Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Síða 19
30.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 AFSLÁTTUR 25% STILLANLEGIR DAGAR „Ég ber saman verk hans frá bókstafstrúar- tímabilinu við plötur sem hann gaf út 1997- 2006. Niðurstaðan var sú að þær plötur sem er almennt ekki hægt að kalla trúarlegar, voru áhugaverðari út frá trúarlegum pælingum heldur en hinar sem áttu að vera trúarlegar. Þar kemur kenningin hans Fowlers sterk inn, en hann gerir ráð fyrir þroska,“ segir Henning og útskýrir að Fowler hafi skipt trúarþroska upp í sjö stig. Henning vildi komast að því hvort kenn- ingar Fowlers væru gott tæki til að greina trúarlegar hugmyndir Dylans. „Ég tók smá áhættu með því að fara þessa leið en ég var að finna endalausa samhljóma og tengingar og þetta varð bara skemmtlegra og skemmtilegra. Það var mjög gefandi að skrifa þessa ritgerð,“ segir hann og segir aðra hafa greint trúarhugmyndir Dylans á aðra vegu. „Mér fannst það hafa verið gert á yfirborðs- kenndan hátt. Fowler bjó til þessa dýpt í um- ræðuna.“ Gæti lánað honum hrífu Hefurðu farið á tónleika með Dylan? „Já, hann kom tvisvar til Íslands og ég fór í bæði skiptin. Fyrra skiptið var 1990 og svo kom hann 2008. Ég sá hann líka í Glasgow um 2005. Mér fannst 1990-tónleikarnir standa upp úr, en þá var ég um sextán ára og búinn að sökkva mér ofan í tónlistina hans í heilt ár af krafti. Þessir tónleikar voru í Laugardalshöll- inni og þeir voru frábærir. Hann spilaði mjög mikið; 26 lög. Hann bætti inn lögum en hann er ekki þannig tónlistarmaður sem spilar bara þekktustu lög sín. Hann spilar oftast bara nýj- ustu plötu sína, en þarna var hann með miklu meira en vanalega. Svakaleg upplifun!“ Áttu þér uppáhaldslag með honum? „Já, ég verð að nefna þrjú. Visions of Jo- hanna frá 1966, Shelter from the storm frá 1975 og svo Not dark yet frá 1997.“ Ef þú gætir boðið honum í mat, hvað mynd- uð þið ræða um? „Ég held ég myndi alls ekki tala við hann um hans eigin verk. Frekar um John Coltrane eða málarann Rothko. Svo kannski um daginn og veginn. Ef það er eitthvað sem hann vill ekki tala um þá er það hann sjálfur eða hans eigin verk.“ Myndir þú vilja hitta hann? „Ég veit það ekki, ég er ekki viss. Þó mér þyki gaman að skoða hann þá finnst mér að það þyrfti að eiga sér eðlilegan aðdraganda. Það væri þá kannski bara ef hann flytti í Garðabæinn. Ég gæti þá lánað honum hrífu og séð hvert það myndi leiða.“ Morgunblaðið/Ásdís Í bókahillum á skrifstofu Hennings má finna ógrynni af tónlistarbókum og trúarritum. Líklega eru þar tugir bóka um goðið hans Bob Dylan en margar af þeim keypti hann fyrir ritgerðarsmíðina. ’ Það er einhver kjarni í hon- um. Það er líkt og gildi hans og uppeldi sem hefur mótað hann birtist sífellt á nýjan hátt. Hann hefur svo áhugaverða sýn á lífið og setur oft hluti í samhengi sem maður býst ekki við. Hann tengir saman hluti á svo góðan hátt. Bob Dylan er hér á tónleikum árið 1966. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.