Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Side 12
Bræðurnir Bubbi og Beggi Morthens á tón- leikum með Egó á fyrri hluti níunda áratugarins. Morgunblaðið/Einar Falur E kki er laust við að það líði úr okkur Árna Sæberg ljósmyndara þegar við stígum inn úr hafnfirska vorinu í inn í andlegu lífstílsverslunina Kailash á Strandgötunni. Úti er ys og þys en inni algjör kyrrð og ró; angurvær tónlist og notaleg ilmur af framandi reykelsi. Það er eins og maður sé skyndilega staddur í miðjum Himalajafjöllum. Eigandinn, Beggi Morthens, heilsar okkur með virktum og hneigir sig. „Namaste.“ Værð er yfir gestgjaf- anum enda aðhyllist hann búddisma og al- menna ró andspænis lífsins gleði og raunum. Beggi býður okkur til betri stofu inn af verslunarrýminu, þar sem te og súkkulaði eru á borðum. Sjálfur er hann meira fyrir te en kaffi. „Lengi vel drakk ég alls ekki kaffi en er byrjaður aftur á því núna. Það er erfitt að losa sig alveg við gamla siði. Annars hefur um- hverfið líklega mest að segja. Á sjónum hefði manni verið hent fyrir borð hefði maður sést drekka te,“ segir hann brosandi. – Varstu lengi til sjós? „Nei, tvær eða þrjár vetrarvertíðir. Fyrst á Stebba Kristjáns frá Ólafsvík og síðan á Gugg- unni með Tolla bróður. Það var frambyggður lítill koppur og róið í öllum mögulegum og ómögulegum veðrum. Skipperinn hrópaði bara: Snorri er að fara! Og þá rerum við,“ seg- ir Beggi og dregur upp ískyggilega mynd af öldutoppum með hendinni. Snorri þessi var að sjálfsögðu Snorri Sturluson sem Bæjarútgerð Reykjavíkur gerði út. Einn stærsti togari flot- ans á þeim tíma. – Þú ert kominn býsna langt frá sjónum núna, ekki satt? „Já – og þó ekki. Er ég ekki bara á öðru skipi, Æðruleysinu? Við erum stöðugt í lífsins ólgusjó. Annars var það ekki alltaf pæling að gerast búddisti og opna verslun sem þessa; ég efast um að ég hafi vitað hver Búdda var þegar ég var á sjónum. En svona getur lífið leitt mann í ólíkar áttir.“ Umburðarlyndi grunnstoðin Beggi hafði um árabil haft áhuga á menningu Austurlanda áður en hann steig skrefið til fulls, fann sér gúrú og gerðist fullgildur búdd- isti fyrir rúmum áratug. Hann sýnir okkur formlegt skírteini, vottað af gúrúnum hans, Lama Yeshe. Sjálfur ber Beggi nafnið Karma Lamzang sem merkir „Excellent Path“ eða „Gæfuríkur vegur“. „Lama Yeshe spurði hvort ég væri ekki skírður til kristni. Ég svaraði því vonsvikinn játandi og hélt að þar með væri þessi draumur minn úti. Það var öðru nær. Það er engin hindrun að aðhyllast kristni enda er umburð- arlyndi grunnstoðin í búddismanum. Ég vil alls ekki tala kristnina niður en þetta umburð- arlyndi er ekki fyrir hendi þar frekar en í öðr- um trúarbrögðum. Búddismi er ekki trúar- brögð heldur lífsspeki og aðferðafræði um lífsins veg. Búddisminn er fyrst og fremst ferðalag með hinum og þessum vörðum á veg- inum. Maður er að sjá í fyrsta sinn.“ Árið 2010 fór Beggi í ferðalag til Himalaja- fjalla ásamt Tolla bróður sínum og tveimur öðrum félögum og kom meðal annars að hinu kunna vatni Manasarovar og Kailash-fjalli í Tíbet, sem verslunin heitir eftir, en búddistar líta á það sem miðju alheimsins. Fjallið er raunar heilagt í fernum trúarbrögðum: Búdd- isma, hindúisma, jaínisma og bon. Það hefur aldrei verið klifið enda stranglega bannað vegna heilagleika þess. Þess utan er fjallið afar bratt. „Einu sinni reyndu nokkrir Bretar að klífa Kailash og úr varð mikið fár,“ segir Beggi. Hann og félagar hans gengu svokallaða „kóru“, umhverfis Kailash-fjall, en samkvæmt búddismanum á það að tryggja mönnum betra líf en ella. Gangan tekur um þrjá daga. Þeir al- hörðustu skríða hringinn á maganum, með sérstökum búnaði. Það tekur að jafnaði ein- hverjar vikur. Svo syntu þeir félagar í Manas- arovar-vatni. „Það var hópur Indverja þarna á sama tíma þegar við rifum okkur úr og hentum okkur út í vatnið. Þeir ráku upp stór augu, þar sem þeir stóðu á bakkanum, kuldalegir í dún- úlpunum sínum. Það er allra veðra von á þess- um slóðum og getur orðið mjög kalt. Hitaskilin eru líka rosaleg; það gerist svo hratt. Sólin birtist og skyndilega er kominn steikjandi hiti.“ Ómað með skólakrökkum Búddisminn er leiðarstef Begga gegnum lífið og hann reynir eftir fremsta megni að lifa sam- kvæmt aðferðafræðinni sem hann hefur lært og tileinkað sér. Hann segir suma hafa hleypt brúnum þegar hann breytti um lífsstíl og eins þegar þau hjónin, Helga Guðlaug Einarsdóttir og hann, opnuðu verslunina. „Fólk horfir stundum undarlega á mig; ég get alveg við- Um borð í Æðruleysinu Beggi Morthens, kaupmaður í Kailash, fann fjölina sína í búddisma, hugleiðslu og nú- vitund fyrir allmörgum árum og segir okkur hin geta lært margt af þeirri aðferðafræði og nálgun. Sjálfur hefur hann þurft á henni að halda sem aldrei fyrr í veikindum sem hann hefur glímt við að und- anförnu. Beggi víkur einnig að litríkri barnæsku, sjó- mennsku og sjóvmennsku en tónlistin er og verður honum allar götur afar kær. Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Búddismi er ekki trúarbrögð heldur lífsspeki og aðferðafræði um lífsins veg. Búddisminn er fyrst og fremst ferðalag með hinum og þessum vörð- um á veginum. Maður er að sjá í fyrsta sinn,“ segir Beggi Morthens. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.