Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Page 17
frá Kína. Er það? Af öllum stöðum á hinu mikla landi þá er ekki um það deilt að smitið kom frá Wuhan. Er það? Og það ætti ekki heldur að vera umdeilt að í Wuhan er mesta rannsóknarstöð á kór- ónuveiru sem til er í heiminum. Er það? Þar hafa farið fram tilraunir við breytingar á ein- mitt þessari veiru til að kanna hvort hægt sé að gera hana hættulegri en hún væri ella. Trump forseti sagði opinberlega við almenning að það yrði að kanna rækilega hvort veiran hefði komið frá rannsóknarstofunni í Wuhan. Það var áður en ríkisbubbarnir á netrisunum ákváðu að loka á sam- skipti forsetans við almenning. Marxistinn, forstjóri WHO, hefur þóst vera að rannsaka þetta mál, og ekki komið auga á neitt grunsamlegt. Hann er reyndar rétt núna farinn að muldra því út úr sér að honum hafi ekki verið veittar nægjanlega góðar upplýsingar frá Kína og þess vegna fullyrt að veiran hefði borist af markaðstorgi! Joe Biden forseti var áður búinn að hafna því sem versta fáránleika að veiran væri „handgerð“ þótt hann trúi á það að veðrið í veröldinni sé handgert. Hin svonefnda „mainstream media“ hafði lýst því sem argasta rugli og „samsæriskenningum“ að nefna rannsóknarstof- una í Wuhan. Anthony Fauci, sérfræðingur Banda- ríkjaforseta til áratuga, hafði reyndar lengst af einn- ig verið á því rólinu. Nú hefur hann skyndilega snúið við blaðinu. Hann segir nú að alls ekki sé hægt að útiloka að veiran, sem lagði veröldina undir sig, hafi verið manngerð í tilraunaeldhúsinu í Wuhan. Allt í einu! Og allir í senn! Fauci vill láta rannsaka þetta. Biden felur leyniþjónustunum 17 að rannsaka þetta og þær hafi ekki nema þrjá mánuði til að skila niðurstöðu. Hvað hefur gerst? Væri það „samsæriskenning“ bréfritara, ef einn maður getur séð um samsæriskenningu, að telja lík- legt að þessi viðsnúningur sé ekki tilviljun? Af hverju snerist Biden í þennan hring? Var hann boð- inn í mat til Hunters? Datt hann í fjórða sinn á leið inn í flugvélina? Þetta tvennt hlýtur að vera ólíklegt. Og líka að Biden hefði fengið hugmyndina skyndi- lega sjálfur eftir að hafa afneitað henni í heilt ár. Hvenær fékk Joe Biden nýja hugmynd síðast? Er ekki líklegra að ein af þessum sautján leyndarstofn- unum sem hitta forsetann nokkrum sinnum í viku, og núna að minnsta kosti umsjónarmenn hans, telji betra fyrir forsetann að það sé hann sem feli leyni- þjónustum að rannsaka málið, þótt hann hafi verið sannfærður um annað lengi? Við vissum það ekki, en vitum það núna, að Tony (eins og Guðlaugur Þór kallar sjálfsagt Fauci eins og alla aðra sem hann hefur leikið sér með frá því að hann var barn) þekk- ir betur til þessarar rannsóknarstofu en flestir Bandaríkjamenn. Það er reyndar komið á daginn og verður ekki falið úr þessu að hann hefur látið moka í hana fé um langt árabil og hefur reyndar bandarísk- an millilið í því, sem óvart rak kollinn í dagsljósið, og er því kominn undir smásjána. Sá virtist sjá um tengslin við rannsóknarstöðina fyrir Fauci og stjórn- ar henni að nokkru frá New York, ef fyrstu nýju rannsóknarskrefin eru marktæk. Og það þarf ekki lengur leðurblöku á salatdiski á matarmarkaði til. Nú þegar hefur skyndilega verið upplýst að einn helsti vísindamaður veraldar, sem heldur um spott- ana í Wuhan, safnar leðurblökum og á meira af þeim en nokkur maður (er reyndar kona) annar. BBC reynir að gleypa ekki allt eins og jafnan BBC, sem hafði gleypt fram að þessu, að ekki væri snefill af viti í hugmyndum Trumps um manngerða veiru, er nú brugðið. Þessi ríkisstofnun hefur ekki úr háum söðli að detta eftir hneykslið vegna Díönu prinsessu. Í nýjustu frétt BBC segir: „Prof Shi Zhengli – often referred to as „China’s Batwoman“ – a researcher at the Wuhan Institute, published a report last week revealing that her team had identi- fied eight coronavirus strains found on bats in the mine in China in 2015.“ Þegar komin er „Batwoman“ í söguna er hætt við að Bandaríkjamenn fari loks að trúa. Kínversk yfirvöld leyfa enn aðeins eitt eintak sannleika í þessu máli. Náttúrulegukenninguna: „Leðurblaka liggjandi á salatbarnum í Wuhan gerði þetta allt. Og af hverju hefur sú kenning Kína verið ofan á í heiminum? Af því að WHO keypti hana, gef- ur BBC sér. Forstjóri WHO, byltingarleiðtogi úr Eþíópíu, nú síðast sagður í liði „Tigray People’s Lib- eration Front“, og liðþjálfar hans, sem lengi hafa verið í Kína, eru aftur komnir í sólina. Joe Biden fékk ábendingar frá einhverjum í brúðuleikhúsinu hans um að kippa þeim aftur inn. Kannski eru þeir með spottana þar farnir að sjá eftir því eins og fleiru. Það eru aðeins rúm fjögur ár síðan þessi forstjóri WHO gerði Mugabe einræðisherra að sérstökum sendiherra góðviljans hjá WHO. Það er hætt við að mörg fórnarlömb forseta Simbabve hafi snúið sér illa lemstraðir við í gröfum sínum. Hleypa þarf skarpari hugsun að Heimurinn veit núorðið að Biden er ekki alveg með þetta. En er ekki hægt að fá eitthvað minni vitleys- inga til að halda um spottana hans? Við, þetta venju- lega fólk, vitum ekki til þess að það liggi neitt fyrir um að veirunni í Wuhan hafi verið sleppt út viljandi eða óviljandi. Við vitum þó að ungir læknar í Wuh- an, sem lýstu áhyggjum sínum í upphafi ferilsins, dóu tiltölulega skyndilega. Það má vera til eðlileg skýring á því, en það er ekki endilega líklegt. En ef netrisarnir skattlausu ætla að lagfæra málið á ný með því að herða skrúfurnar og auka og efla rit- skoðun sína á óheppilegum sjónarmiðum, sem fræg- ir fjölmiðlar vestra styðja!, þá verða þeir að taka sér tak. En kannski hefðu þessir frægu fjölmiðlar og net- risar á siðferðilegum brauðfótum átt að hafa ríku- legri áhyggjur af því að veira slyppi í almenning en að óheppilegar upplýsingar að mati risanna gerðu það. Ritskoðunarþörf yfirgengilegra auðmanna, sem virðist efst á blaði veraldar núna, nær ekki nokkurri átt. Hún mun hefna sín. Réttar upplýsingar lifa af alla ritskoðun fanta. Það er aðeins spurning um tíma. Þær sleppa út að lokum. Eins og veiran gerði, hvernig svo sem hún slapp. Hún slapp út, var það ekki? Er ágreiningur um það? Varla. En hvaðan? Hvernig? Þegar þau svör liggja loks fyrir þá mun heimurinn vita hver ber þar mesta ábyrgð. Morgunblaðið/Eggert ’ En er það virkilega í lagi að nokkrir yfir- þyrmandi ríkisbubbar, sem hafa lykil- aðstöðu í allri umræðu í veröldinni, og bera þó enga ábyrgð, geti opnað á sjónarmið sem þeim hugnast og bannað önnur svo að heilu þjóðfélögin fái ekki rönd við reist? 30.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.