Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 11
Hjá Veðurstofu Íslands starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar. Því hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Jafnframt er það hlutverk Veðurstofunnar að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni. Nánari upplýsingar má finna á vedur.is ÁRSFUNDUR VEÐURSTOFU ÍSLANDS 2021 Brú milli vísinda og samfélags – leiðin til aðlögunar vegna loftslagsbreytinga ÁRSFUNDURINN ER FJARFUNDUR OG VERÐUR STREYMT Í DAG – MIÐVIKUDAGINN 5. MAÍ KL. 9 Fundurinn hefst kl. 9 og honum lýkur kl. 10.30 í dag, miðvikudaginn 5. maí Loftslagsbreytingar eru náttúruvá og mesta áskorun sem samfélagið stendur frammi fyrir. Á sama hátt og við bregðumst við þegar náttúruvá á borð við eldgos á Reykjanesskaga dynur yfir, þarf samfélagið að beita réttum aðgerðum við að takast á við loftslagsbreytingar. Þær aðgerðir þurfa að byggja á vísindalegum grunni semmyndar „brú milli vísinda og samfélags“ og eykur getu okkar til að takast á við áskoranir af völdum loftslagsbreytinga. Á ársfundinum verður farið yfir þær áskoranir sem við sem samfélag stöndum frammi fyrir þegar kemur að áhrifum loftslagsbreytinga ásamt því að kynnt verða fyrstu skrefin til að styrkja þessa brú milli vísinda og samfélags í gegnum nýjan samstarfsvettvang fjölmargra stofnana og hagaðila undir forystu Veðurstofu Íslands. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nýliðinn apríl var fremur svalur, þurr og hægviðrasamur. Mjög sólríkt var norðanlands og hafa sólskins- stundir aðeins einu sinni mælst fleiri á Akureyri í aprílmánuði. Loftþrýst- ingur var sérlega hár í mánuðinum. Þetta kemur fram í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Sólskinsstundirnar mældust 195,6 á Akureyri í apríl, sem er 68,1 stund yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Aðeins einu sinni hafa sólskinsstund- irnar verið fleiri á Akureyri í apríl en það var árið 2000 þegar þær mældust 196,3. Í Reykjavík mældust sólskins- stundirnar 134,5 sem er 30,6 stundum færri en í meðalári. Kalt var á landinu öllu Apríl var fremur svalur á landinu öllu og sérlega kalt var dagana 4. til 10. Að tiltölu var hlýjast á Vest- fjörðum og Snæfellsnesi en kaldast inni á hálendi. Jákvætt hitavik var mest 0,1 stig á Gufuskálum. Neikvætt hitavik var mest -1,7 stig í Þúfuveri. Víða á Austurlandi var meðalhitinn í apríl lægri en meðalhiti marsmán- aðar og sums staðar einnig lægri en febrúarhitinn. Meðalhiti í Reykjavík í apríl var 3,5 stig og er það -0,2 stigum undir með- allagi áranna 1991 til 2020, en -0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 2,8 stig, 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykk- ishólmi var meðalhitinn 2,7 stig og 2,9 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Steinum undir Eyjafjöllum, 4,5 stig, en lægstur -4,7 stig á Gagnheiði. Í byggð var meðalhitinn lægstur, -1,3 stig, á Grímsstöðum á Fjöllum. Hæsti hiti mánaðarins mældist 17,1 stig á Kvískerjum þ. 2. Mest frost mældist -21,7 stig við Hágöngur þ. 10. Mest frost í byggð mældist -17,4 stig í Húsafelli þ. 9. Loftþrýstingur var sérlega hár í apríl. Meðalloftþrýstingur í Reykja- vík mældist 1021,4 hPa og hefur aldr- ei verið eins hár í apríl frá upphafi mælinga. Akureyr- ingar voru sólbakaðir - Nýliðinn apríl var svalur og þurr Morgunblaðið/Margrét Þóra Blíðviðri Áhöfn seglsnekkjunnar A var einkar heppin með veður. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Eigandi Íslandsbankahússins á Kirkjusandi vill flýta niðurrifi hússins enda fari ástand þess hratt versnandi. Sem kunnugt er af fréttum hefur hús- ið verið dæmt ónýtt vegna myglu. Í erindi sem Jónas Þór Jónasson sjóðsstjóri Íslandssjóða hefur sent skipulagsfulltrúa Reykjavíkur kemur fram að ástand byggingarinnar versni með hverjum mánuðinum. Þá beri í vaxandi mæli á skemmdarverk- um og innbrotum í húsið. Það hafi leitt til þess að börn í hverfinu slysist inn í húsið og geti það orðið hættulegt heilsu þeirra. Byggingin er jafnframt lýti fyrir nágrannana og borgarbúa alla, segir Jónas. Nýtt deiliskipulag hefur verið unn- ið fyrir reitinn undanfarin tvö ár í samvinnu lóðarhafa og Reykjavíkur- borgar. Fram kemur í bréfi Jónasar Þórs að nú sé unnið að fínstillingu þeirrar tillögu. Ljóst sé að skipulag verði að öllum líkindum tilbúið í lok þessa árs og nýjar byggingar muni rísa á reitnum. Í ljósi alls þessa óska Íslandssjóðir eftir skjótum viðbrögð- um við ósk um niðurrif. Eins og fram kom í frétt Morgun- blaðsins 11. febrúar sl. bar tillaga arkitektastofunnar Kurtogpí sigur úr býtum í samkeppni um nýjar bygg- ingar á lóð Íslandsbankahússins á Kirkjusandi. Lóðarhafinn, fjárfest- ingasjóðurinn Langbrók, stóð fyrir samkeppninni. Langbrók er í stýr- ingu hjá Íslandssjóðum. Fimm bygg- ingar verði á lóðinni, hver með sitt einkenni og hlutverk. Íslandsbankabyggingin var upp- haflega frystihús, sem reist var á ár- unum 1955-1962 af hlutafélögunum Júpíter og Mars. Byggingin á Kirkju- sandi er 7.719 fermetrar að stærð. Þarna voru aðalstöðvar Sambands ís- lenskra samvinnufélaga í áratugi. Síðar var Íslandsbanki með aðal- stöðvar þar til ársins 2017 er hann flutti í Kópavog, eftir að mygla upp- götvaðist í húsinu. - Eigandinn vill flýta niðurrifi hússins enda fari ástand þess hratt versnandi - Nýjar íbúðabyggingar munu rísa á lóðinni Morgunblaðið/sisi Íslandsbankahúsið Það hefur verið dæmt ónýtt vegna myglu. Engin starfsemi hefur verið þar síðan 2017. Skemmdarverk unnin á Íslandsbankahúsinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.