Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 ✝ Guðrún Iðunn Jónsdóttir fæddist í heimahúsi við Vallargerði í Kópavogi þann 24. júlí 1953. Hún lést þann 30. apríl 2021 á Landspítalanum í Fossvogi eftir stutt veikindi. Foreldrar hennar voru hjónin Elísa Guðlaug Jóns- dóttir, f. 17.9. 1925, d. 30.1. 2018, og Jón I. Hann- esson, f. 5.4. 1925. Guðrún Iðunn var eina barn þeirra hjóna en Elísa átti tvær dætur úr fyrra hjónabandi, þær Ólöfu Jónu, f. 16.9. 1944, og Ruth Höllu Sigurgeirsdætur, f. 29.1. 1946, d. 1.8. 2007. Guðrún Iðunn giftist Lárusi Hannessyni, f. 17.10. 1949, árið 1974 og eignuðust þau einn son, Hannes Jón, f. 13.11. 1975, komst þar fljótt í deildarstjóra- stöðu og vann hún þar til hausts- ins 1982. Flytur hún með Sveini og Hannesi til Hamborgar í Þýskalandi sama haust, þar sem Sveinn starfaði í fyrstu fyrir Haf- skip og síðar fyrir Eimskip. Þau gifta sig sumarið árið eftir í Ham- borg og flytja svo aftur til Reykja- víkur haustið 1989, þar sem þau komu sér vel fyrir við fallega náttúru Elliðarárdals í Breiðholti. Haustið 2006 veiktist Sveinn og studdi hún hann í gegnum sín erf- iðu veikindi fram að andláti hans í október 2009. Hún tók til starfa hjá Sameinaða lífeyrisssjóðnum, nú Birtu lífeyrissjóði, árið 2010 og vann þar til starfsloka. Guðrún Iðunn var virk í fé- lagsmálum, hún gekk í Odd- fellow-regluna í Hamborg og svo í Rebekkustúku nr. 1, Bergþóru í Reykjavík, eftir að hún flutti aft- ur heim. Þar gegndi hún æðstu störfum innan stúkunnar. Einnig var hún ein af stofnendum Can- ton nr. 1, Heklu innan Oddfellow- reglunnar árið 2010. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju 5. maí 2021 kl. 13. kvæntur Elke Zim- mermann, f. 17.5. 1978, og eiga þau þrjú börn, þau Jó- hönnu Björgu, f. 21.2. 2008, Jona- than, 25.9. 2009, og Oskar Aaron, f. 15.6. 2017. Guðrún Iðunn og Lárus slitu samvistir 1980. Guðrún Iðunn gift- ist aftur árið 1983, Sveini Kr. Péturssyni, f. 22.1. 1944, d. 7.10. 2009. Þau eign- uðust einn son, Gunnar Hrafn, f. 11.6. 1996. Guðrún Iðunn ólst að mestu upp í Rauðagerðinu og gekk í Breiðagerðisskóla og síðar Rétt- arholtsskóla áður en hún fór í Verzlunarskólann þaðan sem hún lauk stúdentsprófi 1974. Eftir stúdentspróf fór hún að vinna hjá ferðaskrifstofunni Útsýn og Það er skrítið að skrifa um konu sem þekkti mig betur en ég sjálfur og lengur en eigið minni nær til. Ég ætla samt að reyna. Mamma var sterk og viljamikil kona sem stýrði eigin lífi fram á síðasta dag. Hún bar harm sinn í hljóði til að losna við afskipti okk- ar og lét ekki stjórna sér þótt við bræður reyndum það oft. Hún virtist bíða með að deyja þar til ég gæti komið til að kveðja. Fyrir það er ég henni mjög þakklátur. Hún lagði mikla áherslu á sjálfstæði, traust og trúnað. Það var alveg sama hvað ég hafði gert af mér eða komið mér í mikið klandur, alltaf var hægt að leita til hennar. Ef ég reyndi að fara á bak við hana var hún búin að finna það út á nóinu. Hún veitti mér það frelsi sem ég þurfti til að læra að axla ábyrgð og þróa sjálf- stæða hegðun og hugsun. Taum- urinn var alltaf slakur en aldrei um of. Ég fékk að ráða minni för. Henni var að þakka að heimili okkar var alltaf fallegt og snyrti- legt. Gestir gátu komið hvenær sem er án þess að maður þyrfti að skammast sín. Alltaf voru dyrnar opnar fyrir vini mína sem gengu inn og út eins og þeir ættu heima þarna líka. Oft tæmdum við strákarnir ísskápinn en bara ein- staka sinnum lét hún það trufla sig. Helst ef við vinirnir höfðum klárað eitthvað sem átti að eldast um kvöldið. Mamma kenndi mér að elda með því að láta mig gera hlutina og vera til taks ef á þyrfti að halda. Þannig lærði ég líka að kokkabækur eru bara til viðmið- unar en alls ekki til að fara eftir þeim. Hún var framúrskarandi kokkur. Alltaf var maturinn hennar góður, fjölbreyttur og nægilegt af honum. Þegar við Elke tókum saman var mamma fljót að innlima Elke í fjölskylduna sem dótturina sem hún eignaðist aldrei sjálf. Aldrei skipti hún sér óbeðin af okkar málum en stóð ekki á skoðunum sínum ef hún var spurð. Mamma var mjög gjafmild kona. Hún hugsaði vel um barna- börnin með prjónapeysum sem vöktu athygli um alla Hamborg svo og náttfötum og ýmsum gjöf- um sem börnin hefðu aldrei feng- ið frá okkur. Það var alltaf mikil tilhlökkun þegar amma kom í heimsókn. Nú kemur mamma aldrei aftur til okkar í heimsókn. Nú er hún hjá Svenna og þau bæði með okk- ur í anda. Við munum sakna hennar sárt. Hvíl í friði. Hannes Jón Lárusson. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Eitthvað sagði okkur að þessi dagur myndi koma fyrr en ella, en engu að síður óraunverulegt að ég skuli þurfa að rita þessi orð nú, sárt og erfitt. En ég er einnig þakklátur fyrir að hafa fengið að sitja við hlið mömmu síðustu daga hennar á þessari jörð, með fallegt útsýni yfir hennar fæðing- arstað og þakka henni fyrir þá visku og umhyggju sem hún gaf og mun fylgja mér út lífið. Mamma var einstök kona, fyr- irmyndarhúsmóðir sem kom sér vel fyrir ungan dreng sem þurfti næringarríkan mat og hrein föt áður en hann rauk aftur út að leika, ströng sem gat komið sér ansi illa þegar unglingurinn nennti ekki að læra eða vildi kaupa einhver dýr tæki, þolin- móð upp að vissu marki, sem kom sér ýmist vel eða illa, fór þó eftir vinnudögum sonarins í sumar- búðum sem gátu orðið ansi marg- ir í senn, en fyrst og fremst var mamma umhyggjusöm móðir sem vildi ala upp sjálfstæðan son með viðmótinu „enga vitleysu, þetta er bara svart og hvítt“. Af og til sagði ég vinum mín- um frá skrautlegum samskiptum okkar mömmu sem einkenndust oftar en ekki af mikilli kaldhæðni og undarlegri kímni sem ekki verður hægt að endurtaka hér á prenti, en það var ekki fyrir svo löngu síðan að ég áttaði mig á því hvaðan ég hefði þennan húmor. Í fyrstu var ákveðin afneitun í gangi, hvaða ríflega tvítugi sonur vildi líkja húmor sínum við húm- or tæplega sjötugrar móður sinnar? En það er víst þannig að börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Þá erfði ég þrjóskuna frá mömmu líka, en mun líklegast ekki ganga jafn langt og hún. Þannig er að ég er nefndur í höfuðið á mömmu, sem kölluð var Gunna af vinkonum sínum og bestu vinkonu hennar Hrafnhildi. Þær höfðu ungar ákveðið að ef þær myndu eignast son fengi hann nafnið Gunnar Hrafn og ef það yrði stúlka fengi hún nafnið Gunnhildur. Ekki skírði Hrafn- hildur syni sína þrjá þeim nöfn- um og mamma sparaði þau með fyrri soninn. Þegar vinkonan eignaðist loks dóttur og sú fékk ekki það nafn sem ákveðið hafði verið mörgum áratugum áður var mömmu nóg boðið og eftir því sem ég kemst næst ávarpaði hún dótturina alla tíð með orðunum „sæl Gunnhildur“, viðstöddum til mikillar undrunar sem ekkert skildu. Svona var þrjóskan henn- ar mömmu í hnotskurn og ekkert annað hægt en að hrista hausinn og hlæja. Og nú situr mamma við hlið pabba, með kaffibolla og su- doku, fylgist með og mun hrista hausinn yfir allri vitleysunni í mér í framtíðinni, sem pabbi er eflaust löngu hættur að kippa sér upp við. En mamma veit án efa að ég geri það til að pirra hana góð- látlega, þannig var samband okk- ar, kímni og þrjóska, beint úr móðurlegg. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöld- ur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Guð geymi þig elsku mamma. Þinn sonur, Gunnar Hrafn. Þrettán ára stelpur sem sum- ar höfðu verið saman í bekk í Breiðagerðisskóla hittust haust- ið 1966 í Réttó. Úr varð stór vin- konuhópur sem hittist mikið og oft. Fermingin var framundan næsta vor og mikið þurfti að spá í hlutina og ákveða ýmislegt og þá var gjarnan hist heima hjá Guð- rúnu í Rauðagerðinu. Það voru „eftirfermingarveisl- Guðrún Iðunn Jónsdóttir ur“ dag eftir dag, allar buðu heim. Við skiptumst á gjöfum og hlustuðum á músík og höfðum það skemmtilegt. Samhliða náminu í Réttó var félagslíf sem allir tóku þátt í. Alls kyns tómstundastarf og reglu- lega voru haldin böll í sal skólans. Þar spiluðu allar flottustu hljóm- sveitir landsins og á dansgólfinu í Réttó urðu til þó nokkur pör sem entust til framtíðar, þrátt fyrir að Kristín leikfimiskennari gengi um með grimman svip og skildi á milli í vangadansi. Allar þessar minningar eru sveipaðar hamingjuljóma. Eftir Réttó skildi leiðir um sinn, hjá sumum okkar. En svo var það árið 1986 að við fimm skólasystur ákváðum að hittast með börnin okkar heima hjá Eddu. Og upp úr því varð saumaklúbburinn okkar til. Edda var nýflutt heim frá Edinborg og Guðrún og Sveinn voru að flytja heim frá Hamborg og við innsigl- uðum vináttuna og höfum hist reglulega síðan. Þegar við hittumst þá rifjum við upp gamla tíma og segjum frá sameiginlegum vinum sem við höfum hitt og hafa beðið að heilsa. Árið 2013 urðum við sextugar og ákváðum þá að gefa hver ann- arri 1/5 í Edinborgarferð í afmæl- isgjöf. Sem varð auðvitað til þess að við borguðum hver sína ferð. Edda hafði búið í Edinborg og var sjálfkjörinn fararstjóri. Við nutum þess að skoða borgina og heimsækja litla lokal staði. Á kvöldin var „happy hour“ og þá var mikið spjallað og mikið hleg- ið. Við höfum haft það fyrir sið að hittast á jólahlaðborði í hádegi í desember og skiptumst við þá á að velja stað, sjá um hittinginn og koma með pakka handa hinum. Stundir eins og þessar eru ómetanlegar og einlæg vinátta er svo dýrmæt. Við eigum margar góðar minn- ingar um heimsóknir í Neðsta- bergið til Guðrúnar og Sveins, og eftir andlát Sveins til Guðrúnar í Seinakurinn. Með andláti Guðrúnar hefur verið höggvið skarð í okkar litla klúbb og við stöldrum við og ger- um okkur grein fyrir því að það fylgir hækkandi aldri að þurfa að kveðja samferðafólk sitt. Þess vegna verðum við að muna að lífið er núna og það þolir enga bið að lifa og njóta. Við, vinkonur Guðrúnar, send- um okkar dýpstu samúðarkveðj- ur til Hannesar Jóns og fjöl- skyldu, Gunnars Hrafns, Jóns föður Guðrúnar, Ollýjar systur hennar og allra þeirra sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls elsku Guðrúnar Iðunnar. Við þökkum henni samfylgd- ina og biðjum Guð að blessa minningu okkar góðu vinkonu. Veri hún kært kvödd. Hrafnhildur, Edda, Hulda og Margrét. Hún Guðrún frænka mín var mér eins og systir alla tíð. Hún fékk snemma þá ábyrgð að passa þennan litla strák sem vildi alltaf vera í fanginu á frænku sinni. Hún og Habba vinkona hennar fengu þetta mikilvæga hlutverk og sinntu því af einstökum áhuga, svona allavega meðan hann var lítill. Litli frændinn datt að vísu aðeins úr tísku á unglingsárum ungu kvennanna, en hann fékk fljótlega aftur skjól hjá frænku sinni þegar tíminn leið. Alla tíð áttum við Guðrún gott og fallegt samband og alltaf var hún til staðar fyrir frænda sinn í gegnum árin – sama á hverju gekk. Árin á Hringbrautinni voru full af lífi og fjöri hjá okkur frændsystkinunum og nú þegar frænka mín er ekki lengur til staðar er gott að líta til baka og eiga góðar minningar. Þær eru ófáar. Það er óhætt að segja um hana frænku mína að hún var alls ekki að bera sín mál á torg fyrir hvern sem er, en leysti þau flest vel og af röggsemi. Hún gekk í málin af krafti. Oddfellow-starfið var henni sennilega mikilvægast á meðan hún starfaði þar, enda fann hún sig vel í því umhverfi. Þeir sem til þekkja segja að hún hafi leyst sín verkefni innan reglunnar af slíkri festu og fagmennsku að varla verði það leikið eftir. Ég minnist Guðrúnar frænku minnar með hlýju og kærleika og sendi frændum mínum Hannesi Jóni og Gunnari Hrafni mínar innilegustu samúðarkveðjur. Jón Axel Ólafsson. ✝ Valdemar Friðriksson fæddist á Bíldudal 6. janúar 1942. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 20. apríl 2021. Foreldrar hans voru Friðrik Valdemarsson, f. 10.10. 1915, d. 7.7. 1978, og Kristín Hannesdóttir Stephensen, f. 1.10. 1910, d. 11.8. 1999. Systkini Valdemars eru Hannes Stephensen, f. 6.11. 1939, Agnar, f. 14.7. 1945, og Guðbjörg Sigríður, f. 19.12. 1946. Börn Valdemars eru: 1) Kristín, f. 1961, gift Jóni Jónssyni rafverk- taka og eiga þau einn son, Bjarka Þór, fyrir á Jón soninn Pálma Þór. 2) Friðrik, f. 1963, hann á tvö börn, Pétur Bergvin og Rósu Maríu. 3) Val- dís, f. 1963, hún á sex börn, Birgittu, Sindra, Ólaf, Ólafíu, Gunnþór og Önnu. 4) Hlynur, f. 1964, hann á eina dóttur, Dagbjörtu. Útför Valdemars hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk. Hvíl í friði elsku pabbi minn. Minning þín mun lifa með okkur. Kveðjan mín Þá farinn ertu pabbi minn til sumarlandsins bjarta ég kveð þig nú í hinsta sinn með sorg í mínu hjarta. Sársauki þinn þá horfinn er því hvíldina hefur hlotið þakkir vil ég færa þér að hafa ástúðar þinnar notið. (KMV) Kristín M. Valdemarsdóttir. Elsku pabbi minn. Þessi þrautaganga þín var ekki löng en hún var ströng. Nú ertu frjáls og kominn á betri stað, kominn í Sumarlandið til ömmu og afa. Góða ferð. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá – það verður dásamleg dýrð handa mér. Ástvini sé ég, sem unni ég hér, árstraumar fagnaðar berast að mér, blessaði frelsari, brosið frá þér, það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson) Guð geymi þig pabbi minn. Þín dóttir, Valdís Fanndal Valdemars- dóttir, börn og barnabörn. Valdemar Friðriksson Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARTA KRISTÍN BÖÐVARSDÓTTIR, Akurtröðum í Eyrarsveit, andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli mánudaginn 3. maí. Már Hinriksson Jóhanna Guðrún Gissurard. Finnur Magni Hinriksson Jónheiður Guðrúnard. Haralds Þorkell Gunnar Þorkelsson Olga Sædís Einarsdóttir Sigurður Þorkelsson Dagný Jeremíasdóttir Gerður Jensdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR ÖRN ARNARSON læknir, Mánatúni 2, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sólltúni laugardaginn 1. maí. Útför fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. maí klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Guðrún K. Ólafsdóttir Sverrir Ólafsson Ingibjörg Hauksdóttir Katrín Ólafsdóttir Ole Aaboe Jørgensen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL INGI VALMUNDSSON Gullsmára 7, Kópavogi lést laugardaginn 1. maí á hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík. Útför fer fram í Digraneskirkju mánudaginn 10. maí kl. 13. Athöfninni verður streymt: skjaskot.is/pallvalmundsson Klara Guðmundsdóttir Valmundur Ingi Pálsson Guðlaugur Heimir Pálsson Lizceth Zapata Almiron Sólrún Lilja Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNHILDUR JÓNA HALLGRÍMSDÓTTIR frá Sultum í Kelduhverfi, lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík síðastliðinn sunnudag. Guðmundur Hersteinn Eiríksson Eiríkur Guðmundsson Malin Mortensen Anna Guðmundsd. Merckoll Hans-Henrik Merckoll Sunna Guðmundsdóttir Valur Björn Baldursson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.