Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021 LESBÓK HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600 Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin. Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi. Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi. Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn. NÝ TÆKNI! NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI EPLI Söngkonan Electra Mustaine er hægt og bítandi að hasla sér völl á eigin forsendum en fram að þessu hefur hún verið þekktust fyrir að vera dóttir málmgoðsins Daves Mustaines í Megadeth. Á dögunum sendi hin 23 ára Electra frá sér lagið Evergreen sem þykir vera nútímalegt popp í anda Miley Cyrus og Gwen Stefani og liggja óralangt frá þrassinu sem faðir hennar er kunnur fyrir. „Ég er með tónlistina í blóðinu en nálgast hana bara á annan hátt en faðir minn,“ segir Electra en von er á fyrstu breiðskífu hennar á næsta ári. „Evergreen byggist á reynslu minni í tónlistinni og lífinu; ég hef gjarnan farið á svig við væntingar fólks. Það blundar uppreisnarseggur í okkur öllum og ég vildi gera öðruvísi tónlist en faðir minn sem þó er mér eðlislæg.“ Úr pabbaskjóli í poppið Electra Mus- taine ætlar sér stóra hluti. AFP FRÆGÐ Skoski leikarinn Ewan McGregor fer með titilhlutverkið í nýrri smáseríu á Net- flix, Halston, sem kemur inn á efnisveituna 14. þessa mánaðar. Þar eru til umfjöllunar ævi og störf bandaríska tískuhönnuðarins Roy Halston Frowick, sem alla jafna var kall- aður Halston, en hann var á hvers manns vörum á áttunda áratugnum enda hannaði hann fötin á ekki ófrægari konur en Jackie Kennedy og Lizu Minelli. Fall hans var líka bratt; það kreppti að í rekstrinum, eiturlyfja var neytt í óhóflegu magni og loks veiktist Halston af alnæmi og lést árið 1990, aðeins 57 ára að aldri. Leikstjóri er Daniel Minahan. Smásería um hönnuðinn Halston Ewan McGregor leikur hönnuðinn Halston. AFP Umslag Still Wish You Were Here. Bara þú værir hér enn, lagsi ÓÐUR Wish You Were Here með Pink Floyd er með frægari plötum rokksögunnar en hún kom út árið 1975 og var óður til gamals félaga, Syds Barretts, sem vikið var úr bandinu sjö árum áður vegna and- legra veikinda og ótæpilegrar notk- unar á ofskynjunarlyfjum. Nú hef- ur hópur tónlistarmanna komið saman og endurgert plötuna undir titlinum Still Wish You Were Here og er hún væntanleg í allar betri plötubúðir 28. þessa mánaðar. Með- al þeirra sem koma fram á plötunni eru Ian Paice, Joe Satriani, Rick Wakeman, Geoff Tate, David Ell- efson, James LaBrie, Steve Stevens og Carmine Appice. Ég sigldi of lengi fyrir eiginseglum, vegna þess að égvarð hamingjusöm. Og ég er þessi dæmigerði fíkill sem telur sér trú um að fyrst ég er hamingjusöm þá sé allt í himnalagi og ég geti fyrir vikið gert það sem mér sýnist. Allt sem þurfti var athugasemd frá einni manneskju og ég var fallin.“ Þetta segir söngkonan og sjón- varpsstjarnan Kelly Osbourne í hlaðvarpsþættinum Knockin’ Doorz Down vestur í Bandaríkjunum en rof kom í edrúmennsku hennar, sem staðið hafði frá árinu 2017, fyrir skömmu. „Ég var undir miklu álagi,“ held- ur hún áfram, „eins og við öll undan- farið ár. Faraldurinn hefur leikið marga sem eru á snúrunni grátt vegna þess að við þurfum á fé- lagsskap hvert annars að halda, fundunum okkar, prógramminu og rútínunni. Sem hendi væri veifað var þetta hrifsað af okkur. Og mað- ur stendur stjarfur eftir og spyr sig: Hvernig byrja ég upp á nýtt? Þann- ig verður maður að dæmigerðu fórnarlambi sem byrjar að leita að afsökunum. Sjálf fann ég mína af- sökun og færði mér hana í nyt.“ Heimurinn kynntist Kelly Osbo- urne, sem er 36 ára gömul, fyrst í raunveruleikasjónvarpsþáttunum The Osbournes frá 2002 til 2005, þar sem foreldrar hennar, Ozzy og „Þú ert ógeðsleg!“ Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur reynt á okkur öll, þar á meðal söngkonuna og sjónvarps- stjörnuna Kelly Osbourne, sem rann á svellinu í edrúmennsku sinni en stóð jafnharðan upp aftur. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Osbourne-fjölskyldan eins og við munum eftir henni úr sjónvarpsþáttunum frægu á sinni tíð, Ozzy, Kelly, Jack og Sharon. Myndin er tekin árið 2003. Reuters Ozzy Osbourne, faðir Kelly, er goðsögn í málmheimum og fleiri heimum. Kappinn er orðinn 72 ára gamall en hvergi af baki dottinn þrátt fyrir veikindi sín og slys sem hann varð fyrir á heimili sínu árið 2019 og vinnur nú að nýrri sólóplötu. „Ég er kominn með fimmtán lög,“ tjáði hann málmgagninu Metal Hammer á dögunum. „Þetta hefur haldið í mér lífi, skilurðu? Síðustu tvö árin hafa verið stremb- in, fyrst slysið og svo heimsfaraldurinn. Þetta hefur hjálpað mér að halda sönsum. Ég þurfti á tónlistinni að halda.“ Platan hefur enn ekki hlotið nafn en Ozzy rær nú öllum árum að því að klára hana. Hann segir hana um margt líka síðustu plötu, Ordinary Man, sem kom út snemma á síðasta ári en heyrn sé þó sannarlega sögu ríkari. Meðal gesta á plötunni verða trymbl- arnir Chad Smith úr Red Hot Chili Pep- pers og Taylor Hawkins úr Foo Fighters og Rob Trujillo bassaleikari Metallica. Guð sé Ozz næstur Ozzy og Kelly á góðri stundu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.