Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Norska þáttaröðin Utmark hefur
hlotið prýðilegar viðtökur en hún er
framleidd af Norðurlanda-armi
HBO, HBO Nordic, og leikstýrt af
Degi Kára Péturssyni. Þættirnir eru
átta talsins og segir Dagur Kári um
tvö ár af lífi sínu hafa farið í þættina
enda mikið verkefni í undirbúningi,
framkvæmd og eftirfylgni.
Sýningar á þáttunum hófust í
apríl en tökum lauk í fyrra, skömmu
áður en Covid-19 farsóttin skall á
heimsbyggðinni. Spurður að því
hvort farsóttin hafi haft einhver
áhrif á þættina segir Dagur Kári að
þau hafi verið heldur lítil. Eftir-
vinnslunni hafi seinkað örlítið og það
sé allt og sumt.
En hvað með hans störf, hefur
Covid-19 haft einhver áhrif á þau?
„Þetta hefur komið misilla við fólk
en fyrir mig var þetta ákveðin
himnasending því ég var búinn að
vera í ár úti í Noregi í tökum og svo
átti ég meira eða minna að vera
áfram þar í eftirvinnslunni, klippi og
svoleiðis en út af Covid er ég kyrr-
settur hér. Þannig að fyrir mig per-
sónulega kom þetta sér mjög vel,“
segir Dagur Kári.
Skarpari skil
Dagur Kári hefur áður leikstýrt
sjónvarpsþáttum, leikstýrði þremur
þáttum af sex í Norskov, danskri
þáttaröð, en Utmark er fyrsta serían
sem hann leikstýrir í heild. Hann er
spurður að því hvernig þetta verk-
efni hafi verið fyrir hann, að leik-
stýra fyrir HBO Nordic eftir hand-
riti Danans Kim Fupz Åkeson. Var
það léttir í samanburði við kvik-
myndirnar?
„Já, að mörgu leyti. Þegar maður
leikstýrir kvikmyndum sem maður
hefur skrifað sjálfur er þetta
kannski saga sem hefur verið að
gerjast innra með manni í sex, tíu ár
og svo er allt í einu komið að því að
gera þetta og þá hefur maður ein-
hverja 30 daga til að skjóta eitthvað
sem maður hefur verið að hugsa um
lengi. Þannig að jú, að því leyti er
þetta meiri léttleiki og skarpari skil
milli handritshöfundarins og leik-
stjórans og maður undirgengst þess-
ar spilareglur. Það er ákveðinn tími
og þetta handrit og maður gerir sitt
allra besta.
Að umfangi er þetta eins og að
gera fjórar kvikmyndir í beit þannig
að þetta var líka hressandi upp á að
sjá hvar þolmörk manns liggja, svo-
lítið eins og að hlaupa maraþon.
Þegar maður vinnur svona lengi með
góðu tökuliði er á ákveðnum tíma-
punkti eins og maður sé búinn að
búa til ákveðna vél og geti haldið
áfram endalaust. Sem leikstjóri
kvikmynda er ég kannski í tökum
fjórða eða fimmta hvert ár,“ svarar
Dagur Kári.
Tökur á þáttunum stóðu yfir í
hundrað daga og segir Dagur Kári
undirbúning hafa farið fram á undan
því og álíka langur tími í klippingu
og eftirvinnslu. Að öllu samanlögðu
hafi þetta verið um tvö ár. Það er
ansi langur tími og Dagur Kári seg-
ist hafa verið feginn að geta farið að
hugsa um eitthvað annað eftir að
hans hlutverki lauk.
Bændur í illdeilum
–Um hvað eru þessir þættir?
„Þeir eiga að gerast einhvers stað-
ar úti í rassgati í Norður-Noregi og
aðalsagan er um tvo bændur, annars
vegar norskan sauðfjárbónda og
hins vegar hreindýrabónda af sam-
ískum uppruna. Þeir eiga í illdeilum
sem vinda upp á sig og smitast út í
allt samfélagið þannig að við kynn-
umst t.d. sýslumanninum og prest-
inum og svo er þarna aðkomukona
sem er nýi kennarinn,“ svarar Dag-
ur Kári. Þræðirnir séu nokkrir í sög-
unni og fylgst með örlögum nokk-
urra persóna. „Hryggjarstykkið eru
þessar deilur bændanna.“
–Er þetta blanda af gríni og
dramatík?
„Já, þetta er akkúrat það, svartur
húmor og mikill húmor í þessu en
líka dramatískur undirtónn.“
–Þú ert nú á heimavelli þar.
„Já, það er oft hent í mann hinu og
þessu og ég segi nú yfirleitt nei af
því ég sé ekki sjálfan mig í verkefn-
unum en þarna fannst mér eins og
ég væri kominn með svarta beltið í
akkúrat þessu, að blanda saman
húmor og trega. Mér fannst þetta
liggja mjög vel við því sem ég hef
sérhæft mig í sem leikstjóri og hand-
ritið er frábært þannig að ég ákvað
að taka þarna tvö ár út úr mínu per-
sónulega dagatali til að koma þessu í
hús,“ segir Dagur Kári.
Jákvæð áhrif á bransann
Dagur Kári var vel á veg kominn
við að þróa kvikmynd í Danmörku
þegar honum bauðst að leikstýra Ut-
mark. Var það verkefni sett á ís á
meðan, kvikmyndin Sjalú með Dan-
icu Curcic og Mikkel Boe Følsgård í
aðalhlutverkum. Dagur Kári skrifar
handrit myndarinnar og leikstýrir
og segist vonast til þess að geta hafið
tökur snemma á næsta ári. „Í milli-
tíðinni bendir allt til þess að ég muni
leikstýra tveimur þáttum í danskri
seríu í haust,“ segir hann.
Dagur Kári er spurður að því
hvort ekki sé ákveðið öryggi fólgið í
því að geta leikstýrt sjónvarpsþátt-
um milli kvikmyndaverkefna. „Jú,
þetta eiginlega gjörbreytir starfs-
umhverfi manns því þó vel gangi líða
yfirleitt alltaf þrjú, fjögur ár á milli
kvikmynda og það koma tímabil þar
sem maður er tekjulaus á meðan
maður er að bíða eftir að næsta
mynd fari í gang. En með þessari
sprengingu í sjónvarpsþáttagerð
getur maður einmitt stokkið til og
leikstýrt nokkrum þáttum og haldið
sér líka gangandi og í þjálfun. Þetta
hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á
bransann.“
Meistaraverk eða amatör-revía
Gagnrýni á Utmark hefur að lang-
mestu leyti verið jákvæð en nokkrir
neikvæðir dómar hafa þó birst sem
Dagur Kári segist alveg hafa átt von
á því þættirnir séu ekki „politically
correct“. „Besta fyrirsögnin var
„Meistaraverk“ og sú versta „Eins
og langdregin amatör-revía“ þannig
að það er nú bara spennandi. Það
eru pínu öfgar í báðar áttir sem ger-
ir þetta bara meira spennandi, held
ég,“ segir Dagur Kári og virðist ekki
taka gagnrýni nærri sér. Hann
bendir á að gagnrýni sé alltaf á end-
anum álit einhvers og til lítils að
velta sér upp úr því.
Morgunblaðið/Eggert
Maraþon Dagur Kári líkir því við maraþonhlaup að leikstýra átta sjónvarpsþáttum líkt og hann gerði fyrir Utmark.
Dramedía Úr einum þátta Utmark sem Dagur Kári segir blöndu af gamni
og dramatík. Hér má sjá leikkonuna Marie Blokhus í hlutverki Siri.
Hressandi að sjá hvar þolmörkin liggja
- Dagur Kári Pétursson leikstýrði norskum þáttum fyrir HBO Nordic - Eins og að gera fjórar kvik-
myndir í beit, segir hann um verkefnið sem tók í heildina tvö ár - Sjalú nefnist næsta kvikmynd hans
Enski leikarinn Timothy Spall mun
halda málverkasýningu í galleríi í
London í júní en hann hefur leikið
tvo merka listmálara í kvikmynd-
um, þá JMW Turner og LS Lowry.
Galleríið sem um ræðir er Pontone
Gallery og segist eigandi þess,
Domenic Pontone, hafa beðið Spall
um að halda sýningu eftir að hafa
séð aðra á verkum hans í Lowry-
galleríinu í Salford árið 2019. Til-
efni þeirrar sýningar var kvik-
myndin Mrs. Lowry & Son þar sem
Spall lék fyrrnefndan Lowry. Spall
hefur nú málað 20 verk sem sýnd
verða í júní og nefnist sýningin
Timothy Spall, Out of the Storm.
Verður það þriðja málverkasýning
Spall en fyrsta einkasýningin.
Spall fékk mikinn áhuga á leiklist
og myndlist á táningsaldri og var
hann tíður gestur Tate-listasafnsins
í Lundúnum. Á endanum valdi hann
leiklistina en eftir að hafa leikið
Turner í kvikmynd Mike Leigh um
málarann sneri hann sér aftur að
myndlist. Hlaut hann mikla þjálfun
í listmálun fyrir hlutverkið sem
virðist hafa endurvakið í honum
myndlistarmanninn.
Spall heldur einka-
sýningu í London
Málari Spall í hlutverki JMW Turner.Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL