Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021 DÝRALÍF Þ að var sólríkur dagur í Biskupstungum þegar blaða- maður barði að dyrum hjá hjónunum á Helgastöðum. Ólafur Gunnarsson og Ólöf Kristjánsdóttir eru nýir eigendur hins óttalausa og uppátækjasama Gullbrands, en áður bjó hann í Mýrunum í Garðabæ hjá blaðamanni, sem er engan veginn hlutlaus þegar kemur að því að fjalla um köttinn. Gullbrandur fæddist fyrir sex ár- um í Biskupstungum, ekki þó á Helgastöðum, og má því segja að hann sé kominn aftur heim í sveitina sína. Hann var þó fljótt gefinn og bjó þá á Kjalarnesi þar sem hann var hafður í hesthúsi og sinnti þar starfi sínu sem músabani. Rúmlega tveggja ára fluttu eigendur hans annað og máttu ekki hafa kött á nýja staðnum. Þá voru góð ráð dýr. Undirrituð tók því að sér þennan gulbröndótta fress sem þekkti ekki rólegt heimilislíf en vandist því fljót- lega og varð prýðilegur köttur, með nokkrum undantekningum þó. Hann átti það nefnilega til að klóra og bíta, fara inn um glugga hjá nágrönnum og valda þar óskunda. Þar var hann óttalegur óþekktarangi; valsaði um borð og stökk hátt upp á hillur og sýndi klærnar ef reynt var að tjónka við hann. Eftir nokkurt þref við ná- granna, og margar færslur á Face- book-síðu Garðabæjar þar sem Gull- brandur brosti saklaus framan í vélina, var tekin sú ákvörðun að finna honum nýtt heimili uppi í sveit. Þar gæti hann hlaupið um túnin, veitt mýs, vingast við hunda og hesta og vonandi hætt að bíta og klóra. Eins og óþekku börnin í gamla daga var sem sagt Gullbrandur sendur í sveit. Finnst hestalyktin best Óli og Ólöf hafa nú átt Gullbrand í þrjá mánuði og segja hann afar skemmtilegan kött. „Við könnumst bara ekkert við þessa óþekkt. Hann bítur aldrei né klórar,“ segir Óli. „Það kom fljótt í ljós að hann elsk- ar hesta. Ég sá það strax þegar hrossin voru hér heima við að hann var alveg óhræddur að ganga undir þau. Svo kom það seinna að hann fór að sýna þeim ástúð,“ segir Óli. „Það sem er svo skemmtilegt við Gullbrand er að hann kemur alltaf með hvert sem við förum. Þegar ég fór hér út á tún á gönguskíði þá elti hann mig hring eftir hring,“ segir Ólöf. „Í gær hitti ég bóndann hér við hliðina á og við spjölluðum þar sem við sátum og hölluðum okkur upp við rúllur. Þá kom hann upp á rúllurnar og fór strax að nudda sér upp við bóndann. Hann vill alltaf vera með,“ segir Óli. „Ég ætlaði ekki að leyfa honum að sofa uppi í neinum rúmum hér, og alls ekki í mínu rúmi. En nú sefur hann alltaf ofan á sænginni hjá syni okkar Gabríel. Og ég horfi bara framhjá því,“ segir Ólöf og hlær. Gullbrandur hefur tekið ást- fóstri við hestinn Jarp og veit fátt betra en að nudda sér upp við hann eða fara á bak. Óli á Helgastöðum fylgist með. Gullbrandur hefur lifað tímana tvenna, já eða þrenna, því hann hefur verið hesthúsaköttur, eðalprins í Garðabænum og loks sveitaköttur sem stjórnar bæði fólki og dýrum. Gullbrandur veit fátt skemmtilegra en að knúsa hestana, nú eða skella sér á bak. Texti og myndir Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Kötturinn sem elskar hesta 5

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.