Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Blaðsíða 2
Hvernig kemur þú að þessum
tónleikum?
Þetta var lítil hugmynd sem fæddist um
2010. Þegar Harpa var opnuð fannst mér
tilvalið að heiðra minningu Oddgeirs
Kristjánssonar og þá skelltum við í
tónleika í Hörpu. Oddgeir hefur verið
valinn Vestmannaeyingur aldarinnar
og á lög eins og Ég veit þú kemur og
Ágústnótt. Eftir fyrstu tónleikana vorum við
hjónin hvött til að halda þessu áfram, sem við gerðum
og eftir það hafa verið tónleikar í janúar ár hvert í
Hörpu. Í ár var þeim frestað fram í maí.
Verður þeim einungis streymt?
Nei, það mega vera 200 manns í salnum og við ætlum
að nýta okkur það. En svo verður tónleikunum
streymt hjá Sjónvarpi Símans og Vodafone og eins
verða þeir í netstreymi.
Hvaða tónlistarmenn koma fram?
Við erum með landslið listamanna; Jón Jónsson, Friðrik
Dór, Ingó veðurguð, Matta Matt, Siggu Beinteins og
Katrínu Halldóru. Svo erum við með einn ungan tenór frá
Vestmannaeyjum, Alexander Jarl. Svo er heljarinnar band
undir stjórn Jóns Ólafssonar.
Verða þetta allt Eyjalög?
Nei, við förum líka aðeins út fyrir Eyjar. Í ár vildum við hafa
þetta í bland, en tónleikarnir verða með sumarlegu ívafi. Þarna
koma fram margir af vinsælustu söngvurum landsins sem
eiga mörg af vinsælustu lögum landsins undanfarin ár og
það er ekki ólíklegt að sum þeirra heyrist á tónleikunum.
Verða þetta brjálaðir sumarstuðtónleikar?
Já, ég get lofað því. Fólk á eftir að hrífast með því þetta eru
lög sem allir þekkja. Þetta verður alveg geggjað.
BJARNI ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021
VERIÐ
VELKOMIN Í
SJÓNMÆLINGU
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
M
iðflokkurinn ljær máls á EB-aðild.“ Ég hleypti óhjákvæmilega
brúnum þegar ég rakst óvænt á þessa fyrirsögn á forsíðu Mogg-
ans míns í vikunni. Að vísu var tölublaðið ekki flunkunýtt, heldur
þrjátíu ára gamalt, frá 30. apríl 1991. En samt, málið hlaut að vekja forvitni
manns og ekki hjá því komist að lesa fréttina alla leið á enda.
Eins og við munum þá voru aðeins erlendar fréttir á forsíðu Morgunblaðs-
ins fyrir þrjátíu árum, þannig að ekki var verið að tala um íslenska Miðflokk-
inn enda allmörg ár í að hann yrði stofnaður og Sigmundur Davíð rétt að
ljúka gagnfræðaprófi, bregðist
minnið mér ekki. Ef EB ruglar ykk-
ur eitthvað í ríminu þá hét Evrópu-
sambandið Evrópubandalagið upp á
hið ástkæra ylhýra á þessum tíma
sem skýrir skammstöfunina, EB.
Hvers vegna Evrópusambandið er
skammstafað ESB en ekki ES er
aftur á móti hulin ráðgáta; það er
eins og að KSÍ væri skammstafað
KSBÍ. Sem er miklu kauðalegra og
slappara á alla kanta.
En jæja, þetta var sumsé finnski
systurflokkur þeirra Sigmundunga,
sem Esko gamli Aho fór fyrir á þess-
um tíma, sem daðraði þarna við Evr-
ópubandalagið, aðeins tveimur dögum eftir að flokkurinn settist í ríkisstjórn
og Aho í stól forsætisráðherra. Í fréttinni stóð: „Miðflokkurinn, sem nýtur
einkum stuðnings í dreifbýlinu, hefur til þessa hafnað algjörlega frekari þátt-
töku Finna í samstarfi Vestur-Evrópuríkja. Í ályktun flokksins frá því á
sunnudag, […] segir hins vegar að Finnar þurfi að velta fyrir sér kostum og
göllum hugsanlegrar aðildar að EB. Þó beri fyrst að ljúka samninga-
viðræðum EB og Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) um evrópskt efna-
hagssvæði.“
Ég veit fátt skemmtilegra en að blaða í gömlum dagblöðum og nota öll
tækifæri til að henda mér í slíkt tímaferðalag, hvort sem við liggja vinnu-
rannsóknir eða bara hrein og tær dægrastytting. Og aldrei þarf að leita lengi
áður en maður kemur niður á eitthvað hnýsilegt, eins og þessar EB-gælur
Miðflokksins. Eins og við munum þá náðu þær gælur alla leið og Esko Aho
leiddi Finnland inn í bandalagið árið 1995. Ég get hins vegar alveg lofað ykk-
ur því að starfsbróðir hans hér á Klakanum mun aldrei fara sömu leið og lík-
urnar á því að við munum sjá fyrirsögnina „Miðflokkurinn ljær máls á ESB-
aðild“ á forsíðu Morgunblaðsins eru engar. Nákvæmlega engar.
Tja, nema þá að erlendar fréttir verði teknar þar upp að nýju.
Miðflokkurinn ljær
máls á EB-aðild
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Ég veit fátt skemmti-
legra en að blaða í
gömlum dagblöðum og
nota öll tækifæri til að
henda mér í slíkt tíma-
ferðalag.
Thelma Mogensen
Já, mjög oft en ég fer bara í heita
pottinn.
SPURNING
DAGSINS
Ferðu í
sund?
Lárus Jóhannesson
Já, ég fer reglulega í sund; það er
hluti af því að vera Íslendingur.
Viktoría Elsa Snævarsdóttir
Já, ég syndi yfirleitt í svona tutt-
ugu mínútur ef sundgleraugun
eru með í för.
Benedikt Reynisson
Já. Ég syndi, fer í gufu, kalda pott-
inn og geri teygjuæfingar. Oftast í
Vesturbæjarlauginni.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Eyjatónleikar verða
laugardaginn 15. maí í
Silfurbergi. Miðar í
streymi fást á harpa.is og
tix.is en ekki fást miðar á
viðburðinn sjálfan. Bjarni
Ólafur, er markaðs-
maður á K100 og Eyja-
maður í húð og hár.
Morgunblaðið/Eggert
Geggjað stuð
í streymi