Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 8
VIÐTAL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021
Þ
að sópar að Áslaugu Örnu Sig-
urbjörnsdóttur þar sem hún
kemur til fundar við blaðamann
á kaffihúsi, kankvíst bros og
blik í auga veit á gott, hún er
gamansöm og hláturinn smitandi, en um
leið og talið berst að vinnunni skiptir hún
um gír og alvaran tekur við. Ráðherrann
stendur á þrítugu, fulltrúi nýrrar kynslóðar
í stjórnmálum, en hefur samt verið áber-
andi í pólitík undanfarin tíu ár. Hún tók að
sér erfiðan málaflokk og hefur komist
klakklaust í gegnum hann en vill taka að
sér enn eindregnara forystuhlutverk í kom-
andi þingkosningum.
Þú hefur verið í dómsmálaráðuneytinu í
hartnær tvö ár, sem ekki er létt ráðuneyti,
komst þar nokkuð bratt inn, varstu ekkert
smeyk við þá ljónagryfju?
„Nei, ég sóttist eftir því að fara þangað
inn, fannst það eðlilegt skref fyrir mig. Ég
sækist eftir stórum verkefnum til þess að
geta haft áhrif. Það var kannski helst amma
mín sem ekki var spennt fyrir þessu ráðu-
neyti, vissi að það gæti verið strembið. En í
dómsmálaráðuneytinu eru gríðarlega mörg
skemmtileg tækifæri til þess að bæta og
einfalda líf fólks og koma hugsjónum sínum
í farveg og framkvæmd. Mörgum fannst ég
setja markið fullhátt, en ég ákvað að koma
hlaupandi inn í ráðuneytið og sýna að mér
væri vel treystandi fyrir þessum mikilvæga
málaflokki.“
Heldurðu að það skipti máli að dóms-
málaráðherra sé lögfræðingur?
„Ég get ekki talað fyrir aðra, en mennt-
unin hefur í það minnsta nýst mér mjög
vel.“
Hvaða mál voru brýnust eða stóðu hjarta
þínu næst?
„Ja, sumt seturðu sjálfur á dagskrá, en
maður verður líka að kunna að bregðast við
aðstæðum sem upp geta komið. Þegar ég
kem inn í ráðuneytið er mikill ófriður innan
lögreglunnar og það var fyrsta verkefnið
sem varð að leysa. Það þurfti að koma á ró,
vinnufriði og auknu samstarfi innan lögregl-
unnar. Það hefur tekist.
Því var fylgt eftir með ýmsum nauðsyn-
legum úrbótum, við settum skipulagða
glæpastarfsemi í forgang, efldum eftirlit
með lögreglu, komum á fót lögregluráði og
höfum aukið alla samvinnu, sem skiptir
miklu máli þegar við erum að takast á við
fjölbreyttari brot en áður.
Þar fyrir utan var alveg tímabært að ráð-
ast í ýmsar bætur á þeim þáttum sem snúa
að venjulegu fólki. Finna nýjar lausnir sem
einfalda og bæta líf fólks og reynslu þess af
kerfinu. Við megum ekki gleyma því fyrir
hverja við erum að vinna, fyrir hverja kerf-
in eru. Við eigum ekki að láta fólk aðlagast
kerfinu heldur sníða kerfið að fólkinu.“
Litlu frelsismálin eru stórmál
Þar er nægt rými til úrbóta?
„Jú og þar eru líka tækifæri til þess að
fara betur með almannafé og forgangsraða
verkefnum. Þetta eru málaflokkar sem oft
snerta fólk með beinum hætti. Við eigum að
tryggja réttlátt samfélag og það gerum við
ekki án þess að fólk geti leitað réttar síns
og upplifað öryggi í samfélaginu. Svo vildi
ég einnig leggja áherslu á að auka frelsi
fólks og standa við það sem ég hef sagt um
frelsismálin.“
Hvernig þá?
„Það eru ýmis tækifæri til þess í mínu
ráðuneyti, eins og t.d. áfengislöggjöfinni,
sem enginn hefur snert í fjölda ára. Mörg-
um þykir það óþarflegt smámál, en við
megum ekki falla í þá gryfju að kalla frels-
ismálin litlu málin. Þau snúast um frelsi
manna og þess vegna skipta þau miklu máli,
þótt hvert og eitt þeirra kunni að virðast
smátt. Þessir litlu slagir um frjálst útvarp
og bjórbannið skiptu verulegu máli þegar
allt kom til alls. Við þurfum að taka þá
áfram og þegar maður kemst í stöðu til
þess að breyta þeim þá gerir maður það.
Maður getur nefnilega sinnt bæði stórum
málum og litlum. Þótt maður setji mál á
dagskrá er það ekki endilega forgangsmál
eða þannig að önnur mál víki fyrir þeim.“
Þú nefndir skipulagða glæpastarfsemi.
Áhyggjur af þeim málum hafa aukist mjög
upp á síðkastið, en erum við í stakk búin til
þess að takast á við þau?
„Við höfum gripið til umfangsmikilla að-
gerða á síðustu misserum til þess að geta
fengist við þennan nýja veruleika. Lög-
reglan er að mörgu leyti vel í stakk búin til
þess, en það þarf að gera betur og það er á
dagskránni.
Þessi skipulagða glæpastarfsemi er öðru-
vísi en önnur brot, þau eru ekki einskorðuð
við umdæmi eða landamæri, snerta fleiri
brotaflokka, brot eru tengd og brotamenn
sömuleiðis. Þess vegna þarf að vinna mál
þvert á embætti og þvert á deildir, í sam-
starfi við alþjóðleg lögregluyfirvöld. Þar
hefur alþjóðasamfélagið áttað sig á því að
þar næst mestur árangur með aðgerðum
gegn peningaþvætti.“
Já, það kann að vera árangursríkt, en er
það alltaf til góða? Nú sér maður að
ákærum um peningaþvætti er hent inn í alls
kyns mál sem fæst fólk myndi telja raun-
verulegt peningaþvætti.
„Auðvitað verðum við að fara varlega í
sakirnar og það á líka við um heimildir lög-
reglunnar. Það er samt sem áður þannig að
skipuleg brotastarfsemi er oft á tíðum und-
irliggjandi í löglegri starfsemi, sem þá er
skálkaskjól til þess að sinna glæpastarf-
semi. En auðvitað má aldrei grípa til svona
úrræða bara af því að það er þægilegt.
Auknar heimildir eru veittar til þess að
sinna tilteknum verkefnum og gæta að ör-
yggi landsins gagnvart bæði skipulagðri
glæpastarfsemi og hryðjuverkahættu.“
Útlendingamálin hafa oft reynst dóms-
málaráðherrum afar erfið, þó að þú hafir
raunar ekki ratað í mikil vandræði í þeim.
Hvar stöndum við?
„Við stöndum vel. Við erum að gera vel.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Ég vil vinna“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sækist eftir að leiða lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í komandi þingkosn-
ingum. Morgunblaðið ræddi við hana um hvaðan hún er að koma, en kannski ekki síður hvert hún ætlar.
Andrés Magnússon andres@mbl.is
’
Við megum ekki falla í þá
gryfju að kalla frelsismálin
litlu málin. Þau snúast um frelsi
manna og þess vegna skipta þau
miklu máli.
5