Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021 M örgum var létt þegar vopna- hlé var tilkynnt á blettinum litla fyrir botni Miðjarð- arhafs sem skók heims- byggðina í tvær vikur eða svo. Mátti ekki byrja á vopnahléi? Vopnahlé hefur þann kost að áhugamenn nær og fjær standa allir með því. Ekki verður séð hvað Hamas- hreyfingin, sem víða er flokkuð sem hryðjuverka- starfsemi, hefur haft upp úr krafsi sínu að þessu sinni. Aðeins ein skynsamleg skýring hefur fengist á því að Hamas tók að senda úr sínu mikla þéttbýli eld- sprengjuflaugar í þúsundatali. Hún er sú að þær send- ingar væru hluti af margboðuðum hefndaraðgerðum klekastjórnarinnar í Tehran. Andlegur leiðtogi henn- ar, Ali Khamanei erkiklerkur, tilkynnti þær þegar helsti sérfræðingur hans í framleiðslu kjarnorkuvopna var veginn í fyrirsát og eins þegar öflug netárás hafði verið gerð á stjórnstöðvar slíkra verkefna. Mossad var kennt um verkið og hefur því hvorki verið játað né neitað. Aðgerðirnar eru taldar geta seinkað laumuspili Íransstjórnar við að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Eftir að valdataka Joes Bidens varð ljós voru þetta bersýnilega talin óhjákvæmileg viðbrögð. Framan- greind áföll bættust við hið stærsta þeirra þegar Trump forseti heimilaði að hershöfðinginn Quasem Soleimani yrði felldur þegar óvænt færi gafst á honum í bílalest nærri Bagdad-flugvelli í Írak. Hershöfðing- inn var þjóðhetja í Íran og stóð mjög nærri æðsta klerkinum og helstu leyniþjónustur vestrænna ríkja töldu sig vita að hann hefði skipulagt eða átt síðasta orðið um margvísleg hermdar- og hryðjuverk sem gerð voru af leppum Íransstjórnar eða útsendurum hennar. Biden veldur engum ótta Vafalítið er talið að Íransstjórn taldi víst að ísraelska leyniþjónustan Mossad hefði verið á bak við tvö og jafnvel öll þrjú fyrrnefnd áföll þeirra. Leiðtogi Írans hefur hvað eftir annað og ítrekað hótað því að þessara atburða yrði „grimmilega hefnt“. Það liggur í augum uppi að ákvörðun um stórfelldar eldsprengjuárásir á Ísrael er ekki tekin á Gaza heldur í Tehran. Reyndar var beðið með að hefja þær þar til Biden Bandaríkjaforseti hefði látið fella niður bann Trumps við fjárstuðningi við Palestínumenn og Hamas- sveitirnar á Gaza, nema látið yrði af hryðjuverka- starfsemi þeirra. Þvert á allar spár einkenndi tiltölulega lág spenna samskipti Ísraels og Palestínumanna á valdatíma Trumps. Spár „sérfræðinga og fræðimanna“ um að ákvörðun forsetans um að flytja sendiráð Bandaríkj- anna frá Tel Aviv til Jerúsalem myndi setja allt í upp- nám á svæðinu gengu ekki eftir. Þvert á móti náðust í framhaldinu allvíðtækar sáttargjörðir á milli Ísraels- stjórnar og allmargra ríkja Araba. En þegar millj- ónatugirnir, í dollurum talið, frá Biden voru komnir í fjárhirslur Abbasar forseta og að nokkru, því miður, einnig til vígamanna Hamas, þótti yfirboðurum þeirra í Tehran óþarft að bíða lengur. Upp væri runnin ögur- stundin. Gazalegir málaliðar En þótt skilja megi létti þeirra sem bera mestan þunga af þessum árásum og átökum eftir vopnahléið þá er ekkert sem bendir til þess að aðilarnir séu nokkru nær varðandi framtíðarskipan sinna mála. Ekkert bendir til að viðurkenndir opinberir talsmenn Palestínumanna hafi komið nálægt upphafi þessara árása frá Gaza eða vopnahléinu núna, sem bjartsýn- ustu menn vonast auðvitað til að muni halda í einhver misseri eða ár. Reyndar hafði Abbas, leiðtogi Palestínumanna á Vesturbakkanum, og sá sem helst nýtur viðurkenn- ingar sem slíkur, viðrað hugmyndir sínar um að standa fyrir kosningum á Vesturbakkanum og eftir at- vikum á Gaza á ný eftir 15 ára langt hlé. Sagðist hann stefna á slíkt á vor- eða sumarmánuðum þessa árs. Hann féll þó frá meintum fyrirætlunum og kenndi þá Ísrael um að honum væri ekki auðið að framkvæma þær. En þótt slíkar ásakanir séu hefðbundnar og ætíð innan seilingar er staðreyndin sú að Hamas-liðar gera núorðið lítið sem ekkert með það sem hinn 85 ára gamli forseti Palestínu hefur fram að færa. Þeirra hernaðarlegu fyrirmæli koma ekki frá Ramallah heldur frá Íran, sem og fjárstuðningur og vopnabúnaður í stórum stíl. Samningamenn al Sisi, forseta Egyptalands, lögðu nótt við dag til að knýja á um vopnahlé, enda er hann í hópi fárra sem báðir aðilar treysta sæmilega og gekk milliganga hans loks eftir. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, reyndi iðulega á sinni tíð að ganga á milli stríðandi fylkinga, sem var þó mikið hættuspil. Það sannaðist á fyrirrennara hans, Anwar Sadat, sem var óvenjulega hugrakkur stjórnmálamaður og galt loks fyrir það með lífi sínu. Barack Obama hallaði sér hins vegar óvænt að Múhammed Morsi og Bræðralagi múslíma og skildi Mubarak eftir í uppnámi, sem var með ólíkindum óskynsamleg merkjasending Bandaríkjaforseta til umheimsins þá. Skítugar vorhreingerningar Í kjölfar alls þessa komu svo vorhreingerningar for- setans með nokkrum (litlum) leiðtogum Evrópu sem þjóðirnar, sem fengu hreingerningu, eru enn að súpa seyðið af. Tugir milljóna létu lífið og Evrópa situr enn uppi með flóttamannabylgjur sem skullu á álfunni í kjölfarið. Táknrænt fyrir þær ógöngur er að Evrópu- sambandið er enn að greiða yfirgengilegar fúlgur ár- lega til Tyrklands Erdogans fyrir að halda milljónum manna innan gaddavírsgirðinga hjá sér og glittir þar hvergi í lausn eða í framtíð fyrir blessað fólkið sem blekkt var til farar. Að auki hefur þetta heimaskítsmát ESB þýtt að for- setinn hefur heljartök á búrókrötunum þar og kansl- ara Þýskalands og forseta Frakklands. Hvenær sem fundið er hið minnsta að Erdogan hótar hann að lyfta upp gaddavírsgirðingunum sem halda „skjólstæð- ingum“ ESB innilokuðum, svo þeir fá sig hvergi hreyft. Og fer þá allur vindur úr móðguðum erindrek- um. Það var helst í stóra stólamálinu sem von der Leyen var um það bil að fara að ybba gogg, en mundi þá eftir gaddavírsgirðingunum og kyngdi. Verðbólgin veirulok? Nú er tekið að losna um heiminn í veirufári. Og þá er spurningin sú hvort hann sé viðbúinn því. Flest bendir því miður til að þeir sem „stjórna“ efna- hagsþróuninni austan hafs og vestan verði langt á eftir henni, eins og er hið þekkta afbrigði í hnattrænum efnahagsmálum. Óttinn snýr í augnablikinu helst að verðbólgunni, sem er búin að reima á sig skóna og komin í starthol- urnar. Ýmsir telja reyndar að hún sé þegar hlaupin. Því öfugt við hlaupara á stórmótum þá þarf hún ekki skot úr rásbyssu. Verðbólgan fer af stað þegar hennar tími er kominn. Og minnir í því efni mest á veiruna sjálfa. Þeir sem „stjórna efnahagsþróuninni“ eru í hlut- verki slökkviliðs. Ekkert slíkt kemur á staðinn áður en Grímur Thomsens eru loks á útleið ’ Það liggur í augum uppi að ákvörðun um stórfelldar eldsprengjuárásir á Ísrael er ekki tekin á Gaza heldur í Tehran. Reykjavíkurbréf21.05.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.