Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ETOILE model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,-
Næstu fjóra sunnudaga verður rætt við Vigdísi Finnbogadóttur,
fyrrverandi forseta Íslands, í Ríkissjónvarpinu.
Í fyrsta þættinum í kvöld munu Marinella Arnórsdóttir, rit-
höfundur og bókmenntafræðingur, og Halla Oddný Magn-
úsdóttir, viðburða- og skipulagsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, ræða við Vigdísi um uppvaxtarár hennar og námsár í
Frakklandi.
Eftir viku mun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræða
við Vigdísi um jafnréttis- og menningarmál.
13. júní mun rithöfundurinn Sjón ræða við Vigdísi um mikil-
vægi tungumála og störf hennar í þágu þeirra, meðal annars hjá
UNESCO.
Í lokaþættinum mun Haukur Ingvarsson, rithöfundur og bók-
menntafræðingur, ræða við Vigdísi um landvernd og umhverfis-
mál.
Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi
forseti Íslands.
Morgunblaðið/Eggert
Ýmsar hliðar Vigdísar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ræða
við Vigdísi í þættinum um næstu helgi.
Morgunblaðið/Eggert
Rætt við Vigdísi Finnbogadóttur í Ríkis-
sjónvarpinu næstu sunnudaga.
Í Morgunblaðinu 29. maí 1921
var að finna auglýsingu þess
efnis að Knattspyrnufélagið
Þrándur hygðist vígja völl sinn
þann dag kl. 5. „Allir mættir
félagsmenn syngja Táp og fjör
og frískir menn.“ Um kvöldið
átti svo að vera fundur og veit-
ingar í Nýja Bíó, uppi. Voru fé-
lagsmenn hvattir til að mæta
þar einnig.
Ugglaust kannast ekki marg-
ir við þetta ágæta félag enda
mun það hafa starfað stutt í
byrjun þriðja áratugar seinustu
aldar.
Að sögn Sigmundar Ó.
Steinarssonar rithöfundar, sem
skráð hefur knattspyrnusögu
Íslands, var Knattspyrnufélagið
Þrándur stofnað 1921 á Hótel
Íslandi, herbergi 12, fé-
lagsmenn voru 45 og formaður
Bjarni Magnússon.
Fyrsti opinberi leikur Þránd-
ar var við skipverja á danska
varðskipinu Fylla í ágúst 1921
og fagnaði liðið sigri, 4:1. Í
sama mánuði gerði Þrándur
jafntefli við úrvalslið úr Hafn-
arfirði, 0:0, að sögn Sigmundar.
„Ekkert var minnst á knatt-
spark Þrándar 1922,“ segir Sig-
mundur, „en minnst var á
skemmtiför félagsmanna til
Þingvalla það sumar. Leikmenn
félagsins voru greinilega ekki
öðrum félögum Þrándur í
götu. Fram varð Íslandsmeist-
ari 1921, 1922 og 1923, án þess
að þurfa að mæta Þrándi.“
GAMLA FRÉTTIN
Ris og fall
Þrándar
Auglýsingin frá stjórn Þrándar sem birtist í Morgunblaðinu vorið 1921.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Steinar Birgisson
handboltagoðsögn
Werner Herzog
kvikmyndaleikstjóri
Georg Friedrich Wilhelm Hegel
heimspekingur