Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Sími 483 5800 | byr@byrfasteign.is | www.byrfasteign.is Elín Káradóttir Löggiltur fasteignasali HVERAGERÐI HEITUR REITUR „Þegar ég fer norður á Akureyri þá jafnast fátt á við að koma við hjá Margréti. Það er svo gaman að hitta skemmtilegt listafólk sem leggur svo mikið í það sem það gerir. Það er enginn hlutur eins hjá henni og hver einasta skál, bolli og kökustandur listaverk. Það er mik- ill heiður að eiga hlutdeild í því.“ Í eldhúsinu eru einnig smart viðarplötur sem Ólöf notar undir brauð og alls konar mat en einnig þegar hún leggur fallega á borð úti á palli. „Þessar viðarplötur eru gamlar og fást í Heimili og hugmyndum. Þær eru góð fjárfesting og gaman að raða fallega á þær.“ Gólfefnið á heimilinu er hvíttuð eik sem hjónin létu pússa upp áður en þau fluttu sjálf inn í húsið. Allar innréttingar í húsinu er hvítar og fallegur stílhreinn steinn sit- ur á innréttingunum sem falla vel inn í umhverfið. Vildu eignast hús sem myndi henta út lífið Hægt er að ganga út á pall þar sem er heitur pottur, út frá baðaðstöðu í svefnherbergisálmu hússins. Síðan er hjónasvítan stílhrein og fal- leg með fataskáp sem hægt er að ganga inn í. Það sem við vildum fjárfesta í á sínum tíma væri fal- legt hús sem gæti fylgt okkur út lífið. Við erum dugleg að ferðast saman hjónin og veljum þá vanalega að fara til Ítalíu saman. Þar vitum við fátt skemmtilegra en að fara á milli staða og skoða fallegar hönnunarvörur og einstakar byggingar. Maðurinn minn var eitt sinn spurður hvort við hefð- um heimsótt söfnin á Ítalíu, hann svaraði snöggur upp á lagið að það hefðum við svo sannarlega gert þegar við heimsóttum Prada og Gucci og fleiri búðir, enda há- tískufatnaðurinn á Ítalíu í þannig anda að það er eins og maður sé að koma inn á safn,“ segir Ólöf í lokin. Það er mikið af fal- legum listaverkum á veggjunum, sér í lagi í stofunni þar sem finna má nokkur listaverk eftir Sig- urbjörn Jónsson. Eldhúsið er vandlega búið fallegum hlutum. Sófasettið í stof- unni er úr Casa. Listaverk gegna stóru hlutverki á heimilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.