Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 4
Þ
eir sem þekkja til Ólafar vita að sama er
hvar hún hefur búið um fjölskylduna sína,
heimilin hennar eru alltaf einstaklega
smekkleg og aðlaðandi.
Ólöf er fædd og uppalin í Reykjavík og
bjó lengi vel í vesturbænum í fallegu látlausu húsi með
fjölskyldunni sinni.
„Ég hef alltaf elskað heimilin mín og held ég hafi
þennan áhuga frá mömmu sem mér þótti mjög smekk-
lega kona. Æskuheimilið var mjög hefðbundið íslenskt
heimili en það var eitthvað við það hvernig mamma var
sem smitaðist yfir í mig. Svo þegar ég fór að búa sjálf þá
fór úrvalið í verslunum að verða meira og í raun má
segja að ég viti fátt eins skemmtilegt og að búa fallega
um fjölskylduna og að fylgjast með því hvað er að ger-
ast í heimi menningar og listar og hönnunar, bæði þeg-
ar kemur að fatnaði en einnig húsbúnaði.“
Vil að börnunum líði vel í heimsókn
Ólöf er gift Haraldi L Haraldssyni, hagfræðingi hjá
HLH ráðgjöf, og eiga þau saman þrjú börn sem nú eru
öll uppkomin.
„Þegar við keyptum húsið fyrir fimm árum hér í
Garðabænum var það sem heillaði mig fyrst hversu fal-
leg stofan er. Eldhúsið er einnig opið og ég sá fyrir mér
að húsið gæti verið notalegur staður fyrir mig og mann-
inn minn en einnig börnin okkar og barnabörn þegar
þau koma.
Ég kaupi fallega og vandaða hluti og fer ég vel með
það sem ég kaupi. Sem dæmi get ég nefnt stofusófann
sem við keyptum fyrir fjörutíu árum síðan á heimili
okkar á Ísafirði. Eins þykir mér mjög mikilvægt að
barnabörnunum mínum líði vel hérna hjá okkur og að
þau geti verið hamingjusöm, glöð og frjáls og þurfi ekki
að passa sig á að umgangast hlutina þótt þeir séu fal-
legir og sumir hlutir séu vandaðar hönnunarvörur.“
Sumir segja anddyri andlit húsa og það á vel við til-
finninguna sem maður fær við að ganga inn á heimilið.
Stórar pottaplöntur taka á móti manni, falleg myndlist
og svo bækur sem nóg er af á heimilinu.
„Já, manninum mínum fylgdi mikið af fallegum vönd-
uðum bókum og tók það smá tíma að finna þeim góðan
stað hér á heimilinu. Við völdum að gera fallega skrif-
stofu nálægt sjónvarpsholinu okkar þar sem fer vel um
manninn minn þegar hann velur að vinna heima og
hann getur teygt sig í bækur ef hann vill lesa.“
Elska að fá fólkið sitt í mat
Eldhúsið er með stórri hvítri eyju þar sem vinnuað-
staðan er góð en einnig vænlegt fyrir gesti að standa við
borðið og fylgjast með eldamennskunni.
„Já, við elskum að fá fólk í mat og sérstaklega börnin
okkar. Við erum samrýnd fjölskylda og þótt við eins og
aðrir höfum verið að hittast aðeins minna á tímum kór-
ónuveirunnar erum við dugleg að koma saman og borða
eitthvað gott.“
Það er mikið af fallegum listaverkum á veggjunum,
sér í lagi í stofunni þar sem finna má nokkur listaverk
eftir Sigurbjörn Jónsson.
„Listaverkin eftir Sigurbjörn eru svo
falleg. Málverkin hans sum eru falleg
verk af tónlistarfólki en svo erum við
með myndlist eftir fleiri listamenn
hérna í stofunni. Sem dæmi held ég
mikið upp á verkið eftir Eirík Smith. Ég
hafði komið mér í samband við hann
nokkru áður en hann dó og við höfðum
mælt okkur mót sem því miður varð
ekki að veruleika. En ég er ánægð með
að hafa fest kaup á þessu verki. Ég elska birtuna í stof-
unni og sér í lagi að sitja í Egginu og drekka morg-
unkaffið mitt um helgar.“
Leirlistaverk eftir Margréti víða
Það eru einnig leirlistaverk eftir Margréti Jóns-
dóttur sem passa vel við inni í stofu og í eldhúsinu.
Ólöf Thorlacius, sérfræðingur í útlána-
deild Arion banka, á einstaklega fallegt og
tímalaust heimili þar sem hönnunarvörum
er blandað saman við fallega myndlist og
húsbúnað sem á sér sögu og dýrmætar
minningar fyrir heimilisfólkið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
„Heimilið hefur alltaf
veriðmitt hjartansmál“
Ég hef alltaf elskað
heimilin mín og held
ég hafi þennan
áhuga frá mömmu
semmér þótti mjög
smekklega kona.
5 SJÁ SÍÐU 6
Eggið eftir Arne
Jacobsen á góðum
stað í stofunni.
Eames Lounge-
stóllinn er notalegur í
sjónvarpsherberginu.
Ólöf Thorlacius er
einstaklega
smekkleg kona.