaðar, segir að í
deiliskipulagi sé teiknað lítið þjón-
ustuhús á Bolafjalli, en skipulags-
svæðið sé nokkuð stórt og bjóði upp
á möguleika á framtíðaruppbygg-
ingu. Jafnframt sé verið að vinna að
breytingum á aðalskipulagi þar sem
litið sé heildstætt á sveitarfélagið og
þá þjónustu sem þar verði í boði.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Framkvæmdir við gerð útsýnispalls
á Bolafjalli hefjast væntanlega á nýj-
an leik upp úr miðjum mánuði.
Stefnt er að því að verkefnum á fjall-
inu verði að mestu lokið í september.
Á sama tíma vinnur Bolungarvíkur-
kaupstaður að ýmsum breytingum á
skipulagsmálum sveitarfélagsins til
að vera betur í stakk búinn til að
taka við fjölda ferðamanna. Áætlanir
gera ráð fyrir að innan tíu ára muni
um 100 þúsund manns fara árlega á
Bolafjall. Útsýnispallurinn verður úr
stáli og gleri og slútir fram yfir
klettavegginn á um 55 metra kafla í
yfir 600 metra hæð yfir sjávarmáli.
Í gámum upp á Bolafjall
Pallurinn verður smíðaður í Pól-
landi og er vinnu við undirbúning og
hönnun nýlega lokið, að sögn Gunn-
ars Arnar Steingrímssonar, verk-
efnastjóra hjá Eykt, sem sér um
framkvæmdir í Bolafjalli. Stál og
vírahandrið er væntanlegt frá Pól-
landi til Ísafjarðar með gámaskipi
Eimskipa um mitt sumar og verða
gámarnir keyrðir þaðan og upp á
Bolafjall. Glerhandrið sem verður á
hluta pallsins kemur frá Samverki.
Eftir aðra helgi er reiknað með að
verktaki fyrir vestan geti byrjað að
vinna á Bolafjalli, en Eykt vinnur
alla forvinnu með heimamönnum. Í
fyrrasumar var unnið við jarðvinnu,
styrkingu á berginu og fleira. Þegar
þráðurinn verður tekinn upp að nýju
liggur fyrir að fleyga og bora fyrir
12 metra löngum burðarbitum, sem
ganga inn í fjallið með ákveðnu milli-
bili. Þegar undirbúningsvinnu lýkur
verður pallurinn settur saman og
festur utan í þverhníptan klettaham-
arinn. Sex Pólverjar á vegum und-
irverktaka Eyktar eru væntanlegir
til þeirra starfa í sumar.
Gunnar segir útsýnispallinn í
Bolafjalli ögrandi og spennandi
framkvæmd, sem sýni mikinn metn-
að bæjarfélagsins.
Í vetur auglýstu utanríkisráðu-
neytið og Bolungarvíkurkaupstaður
„Okkar framtíðarsýn er að að-
staðan á Bolafjalli verði segull í
sveitarfélaginu og að innan tíu ára
komi þangað árlega 100 þúsund
manns,“ segir Jón Páll. „Við viljum
að þetta ferðalag sé ekki aðeins ferð
út á pallinn heldur verði allt sveitar-
félagið tengt saman í heildstæðri
framtíðarsýn.“ Hann nefnir safn-
asvæðið í Ósvör, nýtt náttúru-
gripasafn og hafnasvæðið.
Hefur vakið athygli
„Við höfum áhuga á að stofnað
verði þróunarfélag um uppbyggingu
á Bolafjalli og því sem henni tengist.
Að því kæmu fyrst og fremst einka-
aðilar og nú þegar hefur fram-
kvæmdin á fjallinu vakið mikla at-
hygli og talsverður fjöldi aðila komið
að máli við okkur og sýnt þessu
áhuga,“ segir Jón Páll.
Í kynningu á breytingu á að-
alskipulagi segir meðal annars: „Í
aðalskipulaginu er lögð áhersla á að
laða ferðamenn að ákveðnum stöð-
um sem verða meginaðdráttarafl
eða seglar sveitarfélagsins en jafn-
framt að styrkja miðsvæðið og gera
það að aðlaðandi viðkomustað. Þess-
ir seglar eru Bolafjall, þar sem fyr-
irhugað er að reisa útsýnispall og
bæta aðgengi, safnasvæðið Ósvör og
Skálavík. Áhersla á umbætur á mið-
svæðinu mun hvetja ferðamenn til
að staldra við í þéttbýlinu.“
Kaupstaðurinn fékk 160 milljóna
króna styrk vegna útsýnispallanna í
Bolafjalli úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða. Til viðbótar kem-
ur framlag frá sveitarfélaginu og
kostnaður vegna undirbúningsvinnu
þannig að Jón Páll áætlar að fram-
kvæmdin kosti alls um 200 milljónir
króna. Uppbygging til framtíðar
kalli síðan á talsverðar fjárfestingar
í sveitarfélaginu.
Landmótun og Sei Studio eru höf-
undar og hönnuðir pallsins og Efla
sá um verkfræðiráðgjöf.
Tölvumynd/SeiStudio.
Á brún bjargsins Skoðunarferð á Bolafjalli og gönguferð á útsýnispallinum verður ekki fyrir lofthrædda.
Ögrandi verkefni á Bolafjalli
- Vinna hefst á ný síðar í mánuðinum við útsýnispall - Búist við 100 þúsund
gestum árlega innan tíu ára - Þróunarfélag um uppbyggingu í Bolungarvík
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Síminn hefur skrifað undir nýjan
samstarfssamning við sænska fjar-
skiptarisann Ericsson. Í tilkynningu
frá Ericsson vegna samningsins
kemur fram að með honum sé tryggð
uppbygging 5G á Íslandi og að við-
skiptavinir Símans geti gengið að
fullkomnustu tækni sem völ er á.
Þessi tíðindi koma í kjölfar frétta
um að Nova sé óánægt með ákvæði í
fyrirhuguðum fjarskiptalögum sem
komi í veg fyrir notkun á 5G-sendum
frá kínverska fyrirtækinu Huawei.
Sem kunnugt er hafa bæði Nova og
Vodafone nýtt sér tækni Huawei. Í
minnisblaði frá Nova, sem lagt var
fyrir umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis, segir að umrætt ákvæði
setji mikla hagsmuni fjarskipta á Ís-
landi í uppnám sem geti leitt til
stöðnunar, seinkað verulega tækni-
þróun ýmiss konar og hamli sam-
keppni.
Guðmundur Jóhannsson sam-
skiptafulltrúi Símans segir að um
endurnýjun á samstarfssamningi sé
að ræða og að samstarf fyrirtækisins
við Ericsson nái aftur til 1906. Sím-
inn hafi notast við búnað frá Erics-
son við uppsetningu 4G-kerfisins og
fyrri kerfa. Nú sé komið að 5G.
„Við erum með þrjá tilraunasenda
fyrir 5G á höfuðborgarsvæðinu og
þeir hafa verið í loftinu síðan fyrir
áramót. Fljótlega munum við setja
upp fleiri senda og í framhaldinu
verður 5G-kerfi Símans formlega
sett í loftið.“
Síminn stefnir að því að 5G-net
fyrirtækisins nái til sem flestra
landsmanna fyrir lok árs 2022.
Síminn gerir nýj-
an 5G-samning
- 5G nái til sem flestra fyrir lok 2022
Morgunblaðið/Ómar
Farsímar Stefnt er að því að 5G-net
Símans nái til flestra fyrir lok 2022.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Eftir fyrsta dag strandveiða á mánu-
dag lönduðu 111 bátar af 233 afla
umfram það sem leyfilegt er að
koma með að landi. Heimilt er að
landa 774 kílóum af óslægðum
þorski, en 82 bátar voru með yfir 800
kíló og alls nam umframaflinn í
þorski 9,9 tonnum. Ekki er sektað
vegna slíkra brota, en verðmæti um-
framafla rennur í ríkissjóð og má
áætla að ríflega 2,5 milljónir hafi
runnið í ríkissjóð á strandveiðum
mánudagsins, miðað við að 253 krón-
ur hafi fengist fyrir kílóið.
Á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda er athygli vakin á
þessu og segir þar m.a.: „Því miður
gættu margir ekki að sér og veiddu
umfram það sem leyfilegt er, 650
þorskígildi, sem svarar til 774 kg af
óslægðum þorski. Það gengur að
sjálfsögðu ekki. Virða verður leik-
reglur enda telst allur afli inn í pott-
inn og minnkar það sem kemur í hlut
hvers og eins.“
Í gær hafði Fiskistofa gefið út 434
leyfi til strandveiða, flest eða 188
þeirra eru á svæði A frá Arnarstapa
að Súðavík og 121 á svæði D frá
Höfn í Hornafirði í Borgarnes.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Líney
Þórshöfn Margir hafa aflað vel
fyrstu daga strandveiða sumarsins.
Ríkissjóð-
ur fiskar
á strand-
veiðum
- Margir með afla
umfram heimildir