Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
„ÞVÍ MIÐUR KYNNTIST ÉG HONUM
ALDREI NÓGU VEL TIL ÞESS AÐ HATA
HANN ÚT AF LÍFINU.“
„MÉR ÞYKIR ÞAÐ LEITT, VILHJÁLMUR, EN
EFTIR SEXTÁN ÁRA STARF TEKUR ÞESSI
ÖRFLAGA ÞAÐ YFIR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... oft í smærri
pakkningum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVER VEIT HVAÐ
FRAMTÍÐIN BER Í SKAUTI
SÉR?
HVERJUM ER
EKKI SAMA?
GÓÐUR
PUNKTUR
KATTA
HEIMSPEKI
ÞETTA ER LEIÐINLEGASTI
STAÐUR Á JARÐRÍKI!
EKKI EF ÞÉR FINNST JAFNGAMANOG
MÉR AÐ KASTA HRINGJUM!
Svíþjóðarmeistari. „Svo var síðasti
landsleikurinn sætur. Ég er rosa
þakklát fyrir að hafa fengið að klára
landsliðsferilinn á þennan hátt, á
heimavelli. Það var orðið ljóst fyrir
tvo síðustu leikina í undankeppni
fyrir EM að við kæmumst ekki
áfram. Ég tilkynnti þá Frey Alex-
anderssyni þjálfara að ég myndi
leggja skóna á hilluna eftir leikina
og vildi gefa honum tækifæri á að
nota leikina fyrir einhvern annan en
mig. En hann ákvað að leyfa mér að
kveðja með stæl, sem var mjög fal-
legt af honum.“ Þóra er leikjahæsti
landsliðsmarkvörður Íslands, en
Hannes Þór Halldórsson, sem er
leikjahæsti karlmaðurinn, á 75
landsleiki að baki. Þóra er áttundi
leikjahæsti leikmaðurinn í sögu
kvennalandsliðsins.
Áhugamál Þóru eru ferðalög,
golf, útivist og matreiðsla. „Ég fylg-
ist núna bara eins og hver annar
með fótbolta, en ég á reyndar erfitt
með að fylgjast með landsliðinu
spila. Þá verð ég ein taugahrúga.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Þóru er Kári Ey-
þórsson, f. 28.6. 1981, sérfræðingur
í vöruþróun hjá Clear-Com. Þau eru
búsett í Norðurmýri í Reykjavík.
Foreldrar Kára eru hjónin Sigríður
Jóhannesdóttir, f. 23.5. 1958, og Ey-
þór Þórðarson, 31.8. 1960. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Dóttir Kára er Marta, f. 21.6.
2008, búsett í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum.
Systur Þóru eru Eva Helgadóttir
hæstaréttarlögmaður, f. 19.5. 1972,
búsett í Reykjavík, og Ásthildur
Helgadóttir verkfræðingur, f. 9.5.
1976, búsett í Kópavogi.
Foreldrar Þóru eru hjónin Hildur
Sveinsdóttir félagsráðgjafi, f. 7.1.
1949, og Helgi Viborg sálfræðingur,
f. 6.8. 1950. Þau eru búsett í Kópa-
vogi.
Þóra Björg
Helgadóttir
Júníana Stefánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Stefán Ingimar Dagfinnsson
skipstjóri í Reykjavík
Áslaug Stefánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sveinn Gíslason
flugstjóri í Hollandi
Hildur Sveinsdóttir
félagsráðgjafi í Kópavogi
Guðrún Einarsdóttir
húsfreyja í Vík í Mýrdal
Gísli Sveinsson
sýslumaður í Vík í Mýrdal og forseti Alþingis
Sigríður Jónasdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Helgi Þorbergsson
vélsmiður á Ísafirði
Jóna Helgadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Hreiðar Viborg
klæðskeri í Reykjavík
María Hálfdánardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðmundur Pétursson Viborg
smiður í Reykjavík
Úr frændgarði Þóru B. Helgadóttur
Helgi Viborg
sálfræðingur í Kópavogi
Á sunnudag tóku menn hrærðir ámóti Deltavélinni frá BNA
þegar hún lenti á Keflavíkur-
flugvelli, þar á meðal Jóhannes Þór
Skúlason framkvæmdastjóri ferða-
þjónustunnar. Ólafur Stefánsson
orti á Boðnarmiði:
Lenti vél á lágu Reykjanesi
menn lengi höfðu beðið suður þar
og brosið það var breitt á Jóhannesi,
sem blóm í mjúkum vinarhöndum bar.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir:
Hann Eyjólfur uppgjafaprestur
er endemis hrossabrestur,
sem orgar og snýst
og andaður víst
endurfæðist sem hestur.
Það var margt ort og mikið 1.
maí. Hér eru sýnishorn. Hafsteinn
Reykjalín Jóhannesson skrifar: „Ég
var að hjálpa Elvari bróður að
koma upp gróðurhúsi á Hauganesi
við veitingahúsið Baccalá Bar“:
Lífið rennur ljúfan veg,
lítið annað spurt um.
Í ljósi sólar lagði ég,
lögn sem brynnir jurtum.
Núna bíður bróðir minn,
af berjum vill ei missa.
Já, hann yrði afi þinn,
ekki lítið hissa.
Halldór Guðlaugsson kvað:
Augljós breyting út að líta
orðið grænt um sveit og bæ
alveg horfið allt hið hvíta
enda kominn fyrsti maí.
Anna Dóra Gunnarsdóttir svar-
aði: „Hjá mér er þetta svona“:
Ekki er gaman út að líta,
andar köldu um sveit og bæ.
Allt er þakið þessu hvíta
þó að nú sé fyrsti maí.
Gylfi Þorkelsson kvað:
Veðurguðinn velkist æ
í vafa, hér í Flóa.
Finnst ’ann þurfi, fyrsta maí,
að frysta, blása, snjóa.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson slær rétt-
an tón 1. maí:
Til sátta ég finn mig svo fúsan
að forstjórann tek ég og knús’ann.
Hann er vinur í raun
með sín ríflegu laun
þótt treglega borgi hann brúsann.
Kári Erik Halldórsson yrkir um
tíðarfarið og fleira:
Fram úr nösum hripar hor,
hugurinn stendur geldur.
Þessi tíð er trauðla vor
en tæpast vetur heldur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Deltavél, uppgjafa-
presti og veðrinu
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
hafðu það notalegt