Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Page 24
Þ
ema Feneyjatvíæringsins í
byggingarlist árið 2021 er
How will we live together? eða
Hvernig komum við til með að búa
saman? Það er sett fram af aðal-
sýningarstjóra viðburðarins, líbanska
arkitektinum Hashim Sarkis og
stjórnanda arkitektadeilar MIT há-
skóla, í því augnamiði að kalla eftir
skapandi lausn-
um.
„Þetta er mjög
opinn en jafn-
framt tvíræður
titill,“ segir Guð-
jón Bjarnason,
arkitekt og mynd-
listarmaður, sem
valinn var á
Tvíæringinn, „þar
sem óskað er eftir
hugmyndum frá þátttakendum um
betri framtíð en kallar um leið á efa-
semdir um forsendur lífvænlegrar
framtíðarskipanar. Helsta ástæðan
fyrir því að Sarkis gefur sér þetta
víða sjónarhorn er sú almenna tilfinn-
ing og skoðun að nú þurfi arkitektón-
íska hugsun til sem nái út fyrir landa-
mæri. Hnattræn tengsl eru þarna í
brennidepli, loftlagsváin, pólitísk
vandamál og straumur flóttamanna,
hagfræðileg málefni svo sem sífellt
aukin misskipting auðs sem er að
kljúfa sundur þjóðríki og sundra
innri samfélagsgerð þeirra og svo
framvegis. Allt gefur þetta tilefni til
ærlegrar naflaskoðunar og vanga-
veltna um hvað megi betur fara í
þessum heimi í senn frá sjónarhóli
einstaklingsins sem og hópa og þjóð-
félaga. Tekist er á um mjög stóra
drætti enda um að ræða mikilvæg-
ustu alþjóðlega sýningu veraldar á
byggingarlist.“
Feneyjatvíæringurinn í myndlist
er vel kynntur á Íslandi en minna
hefur farið fyrir sambærilegum við-
burði á sviði byggingarlistar enda um
þrír áratugir síðan við Íslendingar
völdum þar fulltrúa, að því er Guðjón
kemst næst. Byggingarlistin er sýnd
á sama stað og myndlistin á Giardini-
svæðinu, þar sem hinir 49 þjóðskálar
eru, og svo Arsenal-hlutanum þar
sem fimmtíu virtum arkitektum og
hugsuðum var boðið til leiks. Fram-
lag Guðjóns er að finna í ítalska skál-
anum í svokölluðum CITYX-hluta
sýningarinnar. Guðjón er ekki til-
nefndur af íslenskum yfirvöldum,
eins og myndlistarmennirnir, heldur
var hann kallaður inn af sýning-
arstjóra CITYX, slóvanska arkitekt-
inum Tom Kovac prófessor við RMIT
háskólann, Melbourne. „Ég veit ekki
fyrir víst hvernig boð um þátttöku
kom til en sennilega hafa komið með-
mæli frá einhverjum sem er kunn-
ugur ferli mínum og verkum. Ég er í
öllu falli ljómandi ánægður að fá
tækifæri til að vera þátttakandi í
þessu stóra og margslungna verk-
efni,“ segir Guðjón.
Guðjón hefur mestmegnis starfað
á Indlandi undanfarinn áratug og
unnið þar að fjölmörgum verkefnum
og tillögum sem falla vel að anda þess
þema sem Tvíæringurinn leggur upp
með. Á sýningunni er úrval þeirra
verka með sérstaka áherslu á tónlist-
arhúsið í Shillong í Meghalaya sem
nú er í byggingu og tillögur fyrir end-
urskipulagningu viðskiptahverfisins
Patto Plaza í Panjim, höfuðborg Góa,
auk verkefna víðsvegar á Indlandi s.s
frumskipulag níu nýrra borga við
Chambal ánna, skammt frá Agra, til-
lögu að landsleikum Indlands og ým-
issa íþróttaleikvanga auk verkefna
stærri sem smærri frá New York,
Kína, Nairobi og víðar.
Listræn nálgun
Verkin er sett fram myndrænt í sex
mínútna myndbandi ásamt textum og
frumsaminni tónlist undir yfir-
skriftinni Fagurfræðileg sjálfbærni
sem endurspeglar aðferðarfræði og
nálgun Guðjóns að hans eigin sögn.
Tónlistin er eftir Eðvarð Egilsson,
Jón Kári Hilmarsson aðstoðaði við
gerð myndbandsins og fjöldi ind-
verskra samverkamanna komu að
gerð verkanna.
„Óskað var eftir lausnum og í mín-
um verkum hef ég alltaf lagt áherslu
á listræna nálgun, að velta stokkum
og steinum með það að markmiði að
skoða alla skapandi möguleika til úr-
lausnar á verkefnum. Ekkert er eins
mikilvægt og að velta fyrir sér hvern-
ig maður geti hugsað út fyrir kass-
ann. Á sama tíma ber ég mikla virð-
ingu fyrir náttúru og menningar-
arfleifð, bæði þeirri sýnilegu og
andlegu, sérstaklega á Indlandi, og
legg vaxandi áherslu á einfaldar en
hugmyndaríkar og notenda- og vist-
vænar lausnir, sem og leiðir til að
gera hlutina aðlaðandi og spenn-
andi.“
Tvíæringurinn var formlega opn-
aður 22. maí, að miklu leyti með staf-
rænum hætti vegna heimsfaraldurs-
ins. Einungis fáeinir heimamenn
voru á staðnum. Sýningunni lýkur 21.
nóvember.
Sjálfur var Guðjón staddur í sendi-
ráði Íslands í Genf, þar sem haldin
var einskonar fjaropnun samhliða
opnun á listsýningu Guðjóns þar.
Svisslendingar sæta miklum tak-
mörkunum þessa dagana en Guðjón
vonast til að létt verði á þeim núna á
mánudaginn, þannig að hann komist
sem fyrst til Feneyja. Annars stend-
ur til að halda tvær opnanir til við-
bótar í Feneyjum, aðra í sumar, þeg-
ar vonandi verður búið að aflétta
helstu takmörkunum alþjóðlega, og
hin í nóvember sem um leið verður
lokahóf viðburðarins. „Þannig að
maður ætti að fá tækifæri til að hitta
kollegana,“ segir Guðjón en hann
þekkir nokkra þeirra persónulega,
auk þess sem margir eru heims-
kunnir.
Á sýningunni í Genf er myndlist-
armaðurinn Guðjón í öndvegi; sýnir
þrettán ný myndverk unnin á ál og
eitt myndbandsverk. Seríuna kallar
hann IslANDs og markmið sýning-
arstjórans, Ásthildar B. Jónsdóttur
sem valdi verkin saman, er að beina
sjónum að loftslagsvánni og almennri
eyðileggingu náttúrunnar. Mynd-
irnar eru byggðar á negatívum og
kaldlituðum ímyndum af jöklum,
fossum og eyðilandslagi á Íslandi yf-
irþrykkt um miðju með svörtu af-
stæðu myndmáli í upplausn. Sýningin
stendur fram á sumar.
„Þeir eru stöðugt að eigast við,
þessir tveir þættir í mér, myndlistin
og arkitektúrinn. Meðan listir þurfa
helzt að vera róttækar til að hrófla
við hugsun okkar þarf arkitektúrinn,
eðlis síns vegna, alltaf að vera upp-
spretta vonar. Annað er tilgangslaust
og leitt þegar tækifæri til aukinnar
göfgi samfélagsins fer fyrir bí. Mun-
urinn er sá að listirnar geta gagnrýnt
harðlega, verið erfiðar og krefjandi,
en til þess að gagnrýna innan ramma
arkitektúrs verður samhliða að koma
með lausnir. Arkitektar eru þess
vegna dæmdir til bjartsýni.“
Dæmdur til bjartsýni
Guðjón Bjarnason
kynnir arkitektúrverk
sín og hönnun á Fen-
eyjatvíæringnum í
byggingarlist. Hann er
einnig með sýningu á
myndverkum í Genf.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Tónlistarhúsið í Shillong í
Meghalaya er tilraun Guðjóns
til að brjóta niður múra milli
yfirstéttarinnar og almennings
á Indlandi. Færa fólk saman,
inn í og að húsinu.
Guðjón
Bjarnason
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021
LISTIR
SÉRBLAÐ
Ferðalög Sérblöð um ferðalögkoma vikulega út í júní
Hvert blað beinir sjónum sínum
að einum landsfjórðung
• Hvert skal halda í sumarleyfinu?
• Viðtöl við fólk sem elskar að ferðast um Ísland
• Leynistaðir úti í náttúrunni
• Hvar er best að gista?
• Ferðaráð
• Bestu sumarfrí Íslendinga
Pöntun auglýsinga og nánari
upplýsingar augl@mbl.is